Ljósberinn - 01.04.1948, Qupperneq 29

Ljósberinn - 01.04.1948, Qupperneq 29
ljósberinn t>l fastheldnir við gamla lifnaðarháttinn: Hvaða gagn er að því, að sitja svona allan liðlangan daginn og stagast á A B C eða mála með fjöð- ur, eins og kaupmaðurinn gerir (þ. e. skrifa) eða rýna í bók, eins og presturinn. Veiði- skapur og aðdrættir er betra. Þetta sögðu þeir. Egede sóttist eftir að fá til sín smábörn, til þess að hann gæti kennt þeim frá byrj- un, frætt þau fyrstur. Þetta misskildu Græn- lendingar og ortu um bann vísu og er þetta efni hennar: Hingað er kominn maður frá Austurlönd- um; bann lieitir Peleste (prestur) og stelur smádrengjum og gefur þeim þykka súpu (rúg- mjölsgraut) og roð á eftir til matar og harð- þurrkaðar moldarkökur lieiman að frá sér (skipstvíbökur). En konungur sá, að þessi nýlenda varð kon- ungssjóði of dýr og liætti því að leggja fé til að lialda henni uppi. En er dönsku land- Ueniarnir á Vonarey, voru farnir heim aftur til Danmerkur, þá lögðu erlendir farmenn eld í liúsin og Egede gat þá alls eigi verið óhultur um, að þeir gerðu sér eigi sömu skil 1 Góðvon, þar sem hann bjó sjálfur. Þar á ofan bættist, að heilsa lians tók að bila; þorði Eann því eigi að veita börnum skírn, sem 1‘onum voru færð, af ótta fyrir því, að þau mundu eftir á fara á mis við alla kristin- dómsfræðslu. Á þessum raunatímum var Níels sonur hans lionum bezti buggarinn, næst Guði. Hann Iiafði hrausta sál í liraustum líkama, var slyngur veiðimaður, kunni grænlenzkuna til hlítar og var mjög vinsæll af landsmönnum. En samt sögðu þeir við Hans Egede: Vér sjáum nú, að þú befur mætur á oss; annars Itefðir þú farið frá oss í surnar, eins og hinir. Konungur og ráðuneyti hans létu ekki Egede eiga sig með öllu. Árið eftir var hon- llm sent skip, hlaðið matvælum. Og þar sem verzlunin við Grænlendinga bar líka góðan ar3, þá glæddist að nýju áhugi Dana á Græn- landi. Þegar Kristján konungur VI. kom til ríkis (1730—1746), þá vildi bann líka eitthvað liðsinna Grænlendingum; studdi hinn alkunni greifi Zinzendorf að því. Var það þá ákveðið, að lialda skyldi trúboðinu áfram og sérstak- lega að íeka verzlunina við Grænlendinga af alefli. XXIV. Vitnisburður deyjandi Grænlendings. Því fór þó fjarri, að raunir Egedes væru úti. Grænlenzku börnin, sem send voru heim til Danmerkur, dóu því sem næst úr bólunni; en sum sárbeiddu um að mega fara heim aftur og svo voru þau send heim. Eitt þeirra, smátelpa, dó á leiðinni, en drengur einn sjúk- ur komst alla leið lieim og flutti svo þessa báskalegu drepsótt með sér; varð bólan afar- skæð þar í landi, því að hýbýlin voru svo óþrifaleg, og allur lifnaðarbáttur þar eins og bauð þessari drepsótt heim. Bólan breiddist út með geysihraða og því nær allir dóu, sem veikina tóku. I sumum byggðum urðu lieilar fjölskyldur aldauða. I nýlendunni einni dóu um 50 manns, og af 200 fjölskyldum í nágrenninu voru tæplega 30 eftir lífs. Grænlendingur einn, sem var í sjóróðium, kom inn í tjald í afskekktu býli og fann þar 3 smábörn og unglingsstúlku bjá þeim; hún beiddi liann að flytja sig til Egedes. Græn- lendingurinn lét Egede vita þetta, og eftir langa leit og erfiða fundust þau. Bömin sögðu að faðir þeirra væri dáinn fyrir mörgum dög- um. Þegar bann fann að dauðinn nálgaðist, þá tók liann yngsta barnið sitt með sér, fjögra mánaða gamalt, og stakk því ofan í bolu, til þess að það dæi þar. Hann skipaði stúlk- unni að byrgja vel holuna með feldum fyrir rándýrunum og mælti: Presturinn kemur víst til ykkar, áður en þið eruð búin að eta báða selina og loðnurnar, sem þið hafið til lífs- bjargar, og þá tekur hann ykkur heim til sín, því að hann elskar ykkur og mun annast um ykkur. Þau Egede og fjölskylda hans urðu að ann- ast þá alla, sem flýðu á náðir hans, í sínum eigin búsum. Kona bans varð að þola þungar

x

Ljósberinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.