Vikan - 17.05.1956, Blaðsíða 19
Á ÍSLANDSMIÐUM
Framh. af bls. 9.
Andartaki síðar titraði Nancy Jones undan átökum vélarinnar.
Hún gat ekki stillt sig um að fara upp á þiljur. Hún staulaðist
á fætur og braust yfir þilfarið á móti storminum. Hún vissi að
Ifor hlaut að vera í stýrishúsinu og þangað fór hún.
Hann stóð við stýrið og hálf lá fram á það. Kraftar hans
voru á þrotum eftir þrotlausa baráttu við vind og sjó . . .
— Ifor, hrópaði Margiad. — Ifor . . .
En hann heyrði ekki til hennar. Hann hreyfði bara stýrið
eins og í leiðslu og horfði þreytulega út um gluggann. Áður en
skipið hafði náð sér almennilega af stað, hafði stormurinn og
flóðið hrakið það upp undir klettana. Um stund leit út fyrir
að það mundi ekki sleppa og að það og allar tilraunir skipstjór-
ans mundu enda á þessum horðalegu klettum rétt við þilfarið.
En þá byrjaði það að mjaka sér frá, þumlung eftir þumlung.
Skipið var úr allri hættu.
Margiad stýrði Nancy Jones síðasta spölin inn í skipalægið,
inn eftir skýlli höfninni. Ifor hallaði sér upp að veggnum og
gaf skipanir. Hann gat ekki lengur gert neitt annað. Hann var
eins örmagna og hægt er að vera, án þess að detta niður. Hún
stóð við stýrið og gerði það sem hann sagði henni. Að hugsa
sér, að hún skyldi stýra skipi! Fyrir einni klukkustund hefði
henni aldrei dottið í hug að það ætti fyrir sér að liggja.
En núna skildi hún svo margt, sem hún hafði ekki skilið
áður. Hún vissi, að sjórinn var honum í blóð borinn og að hún
mundi aldrei reyna að ræna honum frá honum. Sér til undrunar
fann hún, að hún hafði ekki einu sinni lengur hug á því. Ef
hann sleppti einhvern tíma öðrum hvormn þessum kærleik sín-
um fyrir hinn, þá væri hann minni maður. Og það vissi hún að
hún gæti ekki afborið ....
Ifor hreyfði sig. — Við erum að koma inn. Hann hneigði
höfuðið í áttina að hafnarbakkanum, þar sem búið var að
kveikja á ljóskösturum. — Þeir bíða okkar!
Margiad sleppti stýrinu og færði sig til hliðar. Hún sá mann-
fjöldann á hafnarbakkanum og hún var hreykin. Ifor, maður-
inn hennar, hafði leyst af hendi afreksverk þessa nótt.
Þessi forsetafrú er rithöfudur.
Framháld af bls. 12.
Sylvi Kekkonen. Sjálf á hún
innra öryggi og ró, og án þess
myndi hún naumast hafa unn-
ið bug á þeim erfiðleikum, sem
orðið hafa á vegi hennar á æv-
inni.
Það auðnast sárafáum að
varðveita sjálfstæði sitt og
persónuleika í leiksviðsljósi
hinna opinberu mála svo sem
henni hefur tekizt það. Hún
hefur verið sjálfri sér trú, hug-
sjónum sínum og þeirri fegurð-
arþrá, sem hún fékk að erfðum
að heiman.
Bæði borgarbúinn og bónd-
inn í sveitinni vita, að lands-
móðirin og tignasta kona lýð-
veldisins þekkir hagi þeirra af
eigin raun. Systkini hennar eru
nú öll að starfi á ýmsum svið-
um. Á ættaróðalinu Artjárvi í
Hietana, sem hefur verið í eigu
ættarinnar í nærri því 400 ár,
býr frændi Sylvi Kekkonen, og
mjög margir af Uino ættinni
eru bændur.
En bezt minnast menn þess,
að forsetafrúin Sylvi Kekkonen
finnur til með öðrum, metur
starf þeirra að verðleikum og
skilur gleði þeirra og sorg. Ut-
an landamæra Finnlands mun
hún einnig verða metin að verð-
leikum sem góð kona og sann-
menntuð.
Aumingja njósnararnir
Framhald af bls. 13.
yfirlýsingar um þetta. Þessi ótti nasistanna gat komið í góóar
þarfir. Njósnarar þeirra voru að vonum dauðskelkaðir, þegar
þeir náðust, og árangurinn var oft sá, að þeir flýttu sér að
játa.
Þó vantaði vissulega ekki hugr'akka njósnara í það lið. Einn
hugdjarfasti njósnari síðasta stríðs var þýzkur. Hann starfaði
í Bretlandi. Hann var að lokum fangaður og dæmdur til dauða.
Honum sást aldrei bregða.
Þegar hann var leiddur til aftökunnar, sagði hann við liðs-
foringja aftökusveitarinnar: „Þér kærið yður sjálfsagt ekki
um a,ð taka í hendina á njósnara.“
„Nei, það vil ég satt að segja ekki,“ var svarið. „En ég
mundi líta á það sem heiður að fá að taka í hendina á óvenju-
lega hugrökkum manni.“
— JOHN ENGLAND.
TAIMDLR ÞVOTTALÖGUR
Sparar erfiði — Sparar fé
TANDUR þvær og hreinsar allt. Viðkvæmustu lakkfleti, sem grófustu gólf,
— þynnstu silki- og nælonflíkur sem grófustu vinnuföt. Hvers konar borð-
bónað úr málmi eða postulíni.
Allt verður jafn skínandi hreint og fágað úr TANDUR, því TANDUR er sterkt
og öruggt hreinsunarefni, en samtímis milt og algjörlega skaðlaust.
Allt, sem þolir vatn, þolir einnig TANDUR.
TANDUK gerir tandur hreint
SÖL UUMBOÐIÐ
19