Nýtt kirkjublað - 01.11.1913, Side 6
246
NÝTT KIRKJUBLAÐ
ist gefa mér svo duglega snupru mef, nefnilega það, að söfn-
uðirnir mundu engan prest þurfa, ef þeir væru svo trúaðir
og góðir, guðhræddir og bænræknir, að eigi héldust við hjá
þeim poka og pela-prestar.
Eg skal bara segja þér mína hugsun, þá: Söfnuðirnir
mundu þá girnast æ framar og líka öðlast æ betri og full-
komnari kennendur og fyrirmyndir, því þeir yrðu þá æ hæf-
ari til að afla sér þeirra og æ maklegri þess að njóta þeirra,
en brennivínsberserkirnir o. s. frv. færu sem sagt niður und-
ir allar hellur, og sæjust eigi framar hjá slíkum söfnuðum.
Það eitt enn um þetta mál, að þú áttir eigi að skilja
mig svo sem eg vildi leggja þyngri dóm á söfnuðina en prest-
ana fyrir hinn dauða kristindóm og hina mörgu illu háttu
vor á meðai. Því fer fjarri. En eg vildi aðeins benda á
það, sem eg ætla satt vera, að söfnuðirnir hafa hjá sjálfum
sér, ef þeir vilja neyta og vita að beita, vopn og ráð til að
eyða illum og græða góða presta, já vopn og ráð, þar sem
er Guðs orð og bænin, Guðs ótti og ástundun helgunarinnar
með mótstöðu og andstygð gegn öllu illu.
Og segðu mig nú eigi þessu Ijúga, og eigi heldur hinu,
sem eg er Iíka fulltrúa um, að við verðum aldrei svo góðir
og fullkomnir, fyr en i öðrum heimi eða í fyrsta lagi á dög-
um 1000 ára ríkisins, að við þurfum eigi að eiga og höfum
gott af að eiga góða, guðhrædda og trúaða kennendur hinna
eilífu sannindanna af himni. (1881).
fjfkólinn og kirkjan.
Nokkrar greinar til athugunar.
A háskólunum er kent að fyrstu 11 kapítular 1. Mósebókar
hafi ekkert sannsögulegt gildi. Sköpunar- syndafalls- og synda-
flóðs-frásögurnar séu sagnir eða arfsögur. „Hvort Genesis-
bókin sé saga eða sagnir, spyr nú enginn mentaður maður
lengur um,“ segir hinn lærði prófessor Gunkel. En öfugt er
kent í lægri skólunum. Þar er mannkynssagan látin byrja,
og síðan er haldið áfram að skýra tilorðning heimsins og alla
hans sögu. Með öðrnm orðum gerir kirkjan sig þar seka í