Vikan


Vikan - 07.06.1956, Blaðsíða 5

Vikan - 07.06.1956, Blaðsíða 5
lagðist í baðkarið i kalt vatn. Þar eyddi hún svo, eftir því sem Stiller sagði, mestum hluta tíma síns í New York. Voight lét síðan bjóða öllum blöðum í New York myndirnar af Gretu, en aðeins tvö tóku við þeim. En þó New York Times hefði ekki Gretu Garbo og Stiller með á listanum yfir merka farþega með Drottningholm, þá hafði það rúm fyrir fregn um að Pola Negri hefði verið dæmd í 57.000 dala sekt fyrir að geta ekki við heim- komuna sýnt skartgripi, sem hún hafði farið með út úr landinu. 1 Miðvesturríkjunum var hópur Republikana farinn að vinna að endurkjöri Cal- vins Coolidge i forsetaembættið. England krafði Frakkland um hinar niðursettu stríðsskuldir, og bæði löndin voru að meta enska uppástungu um að slíta stjórnmálasambandi við Rússland. Niðri í Tennessee fór fram hin margumtalaða „sam- þykkt“ á erfðakenningu Darwins. Prinsinn af Wales, sem var í einni af „viðskiptaferðum“ sín- um, hafði veitt villisvín í Suður-Rhodesíu. Og Gertrude Ederle bjó sig undir að synda yfir Erm- arsund. Sú New York, sem mætti augum Gretu sum- arið 1925, var stórvirðburðarik. Kauphöllin lét glaðklakkalega og ef einhver dyrfðist að efast um að landið væri búið að koma á eilífri vel- megnun, var hann sagður á eftir tímanum og kallaður óamerískur. I næturklúbbunum borguðu viðskiptavinirnir gjarnan einn dal fyrir toddý- glas. Sama kvöldið sem Greta kom, frumsýndi Ziegfield Follies sumarútgáfu sína af New Amsterdam. Og í öðru leikhúsi dönsuðu Fred og Adeles Astaire' í „Lady be good“ o. s. frv. Greta og Stiller leituðu fáar af þessum skemmt- unum uppi. Þeim fannst New York ólistræn og ógestrisin borg. Vegna hvers óvænts atburðar- ins á fætur öðrum, úrðu þau að bíða í tvo mán- uði í þessari þreytandi borg. Eftir mörg viðtöl við fulltrúa Metro-Goldwyn, hætti Stiller við að rjúfa samninginn. Þegar það var loksins komið í lag, vildi Metro að hann héldi sem fyrst áfram til Hollywood, en Stiller aftók að halda áfram fyrr en búið væri að gera vissar breytingar á samningi Gretu. Hann krafðist þess að byrjend- laun hennar væru tvöfölduð. En Metro vildi ekki einu sinni fallast á helminginn af því. Stiller reyndi þá í marga daga að fá að kynna hana æðsta yfirmanni fyrirtækisins, Nicolas Schenk. Hann var alltaf önnum kafinn. 1 staðinn var hon- um vísað til varaframkvæmdastjórans, majors að nafni Edward Bowes, sem seinna varð nokk- uð þekktur fyrir listrænar tilhneigingar. Þó að Bowes hefði eins og Metro litla trú á „Normu Shearer Svíþjóðar", þá lofaði hann Stiller að láta kvikmynda hana til reynslu eins fljótt og hægt væri. Stiller vakti yfir henni eins og haukur vikuna sem reynslukvikmyndin var tekin. Þegar stórlöxunum hjá Metro var sýnd myndin, klór- uðu þeir sér allir í höfðinu. „Hún er óvenjuleg", var dómur þeirra. Stiller reyndi að útskýra það fyrir þeim, að það væri einmitt það sem gerði hana svona mikilvæga, en enginn hlustaði á hann. Þegar Stiller vai- ekki að deila við Metro um Gretu, þá dró hann hana upp úr kalda baðinu og fór í gönguferðir með hana eða tók hana með sér í kvikmyndahús — ef hitinn var ekki óbæri- legur. Þó þau kynnu bæði mjög lítið i ensku, var ekki erfitt að fylgjast með efni þöglu mynd- anna. Kvikmyndahúsin á Broadway buðu þetta sumar upp á „Nýliðann" með Harold Loyd, „Son- ur Zorros“ með Douglas Fairbanks og Mary Astor, „Gtillæðið" með Charlei Chaplin og „Draug- urinn í Óperuhúsinu" með Lon Chaney. Stiller áleit að bæði hann og Greta gætu haft gagn af að sjá bandariskar kvikmyndir, svo þau voru all dugleg við að fara i bíó. Þcss á milli umgengust þau þessa fáu kunn- ingja Stiilers í New York. Meðal þeirra var hin þekkta leikkona Martha Hedman, sem Stiller hafði þekkt í Svíþjóð. Hún bauð þeim til hádeg- isverðar og seinna heimsóttu þau vin hennar, myndasmiðinn fræga, Arnold Genthe. „Þau sýndu bæ "i myndum mínum áhuga,“ skrifar Genthe í æfiminningum sínum. „Aðferð mín við mynda- tökuna var nýstárleg í þeirra augum. „Ég vildi gjarnan láta yður taka mynd af mér einhvern tíma," sagði Greta. „Hvers vegna einhvern tíma. Því ekki núna?“ spurði ég. ('Allt samtalið fór fram á þýzku, því Greta kunni varla orð í ensku). „Þér eruð hér núna og ég verð að taka nokkrar myndir af yður, til að sýna að þér séuð ekki bara ímyndun." Greta hló og mótmælti því ákaft. Þessi mynd, sem Genthe tók af Gretu Garbo, vakti athygli á henni í Ameríku. „Ekki núna, ekki í þessum fötum og með þessa hárgreiðslu." „Skítt með það,“ sagði ég. „Ég hef meiri áhuga fyrir augunum í yður og því sem felst á bak við þetta óvenjulega enni“. Og án frekari umsvifa tók ég nokkrar myndir af Gretu. Það var óvenjuleg viðkvæmni í andlitssvip hennar. Og áður en löng stund var liðin, var myndavélin mín búin að ná henni í mörgum stellingum og með margskonar svipbrigði, öll svo ólík, að varla var hægt að trúa því að þetta væri sama stúlkan." Genthe þurrkaði í burtu allt nema hina klassisku andlitsdrætti hennar — þungu augnalokin, fulkomna nefið og svolítið opnu varirnar. Hann var ákaflega ánægður með myndirnar og sýndi þær Frank Crowninshield vini sínum, sem var ritstjóri hins vel metna blaðs Vanity Fair. „Skemmtilegar myndir, en hver er stúlk- an?“ sagði Crowninshield. „Greta Garbo,“ svar- a?i Genihe. „Aldrei heyrt á hana minnzt, en ég get ef til vill notað eina af þessum myndum," svaraði Crowninshield. „Með því skilyrði að þú setjir undir hana heila síðu“, svaraði Genthe. Crowninshield samþykkti það og keypti eina mynd, til birtingar í nóvemberhefti Vanity Fair. (Undir myndinni stóð „Ný stjarna úr norðri — Greta Garbo"). Genthe gaf Gretu Garbo líka safn af þessum myndum, og dag nokkurn um miðjan ágúst kom hún i vinnustofuna hans, til að þakka honum fyrir. Hún sagðist jafnframt vera komin til að kveðja. „Þeir vilja greinilega ekkert hafa með mig að gera,“ sagði hún. „Þeir segja að ég sé óvenjulegt. Eg fer aftur til Berl- ínar.“ Genthe spurði hvort hún hefði sýnt Metro- Goldwyn myndirnar. ,Nei,“ svaraði hún, „ég ætla að eiga þær sjálf. Þeir hafa svo margar aðrar.“ Genthe lagði fast að henni að sýna Metro þær, áður en hún tæki lokaákvörðun um að snúa við, og hún lofaði því. Strax og starfsmenn Metros höfðu séð myndir Genthes, sem Stiller sýndi þeim, breyttist áhuga- leysi þeirra í garð Gretu Garbo. Föla, hrokkin- hærða unglingsstúlkan, sem þeir höfðu sjálfir hitt, var á þessum myndum oi'ðin fögur og ein- staklega lokkandi kona. Ef hægt væri að mynda hana svona, sögðu þeir við sjálfa sig, þá gætu þeir kannski notað hana til einhvers. En samt voru þeir ekki fúsir til að hækka laun hennar úr 350 dölúm á viku. Þó að Stiller væri þrár eins og naut, gat hann ekki fengið upphæðina hækk- aða rneira en i 400 dali. Nú gátu þau Greta haldið áfram ferðinni til Hollywood. Þegar þau stigu af lestinni í Los Angeles fengu þau betri móttökur en i New York. Um það bil 20 manneskjur vöru þar saman komnar. Fyrir utan auglýsingafólk Metros, túlk og annað þjón- ustufólk, stóðu þarna Victor Sjöström, Karl Dane og nokkrir aðrir vinir þeirra frá Norðurlöndun- um og tvær litlar telpur í sænskum þjóðbúningum afhentu Gretu blómvendi. Hún var mynduð með blómvendina í fanginu og litlu telpurnar tvær við hliðina á sér, meðan hún reyndi að taka sig vel út með hræðilega úfna hárgreiðslu. Blaða- mennirnir spurðu nýgræðinginn nokkurra spurn- inga. Meðan annars var hún spurð að þvi hvar hún hefði hugsað sér að búa í Hollywood. „Ég' vonast til að fá herbei'gi hjá góðri fjölskyldu", svaraði hún, V 10. KAFLI Fleiri en ein „góð“ fjölskylda í Hollywood hefði vafalaust verið fús til að taka Gretu Garbo í fæði og húsnæði, en hún var frædd á því að slíkt væri ekki viðeigandi fyrir kvikmynda- stjörnu. Samkvæmt tillögu Victors Sjöström, Framháld á bls. 18. Guðbrandarbiblía - Grallarinn I haust mun Lithoprent gefa út ljósprentun af nokkr. um öndvegisritum Islendinga. Ber þar fyrst að telja Guð- brandarbiblíu, sem án efa mun vera fallegasta biblía, sem út hefur komið á ís- lenzku. Hún á nú að kosta 1500 krónur, bundinn í al- skinn með látúnsspennum, gyllt á kjöl og með áþrykkt- um helgimyndum á spjöldum, en þegar bókin kom út árið 1584 kostaði hún 2—3 kýr- verð. Guðbrandarbiblía mun koma út í 500 eintökum og aðeins verða send áskrifend- um. Prentun og allur frá- gangur bókarinnar er af- bragðsgóður, enda hefur Lithoprent unnið að undir- búningi verksins í fimm ár. Guðbrandur var á sín- um tíma allumsvifamikill bókaútgefandi og gaf úr 110 bækur. Hann mun í upphafi hafa sett sinn blæ á þessa útgáfu biblíunnar í heild og skorið sjálfur út suma upphafsstafina og skreytingar milli kafla. Letrið sem notað var mun hafa komið frá Norður- Þýzkalandi og einnig myndamót úr tré og zinki. Grallarinn eða hin al- menna sálmasöngbók, sem Guðbrandur biskup gaf út á Hólum árið 1594 verð- ur nú einnig ljósprentuð í 300 eintökum og á að kosta 300.00 krónur. Þá er næst að nefna Passíusálma síra Hall- gríms Péturssonar, sem hann ritaði sjálfur og á- nafnaði Ragnheiði Bi’ýn- jólfsdóttur með þessum ávarpsorðum: „Erusamri, guðhræddri og velsiðugri jómfrú Ragnheiði Bryn- jólfsdóttur að Skálholti sendir þetta sálmakver til eins góðs kynningarmerkis í Christi kærleika Hall- grímur Pétursson (pr(est- ur). Anno 1161 in Majo. Mikill er munur heims og himins; sá má heimi neita sem himins vil leita.“ Passíusálmarnir eiga að kosta 200.00 krónur ljós- prentaðir. Einnig verða endur- prentaðar Árbækur Espo- líns og Grágás.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.