Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1963, Page 9

Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1963, Page 9
samþykkt þessari neita því, að eigi þurfi að auka fræðslu (að auka þurfi fræðslu) iðnaðarmanna, heldur hinu, að þetta atriði komi mönnum algjörlega á óvart. Telur félagið því ekki óæskilegt, að kvöldnámskeið séu haldin eins og verið hefur, meðan mál þessi eru að komast á fastan grundvöll.“ 1 annarri samþykkt félagsins, sem fjallar um iðn- fræðslu á breiðari grundvelli segir m. a.: „5. Félagið telur, að meistaraskóli þurfi að rísa og að próf úr honum verði skilyrði þess, að meistarabréf fáist, enda leggi byggingarnefndir þá eigi aðrar tálm- anir á leið manna til þess að fá byggingarleyfi. Tryggt verði, að meistaraskóli þessi verði viðurkenndur sem forskóli að iðnfræðingaskólum, fyrir þá, sem vilja halda lengra á námsbrautinni.“ f umræðum á þessum fundi kom glöggt í ljós, að mönnum hafði brugðið í brún við auglýsinguna um meistaraskólann og héldu, að hér með væri þeim settur stóllinn fyrir dyrnar. Talin var nauðsyn þess að gefa mönnum nokkurn aðlögunartíma, áður en meistarapróf frá fullkomnum meistaraskóla yrði gert að skyldu, enda kemur og fram í samþykktunum, að menn telja mcistaraskólann „tálmurí' og að hætta sé á að skyldu um skólagöngu þar verði skellt á fyrirvaralaust. Auk þess að kynna þetta mál á nefndum fundi í Múrarafélagi Reykjavíkur, var það kynnt á svipaðan hátt víðar, m. a. á formannafundi Landssambandsins, sem haldinn var í Iðnskólanum hinn 26. apríl 1962 og Iðnaðarmannafélaginu í Reykjavík hinn 7. nóvember. Loks voru haldnir nokkrir umræðufundir um málið við sérstaka hópa frá hlutaðeigandi iðnfélögum og fulltrúaráði Meistarasambands byggingamanna. I erindi, sem skólanefnd Iðnskólans barst frá Meist- arasambandi byggingamanna, dags. rj. okt. 1962, kem- ur fram á hvern hátt það óskaði að fyrstu skrefin yrðu stigin til framkvæmda í málinu, og staðfestir það að nokkru þann anda, sem fram kom í viðræðum af hálfu félaganna. Er þar farið fram á að: „1. Haldið verði eitt kvöldnámskeið fyrir þá meist- ara í húsasmíði og múraraiðn, sem öðlast vilja bygg- ingarleyfi. Skilyrði fyrir þátttöku skuli vera, að við- komandi hafi lokið iðnskóla og sveinsprófi og hafi meistararéttindi í iðn sinni.“ Auk þeirra viðræðufunda, sem getið er hér að fram- an var nokkuð ráðgast um þessi mál við byggingar- fulltrúaembættið í Reykjavík, þar sem mjög eindreg- inn stuðningur kom fram við þau sjónarmið, sem lýst hefur verið hér að framan, og greinilegast kom fram í áliti fundar Múrarafélagsins og bréfi Meistarasam- bandsins. Skólanefnd Iðnskólans ræddi þetta mál á mörgum fundum og kom jafnan fram sá vilji að gera aðra til- raun með nokkurra mánaða dagskóla, þótt hún féllist á að gera í eitt skipti nokkra styttingu á fyrirhuguðu skólahaldi, til þess að koma á móts við óskir iðnaðar- mannanna sjálfra og byggingarnefndar borgarinnar. Eftir þessar umræður var svo auglýst skólahald er hefjast skyldi 21. janúar 1963, einu ári og einum degi eftir hina sorglegu, misheppnuðu tilraun. Svo brá við, að í þetta sinn innrituðust 51 nemandi, auk nokkurra, sem aðeins stunda nám í framhaldsstærðfræði til und- irbúnings prófi upp í framhaldsskóla. Það er nauðsynlegt að geta þess sérstaklega, að vegna þess hve tími sá, er skólanum er ætlaður að þessu sinni er miklu styttri en áætlað er síðar, ber að líta á þetta sem hreinar byrjunarframkvæmdir að meistaraskólanum, við það miðaðar, að bæta í bili úr aðkallandi þörf og til að afla raunhæfrar reynslu við slíkt skólahald. Námstíminn er sá sami og nú tíðkast í dagskóla venjulegra iðnskóla-deilda, nema hvað próf taka í þetta sinn a.m.k. styttri tíma í meistaraskólanum. Skólinn var settur hinn 21. janúar eins og auglýst hafði verið og skýrði skólastjóri þar í stuttu máli frá aðdraganda þessa skólahalds og formaður Landssam- bands iðnaðarmanna, Guðmundur Halldórsson, flutti skólanum árnaðaróskir og menntamálaráðherra þakkir fyrir, að skólinn væri nú tekinn til starfa. Gagnstætt því, sem búist var við, varð aðsókn nú svo mikil að skipta varð í 2 deildir. Hefst kennsla kl. 5 e. h. á daginn og er kennt í 3 til 5 tíma nema laugar- daga. Þá fara fram verklegar tilraunir með steinsteypu o. fl., utan sjálfs skólans, því ekki er ennþá fyrir hendi húsnæði til slíkra hluta í skólahúsinu. Kennarar og fyrirlesarar eru 19, en undirbúningur allur hefur að mestu verið í höndum skólastjóra Iðnskólans, sem jafn- framt má þá heita skólastjóri Meistaraskólans. Sveinn Þorvaldsson, kennari, sem er deildarstjóri í byggingar- deild skólans, hefur haft daglega umsjón með fram- vindu mála. Innritun fór fram á skrifstofu Iðnskólans og voru skólagjöld greidd þar, eins og venja er til, en kennslugjald var ákveðið kr. 1000,00 að þessu sinni. Það sem kennt hefur verið í skólanum má flokka á eftirfarandi hátt, og er um leið getið þess kennara eða þeirra, sem önnuðust kennsluna. 1. Iðnlöggjöf, félagssamtök iðnaðarmanna, skaða- bótaréttur, einkamálaréttur o. fl. - Kennari Bragi Hannesson, bankastjóri. 2. Byggingarefni, byggingaraðferðir, steinsteypa, járnlagnir, timburhús, tilraunir. - Gunnar Sigurðs- son, verkfræðingur. 3. Kostnaðarreikningur, tilboðsútreikningar, áætlan- ir. - Daníel Einarsson, byggingafræðingur. TÍMARIT IÐNAÐARMANNA 9

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.