Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1977, Blaðsíða 25
Þingfulltrúar að störjum. Séð yfir hluta salarins.
Lagði Vigfús til að 3. valkostur yrði samþykkt-
ur með breytingum um hámarksfjölda fulltrúa
frá einu féalgi, sem skyldi vera tíu og lágmark
aldrei færri en tveir.
Umræður urðu nokkrar og kom fram breyt-
ingartillaga við lagabreytingarnar, sem síðar var
dregin til baka. Tillaga nefndarinnar var að
loknum umræðum samþykkt samhljóða.
í umræðum tóku til máls, auk framsögumanns,
og sumir tvisvar: Ásgrímur P. Lúðvíksson, Krist-
inn Kristinsson, Gunnar S. Björnsson, Gestur
Pálsson, Skúli Sívertsen, Sveinn Sæmundsson, Sig-
urður Kristinsson og Haraldur Sumarliðason.
Fjárhagsáœtlun 1978 og 1979
Gunnar S. Björnsson var framsögumaður og
lagði meirihluti fjármálanefndar til að fjárhags-
áætlunin yrði samþykkt óbreytt. Einn nefndar-
manna greiddi áætluninni ekki atkvæði sitt. Eng-
inn óskaði að ræða áætlunina og var hún borin
undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
Heiðranir
Forseti Landssambands iðnaðarmanna, Sigurð-
ur Kristinsson, lagði fram tillögu stjórnar um að
sæma Ola Frost, múrarameistara frá Þrándheimi
í Noregi, gullmerki Landssambandsins og að
kjósa Ingólf Finnbogason, byggingameistara,
Reykjavík, heiðursfélaga Landssambandsins. Fór
Sigurður nokkrum orðum um störf þessara
manna að iðnaðarmálum. Fór síðan fram at-
kvæðagreiðsla samkvæmt lögum og voru tillögur
þessar samþykktar samhljóða með 77 atkvæðum.
Framkvæmdastjóri, Þórleifur Jónsson, las nú
upp skeyti sem borist hafði frá Finnlandi, en þar
voru staddir fulltrúar rafiðnaðarins, þeir Gunnar
Guðmundsson og Árni Brynjólfsson ásamt frúm.
Þá óskaði Þórleifur tveim þingfulltrúum til ham-
ingju með afmæli, sem þeir áttu ])ennan dag, þeir
Siguroddur Magnússon og Sigurður Kristinsson.
Var þessu öllu fagnað með kröftugu lófataki.
Fundi því næst frestað og gert matarhlé.
Fundi fram haldið kl. 14 s.d. undir stjórn Ing-
ólfs Jónssonar og gaf hann formanni kjörnefndar,
Birgi Guðnasyni, orðið. Birgir lýsti tillögum
kjörnefndar um forseta Landssambands iðnaðar-
manna til næstu 2ja ára og tillögu um varaforseta,
svo og tillögu um varamenn þeirra. Þá kynnti
Ingólfur tilnefningar frá aðildarfélögum um
stjórnarmenn og varamenn. Næst kynnti Birgir
tillögur um 10 menn í Sambandsstjórn og Ingólf-
ur kynnti tilnefningar frá aðildarfélögunum um
10 menn í Sambandsstjórn. Birgir lagði fram til-
lögu kjörnefndar um tvo menn í stjórn Almenns
lífeyrissjóðs iðnaðarmanna og endurskoðendur
sjóðsins, svo og endurskoðendur Landssambands
TÍMARIT IÐNAÐARMANNA
19