Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1977, Page 51

Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1977, Page 51
Stjóm jélagsins: Hannes Vigjússon varajorm., Ástvaldur Jónsson meðstjórnandi, Gunnar Guðmundsson jormaður, Guðjón A. Ottósson ritari og Þórarinn Helgason gjaldkeri. telji að mikil ríkisafskipti sé ekki það er okkur vanti. Félagsstarfið hefur oftast verið blómlegt. Árs- hátíðar er félagið búið að lialda í 20 ár og í fjölda ára liefur nýsveinum verið boðið til að taka við sveinsbréfum sínum. Mikil samskipti hafa verið um áraraðir við „kollega“ okkar á hinum Norð- urlöndunum. Um áraraðir hafa rafverktakar komið saman á miðvikudagsmorgnum til kaffi- drykkju. Þarna kemur ætíð allstór hópur og ræð- ir heimsmálin, innlend stjórnmál og jafnvel fé- lagsmál af mikilli innlifun. Ein og ein veiðisaga fylgir með sem krydd. Lengi vel var þessi kaffisel- skapur í Naust, en eftir að félagið eignaðist sitt eigið húsnæði hefur það ætíð verið þar. Árið 1963 keyptum við ásamt Landssambandi ísl. rafverktaka húseignina Hólatorg 2. Þá skorti okkur 200 þús kr. til útborgunar á eigninni, en þá upphæð lagði VSÍ fram. Töldu forsvarsmenn rafverktaka þetta vera lán, tryggt með eignaraðild sem ekki ætti að standa til frambúðar. En hér sannast sem oft áður, að dýrt er að vera fátækur, því að nú er loks var gengið frá þessum málum, 13 árum seinna, urðum við að gjalda 8 millj. fyrir þær 200 þús. kr. sem okkur skorti við kaupin. „Sælt er að vera fátækur,“ sagði skáldið frá Fagra- skógi. En það er nú okkar reynsla að með nokkr- um trega sé sú sæla blandin, a. m. k. á stundum. En nú eiga samtök rafverktaka liúseignina alla og yfir því gleðjumst við. Næsti áfangi er að fá lóð fyrir alla starfsemina, en hún er bæði félagsleg og viðskiptaleg, þar sem samtökin reka sitt eigið söluumboð, sem hefur vaxið og dafnað ár frá ári, og er feiknalegur styrkur félagslega og fjárhagslega að hafa það. Nú hefur borgarstjórinn í Reykjavík, Birgir Is- leifur Gunnarsson, heitið okkur því að hann skuli beita sér fyrir því að við munum fá lóð í öðrum áfanga Nýja miðbæjarins, sem geti rúmað alla okkar starfsemi, fyrir það erum við borgar- stjóra mikið þakklát. Ég mun ekki tíunda mikið meira úr sögu fé- lagsins hér, þar sem ákveðið liefur verið að gefa út í tilefni af 50 ára afmæli félagsins, sérstakt af- mælisrit, þar sem saga félagsins verður rakin nokkuð. Einnig höfum við ákveðið í stjórninni að hefja söfnun á helstu æviatriðum félagsmanna frá upp- hafi. Hefur Gissur Pálsson verið ráðiii til þess starfs. Góðir gestir, ég fer nú að ljúka máli mínu. Þá ósk á ég til handa félaginu á þessum tímamótum, að við sínum þann þroska að standa saman um málefni stéttarinnar. Því á þann hátt einan næst árangur. Á þann hátt vinnum við best að þeim hugsjónum sem stofnendur félagsins höfðu að leiðarljósi fyrir 50 árum. Kynningarfundur Framh. af bls. 41 Margs konar fyrirspurnir voru lagðar fyrir ræðumenn, sem jafnan gáfu greið svör. Að um- ræðum loknuni afhenti Ragnar S. Halldórsson undirrituðum, f. h. Iðnskólans í Reykjavík þau rit, sem legið höfðu frammi, til notkunar fyrir kennara og aðra sem vildu kynnast málefninu nánar. Liggja þau nú frammi í bókasafni skólans í þessum tilgangi. Að loknu ráðstefnuhaldi bauð SkanAl til veg- legs kvöldverðar að Hótel Sögu, nokkuð sem mæltist mjög vel fyrir meðal ráðstefnufulltrúa, enda var þar stofnað til nánari kynna milli ein- stakra þátttakenda, svo og við gestgjafa. Voru menn á einu máli um, að vel liefði til tekist með þetta ráðstefnuhald og þátttakendur stórum fróðari um ál og notkunarmöguleika hins „ljósa málms“ í iðnaði, húsagerð og listsköpun, en áður. Þór Sandholt. TÍMARIT IÐNAÐARMANNA 45

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.