Vikan - 17.05.1956, Síða 14
HE IMIL IÐ
RIÍ'STJÓRI: ELlN PÁLMADÓTTIR
i rigninguiini.
Það rignir svo mikið hér á landi,
eða að minnsta kpsti hér á suður-
landi að áreiðanlega borgar sig að
eiga góðan regnfatnað. Og svo mikið
úrval er nú til af góðum hlífðar-
flíkum, að enginn vandi er að vera
bæði vel og smekkléga búinn.
En sé maður vel klæddur, er rign-
ingin bara skemmtileg, það er að
segja ef henni er ekki samfara rok
og kuldi. Rigningin sjálf hefur líka
góð áhrif á húðina, eri rokið og kuld-
inn þurrka hana, svó að helzt þarl
að bera gott nærandi krem á hana:
að kvöldi slílcra daga til að halda
henni mjúkri.
Jafnvel þó við iendum í rigningu,
þegar við eigum ekki von á henni,
þá er óþarfi að fá rigningarbletti í
fötin sín, ef við gefum okkur aðeins
tíma til að þúrrka þau rétt, þegar
heim er komið.
Hattinn þarf að þurrka með hrein-
um klút, úr hverju sem hann er. Það
eru rigningardroparnir, sem fá að
þorrna inn í efnið, sem eyðileggja
mest. Síðan þarf að hrista kápuna
og þurrka hana líka með þurrum klút,
hvort sem hún er úr efni eða loð-
skinni, áður en hún er hengd á herða-
tré á hlýjum stað, en þó ekki nálægt
hitunartæki.
Regndropar geta eyðilagt leður-
töskur, svo úr því verði aldrei bætt.
Þessvegna þarf líka að þurrka af
töskunni, áður en leðrið þorrnar og
bera síðan á hana góðan skóáburð.
Skinnhanskar þarfnast samskonar
meðferðar og séu þeir teygðir í rétt-
ar skorður, áður en þeir þorrna, verða
þeir síður ijótir við að vökna.
Og þá eru það skórnir. Ykkur
dettur víst ekki í hug, að setja þá
við ofninn, ef þeir eru blautir? Við
það þorrnar leðrið og spryngur. Nei,
þeir eiga að þorrna hægt og svo á
að bera vel á þá skóáburð á eftir.
Þetta vitum við reyndar allt sam-
an en það þarf bara svolítinn sjálfs-
aga, til að smeygja sér ekki úr
bleytunni og fá sér heitan kaffi-
sopa, í stað þess að fara að þurrka
og bjástra, þegar maður kemur inn
úr slagveðrinu.
íslendingar í hæsta
kaloríuflokki.
Samkvæmt hagskýrslum Samein-
uðu þjóðanna fá íbúar eftirtaldra
landa meira en 3000 kaloriur á dag i
mat sínum: Danmörk, Finland,
ísland, Noregur, Sviss, Bretlands-
eyjar og Bandaríkin. 1 næsta kaloríu-
flokki, 2750—3000 kaloríur á dag eru
Svíþjóð, Frakkland, Holland, Belgía,
Vestur-Þýzkaland, Austurríki. Undir
2000 kaloríum eru Japan og Pakis-
tan, Ceylon og Indland.
Sjóður, sem styrkir ungar konur til náms
og varðveitir minningu látinna kvenna.
MENNINGAR OG MINNINGARSJÓÐUR KVENNA hefur
látið gera bók, sem á að geyma myndir og minning-
argreinar um íslenzkar konur. Jafnframt er fyrsta heftið af
minningargreinunum komið út.
Bókin hefst á grein um Bríeti Bjarthéðinsdóttur, sem hún
skrifaði sjálf, og í henni eru margvíslegar sögur kvenna, sem
bjuggu við ólík kjör. Þar er saga þeirrar konu, sem „fínust"
þótti á íslandi á sínum tíma og þar er saga konu, sem gekk
austan úr sveit með aleiguna á bakinu og son sinn sjö ára
sér við hlið.
Söfnun greinanna gengur þannig fyrir sig, að þeir sem
viíja láta varðveita minningu einhverrar konu í bókinni,
senda mynd og grein og gefa upphæð til minningar um
hina látnu konu, stóra eða smáa, eða að minnsta kosti fyrir
prentunarkostnaði. Búið er að prenta 61 æfiminningu, en
fleiri bíða næsta heftis.
Þessi bók, sem er haganlega útskorin, á síðan að geymast
um aldur og æfi, en lítið upplag hefur jafnframt verið prent-
að og fæst það á skrifstofu sjóðsins á Skálholtsstíg 7.
Stjórn Menningar- og minningarsjóðs kvenna er kosin af
Kvenréttindafélagi Islands og er Katrín Thoroddsen for-
maður hans. Hlutverk hans er að varðveita minningu eldri
kvenna og að styðja þær sem yngri eru til náms. Er þeg-
ar búið að úthluta 200.000 krónum í námsstyrki. Fyrsti
visirinn að þessum sjóði var dánargjöf til minningar um
Bríeti Bjarthéðinsdóttur. Auk gjafa eru helztu tekjulyndir
sjóðsin» hin árlega merkjasala og sala minningarspjalda.
Fæðan bezta
fegrunarlyfið.
EF heilsan er ekki í sem beztu lagi,
sést það fljótlega á útlitinu.
Þessvegna er fæðan, sem við borð-
um, bezta fegrunarlyfið.
Mjólkin inniheldur næstum öll þau
efni, sem við þurfum til að halda
góðri heilsu. Þessvegna er rétt að
drekka mikla mjólk.
Ostur er mjólk í samanþjöppuðu
formi. Hann veitir jafn mikið af
eggjahvítuefnum og kjöt, en hann
þarf ekki að sjóða eða steikja.
Egg innihalda svo mikið af gagn-
legum efnum, að ekki er rúm til að
telja þau upp hér'.
Kartöflur ættum við að borða einu
sinni á dag, því í þeim fáum við
nauðsynlega sterkju og C-vitamín —
það er að segja ef þær eru nýsoðn-
ar og ekki upphitaðar.
Hafragrautur og heilhveitibrauö
veita okkur B-vitamin, sem gerir húð-
ina bjartari.
Appelsínur, tómatar og hrátt grœn-
meti innihalda C-vitamín og stuðla
að sterkari tönnum og betra tann-
holdi.
Síld hefur marga góða kosti, t.
d. inniheldur hún D-vitamín, sem ger-
ir gljáalaust hár líflegra.
Sardinur (með beinum) gefa okk-
ur kalk, sem er gott fyrir tenniu-n-
ar og hindrar kuldabólgu.
Kjöt, fiskur, nýir ávextir og grœn-
meti eru allt fæðutegundir, sem við
ættum að borða mikið af.
• Leikarinn Edward Arnold horf-
ir á þær breytingar, sem orðnar eru
á gamla hattinum hans, sem nú prýð-
ir höfuð eiginkonu hans. Frúin hefur
fyrir löngu uppgötvað það, að karl-
mannshattar eru gerðir úr ákaflega
góðu filti, svo hún leggur undir sig
gamla hatta af manninum sínum,
burstar þá vel og hreirtsat, klippir
af þeim börðin og saumar sér Úr
þeim hatta.
Þennan á myndinni þurfti hún að-
eins að brjóta í vissar fellingar, festa
brotin með nál og enda, og prýða
svo hattinn með leggingarbandi og
slöri. Hatturinn lítur ljómandi vel
út og er auk þess samkvæmt nýjustu
tízku, því nýju hattarnir eiga að
sitja framan á höfðinu.
I barnsfætinum eru
26 bein — úr brjóski.
Þegar barnið er fjögurra
mánaða gamalt uppgötvar það
yfirleitt hvílíkt afbragðs leik-
fang fæturnir á því eru.
Hvor fótur er samansettur úr
26 beinum —14 í tánum (tveim-
ur í hvorri stóru tá, þremur í
hverri hinna), sjö í hælnum og
fimm þar á milli. Og þau eru
öll úr brjóski.
Það er því auðskilið hve mik-
ið tjón illa mátulegir skór og
of litlir sokkar geta gert.
Mæður verða því að hafa það
í huga:
Að sokkarnir verða að vera
laust prjónaðir, svo að barnið
eigi auðvelt með að veifa tán-
um.
Að ábreiðurnar í vagninum
og barnarúminu verða að vera
léttar, en jafnframt hlýjar.
Að pakkar og töskur mega
aldrei þrengja að fótum bams-
ins í vagninum.
Að ekki er heppilegt að hafa
börn 1 skóm fyrr en þau fara að
ganga. Og að þá verða skórnir
að vera mjúkir og sveigjanleg-
ir.
Að gott er að leyfa bömum
að hlaupa um á sokkaleistunum
eða berfættum, þegar hægt er
að koma því við.
Að börn hafa gott af að æfa
fæturna — taka upp pensil með
tánum eða ganga á tánum.
Að fætur barna þarf að þvo
á hverjum degi og púðra vel á
eftir.
Baccalao.
Svona útbúa Spánverjarnir
stundum saltfiskinn, sem við
seljum þeim.
Um 400 gr. af soðnum og
beinhreinsuðum saltfiski, 400
gr. af tómötum, 1 stór laukur,
1 dl. af olíu, salt, pipar, 600 gr.
af soðnum, köldum kartöflum.
Laukurinn er rifinn eða hakk-
aður og vættur í olíunni, án þess
að vera brúnaður, saltfiskurinn
er látinn í eldfast fat með af-
hýddum tómötum og kartöflu-
skífum. Olíunni með lauknum,
ásamt salti og pipar, er hellt
milli laganna. Efst á að vera lag
af kartöflum og tómötum. Nú
er lok sett yfir fatið og því
stungið í ofninn, þar sem það er
látið vera í % tíma. I staðinn
fyrir olíu er hægt að nota 100
gr. af smjöri.
Hafið þiö heyrt...
að vatnið, sem kartöflurnar eru
soðnar í, er gott til að ná blett-
um af silfri með.
að sé sykri nuddað undir eins á
ávaxtabletti, náist þeir úr.
14