Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1963, Síða 20
Nýjungar
og notkun þeirra
Betri skrúfjárn
Fjórar cndurbætur hafa nýlega
verið gerðar á skrúfjárnum: Hand-
fang, sem hægt er að smella á, eyk-
ur snúningsgetuna. Tvenns konai
viðfestibúnaður auðveldar skrúfun
á stöðum, sem annars væru óað-
gengilegir, og fyrir stjörnuskrúfjárn
eru hinar tíðu slípanir vegna slits
gerðar auðveldari með því að hafa
legginn af sérstakri gerð.
1. Handfangið er fest á viðeigandi
skrúfjárn til þess annað hvort að
herða á eða losa um skrúfu (mynd),
og breytir því þannig í „skrall“-
skrúfjárn. Hægt er að stilla vinnslu-
stefnuna fyrir hægri og vinstri skrúf-
un og einnig er hægt að festa hana.
Með handfangi þessu verður snún-
ingsgetan um fjórum sinnum meiri
en venjulega og verður það að telj-
ast veigamikill kostur, þegar um
mjög fastar skrúfur er að ræða. Auð-
velt er að losa handfangið af við
venjulega notkun.
2. Þegar skrúfa þarf í aðkrepptri
stöðu er erfitt um vik að halda
skrúfunni réttri meðan hún er að ná
festu. Oft vill skrúfjárnið hrökkva
úr skorunni á skrúfuhausnum. Seg-
ulmögnun skrúfunnar er ófullnægj-
andi lausn, en eftirfarandi gripbún-
aður hefur verið tekinn í notkun:
a) Á enda skrúfjárnsins er hólkur
sem fellur yfir skrúfuna þannig, að
hann þrýstir hcnni með fjaðurspennu
upp að verkefninu, sem unnið er
að. Þetta kemur í veg fyrir að skrúf-
járnið eða skrúfan skriki eða renni
til. Brúnin rennur inn í skoruna á
skrúfuhausnum við léttan snúning
skrúfjárnsins.
b) Annar gripbúnaður vcrkar á
eftirfarandi hátt: Leggur skrúfjárns-
ins er gerður af pípu, sem er hol í
gegn og tengd fjaðurspenna í plast-
handfangi skrúfjárnsins. 1 venjulegri
stöðu er opið ofurlítið skáhallt við
brún skrúfjárnsins, sem gengur niður
í skrúfuskoruna. Með því að þrýsta
þumalfingri á fjöður á handfanginu
er losað um spennuna og hólkurinn
færist fram að brún skrúfjárnsins.
Þetta verður að gerast þegar skrúf-
járnsbrúnin hefur verið sett í skor-
una á skrúfuhausnum.
3. Venjulega eru skrúfjárn með
slitin stjörnublöð aðeins gerð not-
hæf á ný með því að slípa þau upp
nokkrum sinnum. Á nýja skrúfjárn-
inu er verulega dregið úr þessum
ókosti með þverstykki því, er liggur
eftir endilöngu járninu. Auk þess
gerir þetta sérstaka krossstykki unnt
að beita skrúflykli til hjálpar við að
losa rígfastar skrúfur eða herða vel
að.
Framleiðandi að 1 og 3 er F.
Wegner, Osterbekstr. 43, Hamborg
22.
Framleiðandi að 2a og 2b er Volta
Werkzeugfabrik, Alfred Frenzel
KG, Hohensachsen bei Mannheim,
Þýzkalandi.
I.T.D. nr. 0451
Nytsamur hjarastigi
Stigi með hjarasamskeytum er nú
fáanlegur og kemur víða í góðar
þarfir. Hann er 4 metrar að lengd
og gerður úr fjórum stykkjum, sem
tcngd eru saman með hjörum á
þremur stöðum. Þegar hann er fel'd-
ur saman, tekur hann aðeins 100X43
X29 cm rúm, og þar sem hann er
gerður úr alúm-málmblendi, vegur
hann aðeins 18 kg. Það er því auð-
velt að bera hann í hendi sér eða
flytja hann í farangursgeymslu b:f-
reiða.
Myndin sýnir nokkrar af þeim
notkunaraðferðum, sem hægt er að
beita með stiganum, í sumum tilfell-
um með aðstoð skorðubúnaðar, sem
auðvelt er að festa við hann. Með
því að fella hann saman um miðju,
fáum við standtröppur með sjö
þrepum hvorum megin. Með því að
tvífella hann, fáum við vinnupall,
sem við getum auðveldlega stillt í
mismunandi hæð. Upp að dyrunum
hallast stigi, sem felldur hefur ver-
ið saman til flutnings.
Stiga þessa er
einnig hægt að fá
úr styrktu „poly-
ester“.
Framleiðandi er
Wenger-Export,
Murrhardt,
Wúrtt., Postfach
41, Þýzkalandi.
I.T.D. nr. 0577
20
TÍMARIT IÐNAÐARMANNA