Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1963, Síða 5

Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1963, Síða 5
Skólastjón Iðnskólans ásanit nemendum Meistaraskólans og tveim kennurum. kenna skuli, svo sem íslenzka, stærðfræði, kostnaðar- reikningur o. fl., en meðal kennslugreina, sem má kenna eru eitt erlent tungumál, helztu atriði hagfræði og iðnlöggjafar, landmælingar, burðarþolsfræði, hjálp í viðlögum o. fl. Þótt lögin geri þannig ráð fyrir stofnun meistara- skóla, er ekki í þeim að finna nein ákvæði þess efnis, að menn verði að ganga á meistaraskóla áður en þeir öðlist meistararéttindi. - Það er því augljóst, að mcð ákvæði þessu í iðnskólalögunum er enginn þvingaður til að fara á slíkan skóla, enda hefur það líka komið í ljós að iðnsveinar, sem ætla sér að verða meistarar með tímanum, vilja helzt ekki fara á meistaraskóla nema þeir megi til. - Skal vikið svolítið nánar að þessu atriði síðar. Ég gat þess, að langt væri síðan menn gerðu sér ljósa þörfina fyrir frekari menntun þeirra, sem taka vilja á sig þann vanda og þá ábyrgð, sem starfi iðn- meistarans fylgir. T. d. hafa iðnþing íslendinga, a.m.k. allt frá árinu 1955 rætt þetta mál og gert um það hvetj- andi ályktanir, en iðnþingin eru æðsta stofnun Lands- sambands iðnaðarmanna, hins víðfeðma málsvara og forsvarsaðila allra löggiltra iðngreina á Islandi, og sá vettvangur, þar sem baráttu- og hagsmunamál þeirra eru rædd og um þau gerðar ályktanir á hverju ári. - Aldrei hafa heyrst raddir á móti aukinni menntun iðn- aðarmanna og fullur stuðningur bæði stjórnar Lands- sambandsins og iðnþinganna hefur verið fyrir hendi. Svo rakin sé stuttlega saga meistaraskólamálsins á iðnþingum, hin síðari ár, má geta eftirfarandi sam- þykkta: „17. Iðnþing fslendinga (1955) telur æskilegt,að smíði iðnskólahússins í Reykjavík verði hraðað eftir því, scm frekast eru föng á, til þess að unnt verði að hrinda í framkvæmd þcim verkefnum, sem framundan eru og mest aðkallandi, svo sem að koma á fót við Iðnskólann í Reykjavík a) forskólum, b) meistaraskóla, c) tækniskóla-framhaldsskóla, d) verklegum námsgreinum í ýmsum iðngreinum“, o. s. frv. 1956 er m. a. samþ: „18. Iðnþing íslendinga telur nauðsynlegt, að lokið verði smíði Iðnskólans í Reykjavík sem fyrst og að við hann verði komið á fót: a) meistaraskóla, b) forskóla, c) verklegum námskeiðum í ýmsum greinum" . . . 1957 eru gerðar yfirgripsmiklar tillögur um þetta mál, sem beint er til iðnaðar- og menntamálaráðherra og segir í þeim m. a.: . . . „að nú þegar verði látin koma til framkvæmda ákvæði IV. kafla iðnskólalaganna um framhalds- kennslu fyrir iðnaðarmenn við Iðnskólann í Reykja- vík, til undirbúnings meistaraprófi. Þingið leggur áherzlu á, að í þessum tilgangi skipi ráðherra nú þegar nefnd hæfra manna til þess að semja reglugerð um framhaldskennslu þessa og um meistarapróf. Ennfremur að á fjárlögum næsta árs verði tekin upp nægileg fjárveiting til þess að tryggja það, að framhaldskennsla þessi geti hafizt á næsta hausti. Þingið telur, að með framhaldskennslu þessari beri að stefna að því að notuð verði heimild í 18. gr. laga um iðju og iðnað til þess að ákveða, að enginn fái meistarabréf, nema að undangengnu meistaraprófi, og verði byrjað á því að krefjast meistaraprófs í hin- um stærri og veigameiri iðngreinum, en krafan síðan TlMARIT IÐNAÐARMANNA 5

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.