Vikan - 17.05.1956, Blaðsíða 3
ALDREI HEFUR LÖGREGLU-
>» • •
MAÐUR LENT I OÐRU EINS!
ÞAÐ ER EKKERT SPAUG AÐ GANGA I SVEFNI - Eftir JOHM ST. CLARE
ROBERT LEDRU, einn af kunnustu
starfsmönnum frönsku leynilögregl-
unnar, var í fríi í Le Havre.
Hann hafði verið veikur upp á síðkast-
ið. Hann hafði lagt of hart að sér við
vinnuna og fengið taugaáfall. Læknir
hans hafði ráðlagt honum að taka sér að
minnsta kosti mánaðar frí frá störfum.
Einn morguninn, þegar Ledru vaknaði
af tólf tíma svefni, uppgötvaði hann, þeg-
ar hann byrjaði að klæða sig, að sokk-
arnir hans voru rakir. Honum fannst það
skrítið, en hugsaði ekki meira um það í
það skiptið.
Nokkru eftir hádegisverð fékk hann
skeyti frá yfirmanni sínum í París. I
skeytinu var honum tjáð, að maður hefði
verið skotinn til bana á ströndinni við
Saint Addresse. Hinn myrti hafði sýnilega
ætlað að fá sér sjóbað um miðnætti.
Leynilögreglan spurði, hvort Ledru vildi
taka að sér að aðstoða lögregluna á staðn-
nm, við lausn málsins.
Ledru komst að því, að hinn myrti hafði
ekki verið ríkur og að hann hafði átt
marga vini en enga hatursmenn. Fötin
hans lágu þar sem hann hafði skilið við
þau á baðströndinni; það voru peningar
í vasa hans og gullúr, en hvorugt hafði
verið snert. Morðið virtist framið gjör-
samlega að tilefnislausu.
Það eina, sem lögreglan hafði við að
styðjast, voru fótaför, sem augljóst var
að voru eftir morðingjann. Förin voru
mjög skír 1 sandinum, og svo var að sjá
sem maðurinn, sem þau tilheyrðu, hefði
verið á sokkaleistunum.
Skotvopnasérfræðingar upplýstu, að
morðkúlunni hefði verið skotið úr Luger
skammbyssu, algengri byssutegund, sem
lögreglan meðal annars notaði.
Ledru athugaði förin — og svo greip
hann ægilegur uggur. Á annað fótafarið
vantaði tá — tá á hægri fæti.
Nú skildi hann hversvegna sokkamir
hans höfðu verið rakir. Hann smeygði
H ALLÍ )!
Það hefst ný framhaidssaga í dag á bls. 16. Fylgist með heniii frá byrjun; hún er vel þess virði.
Ilún heitir:
í skugga gál gans
sér tafarlaust úr skónum og steig öðr-
um fæti niður við hlið fótafars morð-
ingjans.
Förin voru nákvæmlega eins!
Ledru lét sækja kúluna, sem fundist
hafði í líkinu, tók skammbyssu sína, skaut
úr henni í poka, sem fylltur hafði verið
með fiðri, og bar síðan þær kúlur saman
við morðkúluna. Það var ekki um að vill-
ast: öllum hafði verið skotið úr sömu byss-
unni.
Hann flýtti sér til Parísar og gekk taf-
arlaust á fimd yfirmanns síns.
,,Ég veit hver myrti Andre Monet,“
tjáði hann honum, ,,og ég hef nægar sann-
anir fyrir sekt hans, en ég hef ekki hug-
mynd um, hversvegna morðið var framið.“
Ledru lagði síðan fram sönnunargögn
sín og yfirmaður hans neyddist að lok-
um til að trúa honum. Við framhaldsrann-
sókn kom í ljós, að Ledru hafði farið sof-
andi út úr hóteli sínu, gengið sofandi
niður á ströndina, skotið Monet sofandi,
snúið aftur heim til hótelsins, farið úr
hinum blautu sokkum og lagst fyrir — án
þess að hafa hugmynd um, hvað hann var
búinn að gera.
Ledru var ekki ákærður fyrir morð.
Þess í stað var hann sendur til dvalar
uppi í sveit, þar sem vörður var hafður
yfir honum, því að hann var hættulegur
almenningi — en aðeins þegar hann svaf.
Hann andaðist fyrir skemmstu 85 ára
gamall, eftir nærri 50 ára dvöl á sveita-
bæ, þar sem gát var aðeins höfð á hon-
um, þegar hann var steinsofandi!
Fyrir nokkrum mánuðum gerðist það
í Kentucky, að 16 ára gamla stúlku að
nafni Jo Ann Kiger dreymdi, að innbrots-
þjófar höfðu brotist inn í hús hennar og
voru að myrða foreldra hennar og syst-
kini.
Hún fór fram úr rúminu, greip tvær
skammbyssur og byrjaði að skjóta. Hún
skaut als tíu skotum í þessu „drauma-
stríði“, drap föður sinn og sex ára gaml-
an bróður og særði móður sína hættulega.
Stúlkan var handtekin og sökuð um
morð, en verjandi hennar sannaði óhrekj-
anlega, að hún hefði oft fengið martröð
áður og hvað eftir annað gengið í svefni.
Þessi framburður, og auk þess sú stað-
reynd, að ákærandinn gat ekki bent á
neina ástæðu fyrir ,,morðunum“, hafði
það í för með sér, að hin ógæfusama
stúlka var sýknuð.
Jafnfurðulegt var mál Johns nokkurs
Cooke í Colorado í Bandaríkjunum, en
hann særði sjálfan sig fjórum djúpum
hnífstungum í svefni. Nokkrum mínút-
um áður en hann gaf upp öndina, vaknaði
liann og tjáði lækninum og hjúkrunarkon-
unni, sem yfir honum stóðu, að hann hefði
dreymt, að hann var umkringdur óvinum,
sem hugðust pynda hann. Hann hafði
veitt sjálfum sér áverkana til þess að kom-
ast hjá pyndingmn!
Hún greip tvær skamm-
byssur og byrjaði að
skjóta . . .
Henry Chancey, 33 ára gamall skrif-
stofumaður í Boston, Bandaríkjunum,
var yfirheyrður í svefni, til'þess að leysa
dularfullt þjófnaðarmál, sem hann vissi
ekkert um ósofandi.
Chancey tilkynnti, að 30,000 dollurum
hefði verið stolið frá fyrirtæki hans, og
leynilögreglan var sannfærð um, að hann
væri þjófurinn. Sönnunargögn voru þó
engin fyrir hendi, og Chancey, sem hafði
orð á sér fyrir heiðarleika og trúmennsku,
var fús til að hjálpa lögreglunni eftir
beztu getu.
Það var af hreinni hendingu sem leyni-
lögreglan komst á sporið. Einn af mönn-
um hennar heyrði kunningja Chanceys
spyrja: „En ertu viss um, að þú hafir
ekki tekið peningana á einni af þessum
svefnferðum þínum?“
Lögreglan fékk það staðfest, að Chancey
hafði árum saman gengið í svefni, og
að hann lenti oft í hinum furðulegustu
ævintýrum á þeim ferðalögum.
Hann gaf lögreglunni fúslega leyfi til
að senda menn heim til hans, sem vöktu
yfir honum þar til hann sofnaði og byrj-
uðu þá að yfirheyra hann vegna peninga-
hvarfsins.
Chancey var greinilega steinsofandi, en
lögreglumönnunum til mikillar furðu, svar-
aði hann öllum spurningum þeirra greið-
lega, og þegar þeir nokkru seinna sögðu:
„Sýndu okkur hvar þú faldir peningana,"
steig hann tafarlaust fram úr rúmi sínu og
gekk út úr húsinu.
Lögreglumennirnir eltu hann átta mílna
leið, uns hann stoppaði, beygði sig og byrj-
aði að róta í mjúkri moldinni. I ljós komu
peningapokamir!
Svo rétti hann úr sér og lagði af stað
hcimleiðis, en cinn lögreglumannanna sló
hann með flötum lófanum í bakið, til þess
að vckja hann.
Eftir nokkrar tilraunir, vaknaði Chan-
cey af hinum djúpa svefni. Hann hafði
hvorln hugmynd um, hversvegna hann var
staddur þarna né hvemig á peningunuzr.
otóð.
O
O