Vikan - 17.05.1956, Síða 6
EITTHVAÐ FYRIR ALLA
A USTURBÆJARBlÓ er nýbúið að fá tals-
verða kvikmyndasendingu. Þar kennir
margra grasa. Tvær þýzkar myndir eru þarna
og báðar æði athyglisverðar. Önnur — Oh, mein
Papa — mun vera íburðarmesta myndin, sem
gerð hefur verið í Þýzkalandi eftir stríð. Hún
er í litum og lýsir ævintýrum og lífi sirkus-
fólks. Hún hefur það meðal annars sér til ágæt-
is að hafa afbragðsleikkonuna Lilli Palmer í
aðalhlutverkinu. Ýmsir muna eflaust eftir henni
í Rekkjunni, sem Stjörnubíó sýndi fram í síð-
ustu viku. Þetta er fyrsta þýzka myndin, sem
Lilli leikur í. Þó er hún fædd í Þýzkalandi. En
hún fluttist ung til Englands og ólst þar upp
Austurbæjarbíó ætlar að sýna Oh, mein Papa
um Hvítasunnuna.
Hin myndin þýzka er Martröð 'minninganna,
byggð á samnefndri sögu, sem gefin var út á
íslenzku ekki alls fyrir löngu. Merkileg mynd,
segja gagnrýnendur. Hún fjallar um líf og for-
tíð stúlku, sem gerist kvikmyndaleikkona.
Þá má geta bandarísku myndarinnar sem
Austurbæjarbíó hefur í fórum sínum. Hún er
byggð á ævi kvikmyndadísarinnar og söngkon-
unnar Grace Moore (sem margir muna eflaust
eftir úr bíó). Kathryn Grayson leikur hana.
Meðfylgjandi myndir eru úr Oh, mein Papa
og Martröð minninganna. Það er þó ekki Lilli,
sem er að „knúsa" karlmanninn á efri mynd-
inni, heldur einn af meðleikurum hennar.
SVAKTUlt A LEIK
A Ð undanförnu hefur verið sýnd í Austurbæj-
arbíói Reykjavíkurrevýa við mjög góða
aðsókn.
Revýan gerizt í tveimur samliggjandi her-
bergjum og matsal á hóteli hér í bænum. I þess-
um herbergjum búa tvenn hjón, alþingismaður
utan af landi og kona hans og útgerðarmaður
og hans frú, sem er rithöfundur. Þessi hjón
lenda svo í ýmsum skemmtilegum æfintýrum, í
svefni og vöku. Þetta er ramminn utan um alls
kyns stað- og tímabundið grín um erlend og
innlénd dægurmál. Guðmundur Sigurðsson hef-
ur samið revýuna og eru vísurnar og mörg til-
svörin bráðsmellin.
Á efri myndinni eru þau Lárus Ingólfsson og
Nína Sveinsdóttir í hlutverkum þingmannshjón-
anna og eru þau að vanda sprenghlægileg. Á
neðri myndinni eru þau Bessi Bjarnason og
Steinunn Bjarnadóttir sem yngri hjónin. Af
öðrum leikurum má nefna Guðmund Jónsson,
sem leikur all svakalegan negrakóng í strápilsi,
Guðnýju Pétursdóttur, sem leikur svarta dótt-
ur hans.