Nýtt kirkjublað - 01.06.1908, Page 5

Nýtt kirkjublað - 01.06.1908, Page 5
NÝTT KIKKJUBLAÐ 125 um a5 eitthvað sé, þá er bilið aðeins mjótt milli slíkrar trú- ar og þess sem vér nefnum kenningu, — hvorttveggja á heima á sviði vitundariunar. Og þar sem nú kenningin er útlist- un trúarinnar í báðum þessum merkingum orðsins og fram- setur skoðanir mannanna bæði á innihaldi hinnar sáluhjálp- legu, réttlætandi trúar og hinnar viðurkennandi trúar, þá er aldrei nema skiljanlegt, að trúin sjálf og útlistanirnar á inni- haldi trúarinnar geti runnið saman í meðvitund almennings. En afleiðingin af því verður svo, að þetta þrent: trúin sem hjart- ans-traust á guði, trúin sem sannfæring um það sem ekki verð- ur séð, og hin trúfræðilega útlistun trúarinnar, verði alt álitið jafn-mikilvægt og jafn-nauðsynlegt til sáluhjálpar. En þetta er villa, sem mörgu illu hefir til leiðar lcomið. III. Það verður aldrei of alvarlega brýnt fyrir mönnum, að trúin gjörir oss hólpna einungis af því leyti sem hún er kær- leikssamfélag hjartans við guð, einungis að þvi leyti sem hún er í þvi fólgin, að maðurinn gefur guði hjarta sitt i harns- legu trausti til náðar hans. En að því leyti sem trúin er ein- göngu sannfæring um, að eitfhvað sé til, sem eg ekki get beint þreifað á, eða eitthvað satt og áreiðanlegt, sem eg ekki get fengið sönnur á með skynsemi minni, þá er hún að visu mikilvæg fyrir samfélag mitt við guð, en hólpinn gjftrir sú trú mig ekki. Hún getur i mesta lagi aðeins stutt að því óhein- línis, að því leyti sem traust rnitt á guði styrkist fyrir hana, en beinlinis frelsað getur hún ekki. Eg trúi því t. a. m. að guð sé til, en hvað stoðar mig slík trú ef eg eftir sem áður lifi eins og enginn guð væri til? Eg trúi, að Jesús Kristur sé sonur hins lifandi guðs, en sú trú gjörir mig engan veginn hólpinn hafi hún engin áhrif á ahtöðu hjarta míns til hans. Eg trúi því ennfremur, að Jesús Kristur sé á þriðja degi upprisinn frá dauðum, en eg get eius fyrir það verið glötunarinnar barn, ef samband mitt við hann er þrátt fyrir það ekki öðruvisi en samband mitt við aðrar persónur rnann- kynssögunnar frá löngu liðnum timum. Með öðrum orðum: hafi trúin sem sannfæring um að eilthvað sé svo eða svo, engin áhrif á hjartalagið, afstöðu Irjartans li) guðs, þá er hún eins- kisvirði í sáluhjálplegu tilliti. Hún er þá að eins dauð trú.

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.