NT - 10.01.1985, Side 22
Enskir punktar:
■ Úr hlaupinu fræga á ÓL. Budd er fremst og Decker sú rauðklædda við hlið hennar. Ljósa hárið
fyrir aftan Budd er í eigu Puica, sigurvegarans.
_____________________________Fimmtudagur 10. janúar 1985 22
íþróttir
Umsjón:
SamúelÖrnErlingsson
(Ábm.),
ÞórmundurBergsson,
Gylfi Þorkelsson.
■ Eder: Á í vandræðum.
Frjálsar íþróttir:
Decker og Puica
- í sama hlaupinu
á móti í Bandaríkjunum 9. febrúar
Ólympíumeistarinn í 3000
in hlaupi kvenna, Maricica Pu-
ica frá Rúmeníu mun taka þátt
í bandarísku boðsmóti sem
fram fer í East Kutherford,
New Jersey þann 9 febrúar.
Ekki þar fyrir að það sé svo
merkilcgt en það sem merkilegt
er við þetta mót er að Mary
Decker, hlaupastjarnan handa-
ríska, mun taka þátt í þessu
móti líka.
I*ær kempur munu því mæt-
ast á hlaupabrautinni í ISOOm
hlaupinu á mótinu og er það í
fyrsta sinn síðan á ÓL sem
þessar stúlkur keppa við hvor
aðra. Eins og menn rámar í þá
var það 3000m hlaupið á OL
sem olli hvað mestu umtali.
Þar rákust saman Decker og
Zola Budd með þeim afleiðing-
um að Decker féll úr keppni og
Puica náði að sigra í hlaupinu.
Þá verður einnig ineð, í
hlaupinu í East Rutherford,
Nadyezhda Raldugina frá So-
vét en hún átti besta tímann í
1500m hlaupi utanhúss á síð-
asta ári. Eru nú margir farnir
að spá því að heimsmet falli
þann 9 febrúar.
ungi hjá Portsmouth, er kom-
inn undir smásjárnar hjá stóru
liðunum. Alan Ball vill gera
allt til að halda í strákinn - en
hver má við pcningavaldinu?
Chile-búar í vandræðum
■ Knattspyrnuyfirvöld í
Chíle leita nú dauða-
leit að nýjum þjálfara fyrir
knattspyrnulandslið sitt. Nú
eru aðeins tæpir tveir mán-
uðir þar til Chile-búar spila
sinn fyrsta leik í undan-
keppninni fyrir heimsmeist-
arakeppninna í Mexíkó
1986.
Vicente Cantatore, Arg-
entínumaður sem var þjálf-
ari landsliðsins, sagðist ekki
geta haldið áfram með liðið
með þeim skilmálum sem
knattspyrnusambandið setti
honum. Cantatore hefurnáð
góðum árangri með félags-
liðið Cobreloa og var boðinn
áframhaldandi samningur
með landsliðið. Sá samning-
ur var til stutts tíma og ekki
ýkja háar greiðslur í boði,
Hann hafnaði þessum samn-
ing og eru Chilemenn nú
þjálfaralausir.
Mikill upplausn hefur átt
sér stað í knattspyrnumálum
í Chíle eftir að fyrrum forseti
knattspyrnusambandsins var
rekinn frá. Hann var fundinn
sekur um að hafa stundað
fjárdrátt. Nýr formaður, Mig-
uel Nasur, hefur ásamt ríkis-
stjórn landsins reynt að finna
einhverja lausn á vandamál-
um sem knattspyrnuíþrótt-
in á við að etja í Chíle.
Chile-búar eru í riðli með
Ecuador og Uruguay í und-
ankeppni heimsmeistara-
keppninnar.
um Neil Webb hjá Portsmouth - Ball hækkar verðið
... Varnarmaðurinn Paul
Ramsey hjá Leicester setti um
daginn nýtt met sem landsliðs-
maður fyrir N-íra. Hann hefur
spilað fjóra landsleiki og verið
sigurvegari í þeim öllum. Þó
ótrúlegt sé þá hefur engum
öðrum landsliðsmanni hjá N-
írum tekist að sigra í sínum
fyrstu fjórum landsleikjum...
. ..Mick Channon hjá Norwich
skoraði um daginn heldur
óvenjulegt „hat-trick“ þegar
veðhlaupahestur sem hann á
sigraði í þremur hlaupum í röð.
Hesturinn, Jamesmead, á nú
möguleika á að keppa á Chelt-
enham-veðreiðunum - einkon-
ar Wembleykeppni veðreið-
anna...
. . .Svo mikið varð Tony Parks,
varamarkverði Tottenham um
er Gary Stcvens skoraði mark í
UEFA-keppninni í móti Bo-
hemians frá Prag að hann stökk
á fætur til að fagna. Hann hefði
betur setið kyrr því hann rak
bakið uppí þakið á vara-
mannabekkum og var frá
keppni næstu tvær vikurnar...
...Alan Ball, framkvæmda-
stjóri Portsmouth, er staðráð-
inn í að halda í einn sinn besta
leikmann, Neil Webb, sem spil-
að hefur með landsliðinu undir
21 árs. Stóru liðin Tottenham,
Man Utd. og Arsenal ásamt
Liverpool, eru farin að renna
hýru auga til Webb. Njósnarar
frá þessum félögum hafa verið
á Fratton Park að undanförnu
til að skoða piltinn. Ball hefur
því ákveðið að hækka á honum
verðið og eru nú sett á Webb,
500 þúsund pund..
...Ef svo vildi til að Robert
Walters yrði einhvern tíma at-
vinnumaður í knattspyrnu þá
yrði nokkuð erfitt að ná af
honum knettinum. Robert
þessi sem er frændi Mark Walt-
ers hjá Aston Villa setti nýlega
nýtt heimset í að halda fót-
knetti á lofti. Hann hélt boltan-
um frá jörðu í 13 klukkustundir
og 2 mínútur í alls 70 þúsund
skipti - hreint ótrúlegt...
...Fyrrum þjálfari skoska
landsliðsins í knattspyrnu, Ally
MacLeod er maður spaugsam-
ur. Hann er nú við stjórnvölinn j
hjá Airdrie og er liann mætti í
viðtal við stjórnarformann
liðsins, lan Ferguson, þá grín-
aðist hann svolítið. Ferguson
sem er 72 ára sagði við Ally,
„Ég vil að þú gerir eitthvað
fyrir Airdrie áður en ég dey“.
Ally svaraði að bragði: „Þú gef-
ur mér ekki mikinn tíma. .
Enska
bikarkeppnin:
Rannsókn
■ Enska knattspyrnus-
ambandið hefur ákveðið
að láta fara fram rann-
sókn á atviki sem átti sér
stað í leik Burton Albion
og Leicester á Baseball
Ground í Derby í þriðju
umferð ensku bikar-
keppninnar. Atvikið var
með þeim hætti að þegar
staðan í leiknum var 1-1
þá var kastað spítu í
höfuðið á markverði
Burton. Burton tapaði
svo leiknum 1-6.
Rannsóknin mun fara
fram á föstudaginn og ef
ástæða þykir mun leikur-
in verða spilaður aftur.
Kaunas vann
■ Sovéska körfuknatt-
leiksliðið Zhalgiris Kaun-
as sigraði spænska liðið
Cai Zaragoza í undanúrs-
litum Evrópukeppni
bikarhafa í körfuknatt-
leik í fyrrakvöld. Leikn-
um lauk 95-90 en staðan í
hléi var 48-46 fyrir Spán-
verjana.
Frjálsar íþróttir:
Quinon ekki með
- á heimsmeistaramótinu inni
■ Franski ÓlympíiK-
meistarinn í stangarstökki
Perre Ouinon mun ekki
geta keppt á heimsmeist-
aramótinu innanhúss sem
fram fer í París síðar í
þessum mánuði vegna
meiðsla í hné.
Keppni Quinon við Serg-
ei Bubka frá Sovétríkjun-
um átti að vera einn af
hápunktum leikana en nú
er Ijóst að ekkert verður af
þeirri keppni. Bubka
keppti ekki á ÓL vegna
fjarveru Sovétmanna og
voru menn því farnir að
bíða þessa móts með til-
hlökkun,
Eins og NT skýrði frá í
gær þá verða fleiri stjörnur
fjarverandi á þessu móti,
m.a. Carl Lewis, Mary
Decker og fl.
STORLIÐIN NJOSNA
| ÍHSÚTTiR
Knattspyrnupunktar:
Blindir markverðir
- ný aðferð í Brasilíu
■ Zenith sigraði í sovésku
deildarkeppninni í knatt-
spyrnu. Liðið sigraði Kharkov
í úrslitaleik 4-1.. .FAS frá Santa
Ana sigraði í deildinni í El
Salvador, í úrslitaleik vann lið-
ið sigur á Aguila 2-0...Þá sigr-
aði Guarani í Paraguay í fyrsta
sinn síðan 1969-liðið sigraði
Olimpia í úrslitaleik 4-2...
■ Allt er farið að snúast við í
þessum heim. Eftir að hafa
fylgst með leikmönnum frá
Bretlandi og Evrópu fara í
stríðum straumum til Banda-
ríkjanna til að spila knatt-
spyrnu þá hefur straumurinn
byrjað að stefna í hina áttina.
Karlsruher í v-þýsku búndes-
lígunni varð fyrsta liðið til að
skrifa undir samning við leik-
mann frá Bandaríkjunum. Sá
heitir Peter Scouras og kom frá
San Diego...
■ Basilískir knattspymuþjálf-
arar hafanútekiðuppáþvívið
þjálfun á markvörðumað láta
binda fyrir augun á þeim til að
gera þá viðbragðsfljótari.
„Þetta virkar" segir Paulo Vitor
þjálfari Fluminense sem fyrstur
reyndi þessa aðferð...
■ Brassin Eder sem gerði það
gott í síðustu heimsmeistara-
keppni með brasilíska landslið-
inu á nú yfir höfði sér fangelsis-
vist fyrir að hóta útvarpsfrétta-
manni öllu illu í símtali eftir að
fréttamaðurinn hafði talað um
persónuleg málefni Eders.
Þetta er þó ekkert því knatt-
spyrnukappinn Hasan Gomali
frá Sómalíu situr nú í lífstíðar-
fangelsi fyrir kókaín-smygl...