Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1977, Blaðsíða 17
Ræða
Gimnars
Thoroddsens
iðnaðarráðlierra
við setningu 37. iðnþings
Ný iðnað'arlög
Iðnaðarlöggjöfin, lögin um iðju og iðnað, er að
meginstofni hálfrar aldar gömul. Endurskoðun og
endurnýjun er tímabær.
Nýtt frumvarp til iðnaðarlaga hefur nú verið
samið og verður lagt fyrir Alþingi í haust. í nefnd
þeirri, sem á vegum iðnaðarráðuneytis hefur
unnið að því máli hefur Landssamband iðnaðar-
manna átt tvo fulltrúa, þá Sigurð Kristinsson,
forseta Landssambandsins og Björgvin Frederik-
sen, fyrrverandi forseta Landssambandsins. Þetta
frumvarp verður til umræðu nú á Iðnþinginu.
Meðal nýmæla, sem felast í frumvarpinu má
nefna:
1. Tekið er upp sameiginlegt heiti, iðnaður, sem
tekur bæði til handiðnaðar og verksmiðjuiðn-
aðar.
2. Nokkuð eru rýmkaðar heimildir meistara til
að ráða óiðnlært fólk til iðnaðarstarfa og sama
gildir um heimild starfsmanna stofnana og fyr-
irtækja til að annast minniháttar viðhald á
eignum þessara aðila. Eru breytingar þessar í
samræmi við þær venjur er tíðkast í þessum
efnum í dag.
3. Þá eru skýrari ákvæði um skilyrði, er uppfylla
þarf til þess að leysa meistarabréf og m. a.
gert ráð fyrir að ljúka þurfi meistaraprófi í
iðninni frá meistaraskóla. Á meðan meistara-
skóli er ekki í iðninni, á að vera unnt að leysa
meistarabréf, hafi viðkomandi unnið undir
stjórn meistara í iðngreininni eða nátengdri
iðngrein, að loknu sveinsprófi, eigi skemur en
tvö ár.
Byggingariðnaður
Byggingariðnaður og hvers konar mannvirkja-
gerð er mikilvægur þáttur í atvinnustarfsemi okk-
ar. Er áætlað, að 12% mannaflans í landinu starfi
að þessari atvinnugrein. 25—30% fjárfestingar á
ári hverju mun vera fólgin í byggingu íbúðarhús-
næðis. Það gefur auga leið, að góð nýting fjár-
magns og hagkvæmar framleiðsluaðferðir skipta
þjóðina miklu máli.
Á síðasta Iðnþingi greindi ég frá þeim athug-
unum, sem þá stóðu yfir á þörf fyrir íbúðarhús-
næði á næstu árum. Þessum athugunum er lokið.
í janúar s.l. gaf Framkvæmdastofnun t'it íbúðaspá
til ársins 1985. I meginatriðum eru niðurstöður
þær, að þörf sé fyrir 24.000—28.000 nýjar íbúðir
á tímabilinu 1976—1985 eða 2.400—2.800 nýjar
íbúðir á ári að meðaltali. Ástæða er til að vekja
athygli byggingariðnaðarmanna á þessari skýrslu
og hinum stórfelldu verkefnum í byggingariðn-
aði á komandi árum.
Það er eitt brýnasta hagsmunamál hverrar fjöl-
skyldu, að fyrir hendi sé á hverjum tíma nægilegt
og stöðugt framboð húsnæðis við hagkvæmu
verði. Ávallt fara fram umræður um það, hvaða
leiðir sé unnt að fara til lækkunar á byggingar-
kostnaði. Þeim árangri ber að fagna, sem náðst
TÍMARIT ÍÐNAÐARMANNA
11