Vikan


Vikan - 26.02.1959, Blaðsíða 25

Vikan - 26.02.1959, Blaðsíða 25
Kæni skraddarinn Einu sinni var kóngsdóttir, sem var svo drambsöm, að úr hófi keyrði. Ef einhver biðill kom á fund hennar, þá bar hún upp fyrir honum gátu, og gæti hann ekki ráðið hana, var hon- um vísað á bug með háðung. Hún lét þá gera heyrum kunn- ugt, að hún skyldi engan eiga, nema þann, sem réði gátuna, hver sem hann svo væri. Loks gáfu þrír skraddarar sig fram. Tveir þeir eldri héldu, að þeir væru búnir að stinga svo margt nálsporið um dagana og alltaf á réttan stað, að þeir mimdu líka hitta á hið rétta í þessu efni. Þriðji skraddarinn var ungur og mesti sólargapi, sem aldrei gat lært að stinga rétt nálspor. Hann hugsaði nú með sér, að fyrst lánið væri aldrei með sér í neinu, þá skyldi hann reyna að fara þessa bónorðsför. Hinir réðu honum til að fara hvergi, því að honum mundi verða lítið ágengt með svo lít- ið vit í kolli, sem hann hefði. En litli skraddarinn lét það ekki á sig fá, sem þeir sögðu, held- ur kvaðst hann ætla sér að i’eyna þetta, þótt hann svo yrði að missa höfuð sitt, og kvaðst hann geta spilað á eigin spýt- ur. Að svo mæltu hélt hann af stað og var í bezta skapi, rétt eins og öll veröldin væri á hans valdi. Þeir fóru nú allir á fund kóngsdóttur og sögðu, að hún skyldi bera upp fyrir þeim gát- una. Nú væru hinir réttu biðl- ar komnir og þeir hefðu svo hárfínt vit, að þræða mætti með því saumnál. Þá mælti kóngs- dóttirin: — Ég hef tvenns konar hár á höfði mér. Hvernig er það litt? — Nú, er það ekki annað en þetta ? sagði sá fyrsti. — það er víst svart og hvítt eins og dúk- ur sá, sem þeir kalla pipar og salt. — Rangt getið, sagði kóngs- dóttir. — Nú á sá næsti að svara. — Já, svaraði hann, ef það er ekki svart, þá er það víst jarpt Saga barnanna og rautt eins og helgidagafrakk- inn hans pabba míns. — Rangt getið, sagði kóngs- dóttir. — Nú er komið að hinum þriðja, ég sé það á honum, að hann muni vita það. Þá gekk litli skraddarinn fram og sagði: — Kóngsdóttirin hefur gull- hár og silfurhár á höfði sér, og þá hefur það báða litina. Þegar kóngsdóttirin heyrði þetta, fölnaði hún upp og var nærri því fallin í öngvit af ótta, því að litli skraddarinn hafði getið rétt, en hún hafði verið alveg viss um, að enginn mað- ur í heiminum vissi það. Þegar hún hafði jafnað sig dálítið, sagði hún: — Þú ert nú ekki búinn að ná mér fyrir því arna. Ég set þér annan kost, sem þú verður annað hvort að ganga að eða hafna. Niðri í búrinu liggur björn, og hjá honum átt þú að vera í nótt, og ef þú verður lif- andi snemma í fyrramálið, þeg- ar ég kem á fætur, þá skaltu verða maðurinn minn. Með þessu móti ætlaði hún sér að losna við skraddarann, því að til þessa hafði enginn komizt lifandi úr klóm bjarn- arins. En skraddarinn lét sér hvergi bregða og svaraði henni alls óhræddur: Hugur ræður hálfum sigri. Strax þegar kvöldaði, var farið með skraddarann ofan í búr bjarnarins. Björninn ætl- aði óðara að ráðast á hann og bjóða hann velkominn með hramminum, en skraddarinn sagði: — Hafðu þig hægan, vinur minn, hafðu þig hægan! Ég skal koma vitinu fyrir þig! Síðan tók hann með mestu ró- semi eins og ekkert væri um að vera nokkrar hnetur upp úr vasa sínum, braut þær og át kjarnana. Þegar björninn sá þetta, fór hann líka að langa í hnetur. Skraddarinn fór þá ofan í vasa sinn og rétti honum hnefafylli sína, en það voru ekki hnetur, heldur steinar. Björninn tók þá í munn sér og beit í eins og hann gat, en það kom fyrir ekki, hann gat ekki brotið þá. Ég hlýt þó að vera mun sterk- ari, hugsaði hann, get ég þá ekki einu sinni brotið hnetur? — Brjóttu þær fyrir mig, sagði hann við skraddarann. — Þarna sérðu, hvað þú mátt þín mikils, sagði skraddarinn. Þú hefur nógu stórt ginið, en getur þó ekki einu sinni brotið eina hnetu. Hann tók nú steinana, hafði í snatri skipti á þeim og hnet- um og braut þær hverja af annarri. — Þú lofar mér að reyna aft- ur sagði björninn. — Fyrst þú getur það, þá er svo að sjá, sem það sé hægðarleikur. Skraddarinn fékk honum auð- vitað steina, og björninn tók til á ný og beit á af öllum kröft- um, en eins og getur nærri, þá vann hann ekki á þeim. Nú tók skraddarinn upp fiðlu og fór að spila danslag. Þegar björninn heyrði það, réð hann ekki við sig og fór að dansa. Þegar hann hafði hoppað stundarkorn, sagði hann: — Er erfitt að læra að spila ? — Nei þvert á móti. Maður styður bara með vinstri hendi á strengina og dregur bogann yfir þá með hægri hendinni. Sjáðu bara, hvað mér gengur það ágætlega. Hopsasa, fallerallera! — Mér þætti gaman að læra að spila, sagði björninn, því að kem með skærin, sagði skradd- arinn. Svo lét hann björninn rymja eins mikið og hann vildi og lagðist fyrir á hálmbing úti í horni og sofnaði þar. Þegar kóngsdóttirin heyrði hinn ógur- lega rymjanda í búrinu um kvöldið, hélt hún, að björninn væri að rymja af gleði yfir því, að hann hefði gert út af við skraddarann. Hún fór því alls hugar glöð á fætur um morg- uninn, en þegar hún gægðist inn í bjarnarbúrið, sá hún þá gæti ég dansað, þegar ég vildi. Viltu kenna mér það? — Já, hjartans gjarna, sagði skraddarinn. — Allt er undir því komið, að þig skorti ekki hugvitið. En lofaðu mér að sjá á þér hrammana. Klærnar þær arna eru allt of langar, það má til að klippa dálítið framan af þeim. Svo fékk hann sér skrúftöng, og björninn varð að stinga klón- um inn i hana, en hann iðraðist þess brátt, því skraddarinn skrúfaði hana svo fast, að hann gat ekki hreyft sig úr stað. — Bíddu við, þangað til ég skraddarann standa þar ljóslif- andi. Varð hún þá svo skelk- uð, að hún gat engu orði upp komið. En nú gat hún ekki leng- ur haft nein undanbrögð í frammi, því að hún var búin að lofa opinberlega að eigá hann. Lét nú konungur aka fram viðhafnarvagni sínum, og kóngsdóttirin varð að setjast í hann hjá skraddaranum og aka til kirkjunnar til hjónavígslu. ■ En þegar þau voru nýstigin upp í vagninn, sáu þau björn- inn koma á eftir sér, bálreiðan og rymjandi. KóngsdóttiriU Framhald á bls. 22. ■ VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.