Vikan - 17.05.1956, Síða 2
Viltu birta fyrir mig dœgurlaga-
textan, sem „El Baion, el Baion“
lcemur alltaf öðru hverju fyrir í.
SVAR: Þú munt eiga við dægurlag,
sem Haukur Morthens syngur og ku
heita Carmen Síta. Það er svona:
Carmen síta, — er svalandi blær
fer um súlnagöng, hljóður og vær,
þá berst rödd þín um rökkurmyrkt
svið.
E1 Baion, el Baion, el Baion.
Og við strengjanna stefmjúka klið,
er þú stígur þinn svifhraða dans,
ólgar blóðið i æðum hvers manns.
E1 Baion, el Baion, el Baion.
Ó — el Baion.
Allir vita að við unnum hvort öðru.
Ó —- el Baion.
Allir vita, að við • elskum Baion.
Carmen sita —• hin suðræna nótt,
þrungin seiðtöfrum, hvíslandi rótt,
vefur súlnagöng, svalir og rið.
E1 Baion, el Baion, el Baion.
En við strengjanna stefdulda klið,
þegar stjarnan við kýpruslauf skín.
Carmen síta, — hin suðræna er mín.
E1 Baion, el Baion, el Baion.
Ó, — el Baion.
Allir vita að við unnum hvort öðru.
Ó, — el Baion.
Allir vita, að við elskum Baion.
L. Guðmundsson.
Við höfum mikinn áhuga á sauma-
skap, og okkur langar til að vita
hvort ekki er til skóli, sem kennir
bara að sníða og taka mál. Viltu þá
segja okkur hvar hann er á landinu
og á hvaða tíma árs hann starfar og
hvað muni kosta að vera í honum.
SVAR: Ýmsar saumakonur kenna
að sníða fatnað. Þið getið fundið nöfn
þeirra í símaskránni (undir yfir-
skriftinni ,,Sniðkennsla“) og í Við-
skiptaskránni (Einara Jónsdóttir,
simi 1954). Kennslutíminn og
kennslugjaldið er vafalaust eitthvað
misjafnt, svo það er hentugast fyrir
ykkur að velja ykkur kennara og
fá svo upplýsingar hjá honum sjálf-
um. 1 hvorugri þessari skrá er minnzt
á sníðakennara úti á landi, heldur
aðeins í Reykjavík.
SVAR til Sigríðar: Það þýðir ekki
að biðja Vikuna um að setja beiðni
um bréfasambönd í önnur blöð, hvorki
útlend né innlend. Við höfum ekki
starfslið til að annast slikt.
SVAR til Seep: Það fer eftir því
hvað þú átt að gera á skrifstofu,
hve mikla menntun þú þarft að hafa.
Hugsar þú þér t. d. að svara í síma,
vélrita eða fást við bókhald? Þetta
tvennt síðastnefnda hentar þér lík-
lega ekki, þar sem réttritunin hjá þér
er vægast sagt heldur léleg. Hug-
myndaflugið virðist heldur ekki vera
upp á marga fiska, úr því þér dettur
ekki í hug hvert þú átt að snúa þér,
til að sækja um vinnu á ákveðinni
skrifstofu.
En það er engin skömm að fá-
fæðinni, ef við erum menn til að
viðurkenna hana og bæta úr henni.
Við stingum því upp á því að þú
farir í réttritunar, eða vélritunar tíma
eða einhverja aðra tima, en fáir þér
eitthvert létt starf, sem þú ræður við
á meðan. Gangi þér sem bezt.
Viltu gjöra svo vel að segja mér
svolítið um danska leikarann Ib Moss-
in. Hvað er hann gamall? Hefur hann
leikið í einhverri kvikmynd, sem hef-
ur verið sýnd hér á landi. Geturðu
gefið mér heimilisfang hans ?
SVAR: Ib Mossin er 23 ára gamall.
Hann á afmæli 3. júlí. Við munum
ekki eftir að hafa séð neina mynd
með honum hér, en i næstu kvik-
mynd sinni leikur hann tvíburabróð-
ur Ebbe Langberg, og það er því
búið að klippa þá nákvæmlega eins.
Við höfum ekki utanáskrift hans,
en það er reynandi að skrifa honum
e/o Asa, Kobenhavn.
Lítil lömuð stúlka skrifaði Ib Moss-
in og bað hann um mynd, eins og
þú ætlar sennilega að gera. Ib fór
sjálfur á sjúkrahúsið til hennar með
myndina og nú gengur hann alltaf
öðru hverju við hjá Vivi, en svo
heitir telpan, og masar við hana til
að stytta henni stundir. Verst að það
skuli vera svona langt til íslands!
Viltu gjöra svo vel og gefa okkur
heimilisfang Janet Leigli og segja
okkur eitthvað um hana. Hvernig eig-
um við að orða br'éf til hennar. Við
œtlum að biðja hana um áritaða
mynd ?
SVAR: Við höfum að vísu birt
heimilisfang Janet Leigh oft áður,
en hér kemur það enn einu sinni:
c/o Metro Goldwyn Mayer Studios,
Culver City California. U.S.A. For-
skriftin að slíku bréfi á ensku var
birt í 6. tbl. Vikunnar, sem kom út
í febrúar.
Nýjustu fréttir af Janet Leigh
herma, að hún eigi von á barni, sem
ku eiga að fæðast um mitt sumar.
Og rætt hefur verið um að hún muni
kannski hætta að leika, þar sem hún
er heldur veikbyggð og hefur að
undanförnu þolað illa fei'ðalög og alls
kyns erfiði, sem kvikmyndaleik er
samfara. En í vetur hafa maður henn-
ar Toni Curtis og hún verið að leika
í Evrópu, annað í París, en hitt í
London.
Viltu birta fyrir mig „I fyrsta sinn
ég sá þig.“
SVAR: Magnús Ásgeirsson þýddi
þetta ljóð. Lagið er eftir B. Sjöberg.
1 fyrsta sinn ég sá þig um sumar-
fagran dag,
er sólin skein um morgunbjartan
geim
og blómin stóðu litskær um land og
hlíðardrag
og lutu saman höfðum tveini og tveim
og blærinn leið svo blitt og rótt um
bláan vog að landi
og báran hlý um kuðung straukst í
fjöruborðsins sandi.
1 fyrsta sinn ég leit þig um fagran
sumardag,
þá fyrsta sinn við tengdumst hand-
arbandi.
Og ennþá er ég sé þig, þótt vetrar-
kvöldin hljóð
með voðum hvítra fanna byrgi land,
ég heyri sumarblæinn og fuglsins
ljúflingsljóð
og litla báru, er niðar hægt við sand.
Mér er sem rísi grundin græn af
gömlum draumabeði
og gleymmérei og smáralauf að elsk-
endanna geði,
og andlit þitt mér brosi með ró við
röðulglóð
og roðni,. ljómi og tendri mína gleði.
Mig langar til að spyrja um svolít-
ið, sem ég lief áhuga á.
1. Hvert á maður að snúa sér til
að scekja um slcólavist í Húsmœðra-
skóla Suðurlands að Laugarvatni?
2. Hve snemma þyrfti ég að sœkja
um fyrir nœsta vetur?
3. Hvað mun það kosta?
SVAR: Sendu forstöðukonunni,
Jensinu Halldórsdóttur, umsókn þina,
og hún gefur þér sjálfsagt upplýsing-
ar um kostnaðinn. Við vitum ekki
fyrir hvaða tíma umsóknir þurfa að
berast, en það er vissara fyrir þig
að senda umsóknina þína sem fyrst
þar sem alltaf hefur verið mikil
aðsókn að þessum skóla.
Mig langar til að leggja fyrir þig
nokkrar spurningar, ef þú vildir gjöra
svo vel og svara þeim:
Er Iðnskóli starfandi á Laugar-
vatni? Er hægt að taka alla bekkina
sama veturinn ....
SVAR: Okkur er ekki kunnugt um
neinn Iðnskóla á Laugarvatni. Þar
eru nú, eftir því sem við bezt vitum,
fjórir skólar: menntaskóli, héraðs-
skóli, íþróttakennaraskóli og hús-
mæðraskóli.
Mig langar til að biðja þig um að
birta fyrir mig utanáskriftina hans
Mario Lanza (söngvara), ef þú mögu-
lega getur.
SVAR: Mario er nýbúinn að semja
aftur við kvikmyndafélag sitt, Warn-
er Brothers (Burbank, Califomia,
U.S.A.) um að leika í nýrri mynd og
þeir eyða of f jár í að reyna að halda
honum hæfilega grönnum.
Mario, sem er 125 sm. yfir brjóstið
og oftast ennþá meira yfir miðjuna,
vaggaði út í miðri myndatöku á kvik-
myndinni „The Student Prince“ fyrir
nokkuð löngu og var brátt orðinn blá-
fátækur, úttútnaður og hás. Þegar
hann loks áttaði sig, svelti hann sig
og réði sig aftur i vinnu, en var þá
of veikburða til að syngja. Nú er
hafður mikill viðbúnaður, til að halda
honum hæfilega grönnum, án þess
þó að hann sé máttvana af hungri,
svo að hann geti farið að leika og
syngja aftur, eins og áður er sagt.
FORSÍÐUMYNDINA
tók Ólafur Magnússon.
BRÉFASAMBÖND
Birting á nafni, aldri og hcimilisfangi
kostar 5 krónur.
Agnes Svavarsdóttir, Kaupvangs-
stræti 23 og Ríkey Guðmundsdóttir,
Aðalstræti 76 (við pilta eða stúlkur
15—16 ára), báðar á Akureyri —
Bára Ólafsdóttir, (við pilta 14—18
ára), Haukagili Hvítársíðu, Mýr. —
Kristján Þ. Ólason og Brynjólfur
Kristinsson, Rafstöðinni Fossum
(við pilta eða stúlkur 17—19 ára),
báðir á Isafirði.
MUNIÐ
NDRA MAGA5IN
BAUNA KRAFTSÚPA
Reyníð hina hressandi og
bragðgóðu súpu, búna til
úr völdum HOLLENSK-
UM grænum baunum.
Biðjið nm „H0NIG“ sápnr
ES26
Hver pakki inniheldnr efni 4 4
diska
HEILDSÖLUBIRGÐIR :
Eggert Kristjánsson & Co. h.f.
Útgefandi VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gísli J. Ástþórsson, Tjamargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.