Tímarit iðnaðarmanna - 01.10.1947, Síða 18
[ðnaðarritið 9. - 10. XA'. 1947
1946, þar til 1. ágúst s. á. Því miður varð Gunnar að
láta af störfum hjá Landssambandinu 10. nóv. s. 1., en
þá var hann kosinn hæjarstjóri á Siglufirði.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur ekki enn tekist
að fá hæfan mann í hans stað.
21. Húsbúnaöur í þjóðleikhúsið.
Húsgagnameistarafélag Reykjavíkur sendi stjórn Sam-
bandsins bréf hinn 20. apríl s.l. varðandi smiði á hús-
búnaði þjóðleikhússins og á stjórnarfundi 31. marz mættu
3 fulltrúar frá félaginu til frekari viðræðna.
Bréf Húsgagnameistarafélagsins og fylgiskjöl þau er
fylgdu hljóða svo:
HtJSGAGNAMEISTARAFÉLAG REYKJAVlKUR
Fylgiskjal I.
1 tilefni af því að samtök húsgagnameistara í Reykja-
vík hafa gert tilboð í þjóðhleikhúsbúnaðinn, eins og fram
kemur í meðfylgjandi afriti, og því verið hafnað, samkv.
meðfylgjandi bréfi frá þjóðleikhúsnefnd, óskar Hús-
gagnameistarafélag Reykjavíkur aðstoðar Landssam-
bands iðnaðarmanna til að leita réttar stéttarinnar, svo
að þjóðleikhúsbúnaðurinn megi verða unnin af íslenzk-
um húsgagnasmiðum.
Afhentir félagið hér með Landssambandinu tilboð hús-
gagnasmíðam. og bréf þau öll, sem milli þeirra og Þjóð-
leikhúsnefndar hafa farið og mun stjórn Húsgagna-
meistarafélagsins skýra málið eftir þörfum.
Reykjavík, 29. marz 1947
Viröingarfyllst
f. h. HÚSGAGNAMEISTARAFÉL. REYKJAVlKUR
Kristján Siggeirsson, form.
Öl. H. Guömundsson, ritari.
Fylgiskjal II.
Samkvæmt upplýsingum, fengnum í viðtali við húsa-
meistara ríkisins, hr. próf. Guðjón Samúelsson, íyrir
hönd þjóðleikhúsnefndar, og ennfremur vegna uppdrátta
og útboðsauglýsinga dags 15. jan. þ. á., yfir nokkurn hluta
verks þess, sem vinna á í þjóðleikhúsinu, og l'eitað er
tilboðs í, viljum vér leyfa oss að gera háttvirtri þjóð-
leikhúsnefnd eftirfarandi tilboð:
Undirritaðir húsgagnasm. m. eru reiðubúnir til að taka
að sér að framkvæma áðurnefnt verk og skuldbinda sig
til að leggja þvi til minnst 30 fullgilda húsgagnasmiði,
og vinni þeir óslitið að verkinu frá því að hægt verður
að byrja og þar til þvi er að fullu lokið.
Verð verksins miðast við gildandi taxta á útseldri
vinnu og efni Húsgagnameistarfélags Reykjavíkur, eins
og hann verður á hverjum tíma meðan verkið stendur
yfir.
Vinnustofur, vélar og áhöld vor skuldbindum vér oss
til að hagnýta í þágu þessara framkvæmda, svo sem
frekast er unnt. /
Vér erum reiðubúnir til að gera tillöguuppdrætti, sem
þjóðleikhúsnefnd getur fylgst með, gert tillögur um og
samþykkt fyrir hvern einstakan lið verksins.
Þá geta komið til ákveðnir verðsamningar af okkar
hálfu áður en verkið væri hafið í hverju einstöku til-
felli, jafnóðum og samkomulag næðist við verkkaupa
um gerð og útfærslu, og þyrfti Það á engan hátt að
tefja framkvæmdir.
Við viljum benda á þetta fernt til skýringar:
1. Þar sem tími sá, er oss hefur verið veittur til und-
irbúnings tillöguuppdrátta og verðtilboðs í hvern
einstakan hlut eða fermeter uppsettrar veggklæðn-
ingar, getur vart talist viðunandi, þegar um svo
margþætt og umfangsmikið tilboð er að ræða, verð-
ur framkomið tilboð vort að teljast sá eini grund-
völlur til samningg um verkið, sem hægt er fyrir
oss að byggja á.
2. Meðlimum Húsgagnameistarfélags Reykjavíkur er
það metnaðarmál að verk þetta verði unnið af ís-
lenzkum húsgagnasmiðum og þessvegna býður fé-
lagið nær helming starfsliðs síns í þágu þess.
3. Þar eð innflutnings- og gjaldeyrisleyfi það, sem
húsameistari í samtali við oss kvaðst muni útvega,
hefur ekki verið fyrir hendi, og allt í óvissu hvaðan
og með hvaða verði efnið fengist til verksins, er
sú undirstaða frá hendi húsameistara til ákveðins
verðtilboðs ekki fyrir hendi og hefur aldrei verið
á útboðstíma þeim, sem oss hefir verið veittur.
4. Vér teljum víst, að það hafi verið hugsjón þjóð-
leikhúsnefndar og húsameistara ríkisins, að þetta
hús geymi í sjálfu sér, innan húss og utan, þjóðleg
menningarverðmæti í verkum þeirrar kynslóðar sem
reisti það. Þau verðmæti verða aldrei keypt frá
útlöndum, hvað sem í boði væri. Meðal annars af
þeim ástæðum teljum vér víst og sjálfsagt, að húsa-
meistari fyrir hönd þjóðleikhúsnefndar vilji íremur
skipta við íslenska iðnaðarmenn með þetta sér-
stæða verk.
Tilboð þetta er bundið þeim skilyrðum, að allt sem að
húsgagnasmíði lýtur, og tilheyrir þessu verki, sé unnið
af okkur.
Nefnd skipuð þessum mönnum: Jónasi Sólmundssyni,
Þ. Sigurðssyni og Gísla Kr. Skúlasyni, eru fulltrúar okk-
ar I þessu máli, og reiðubúnir til viðtals og samninga.
Reykjavík 26. febr. 1947.
Viröingarfyllst
Jónas Sólmundsson, Þorsteinn Sigurðsson, Gísli Kr.
Skúlason, Kristjón Kristjánsson, Trésmiðjan h.f., Arnór
Kristjánsson, Guðm. Pálsson, Aimenna húsgagnavinnu-
stofan h.f., Benedikt Eyþórsson, Ólafur H. Guðmundsson,
Sigurður Úlfarsson, Húsgagnavinnust. Björk h.f., Hús-
gögn & Co., Gottskálk Gíslason, Sigurgeir Gíslason, Árni
Skúlason, Hjálmar Þorsteinsson, Snæbjörn G. Jónsson.
112