Vikan


Vikan - 26.02.1959, Blaðsíða 26

Vikan - 26.02.1959, Blaðsíða 26
DAGURIMM I DAG . .. Framhald af bls. 15. gamla söngva og nýja, en meira hefði mátt vera um frumorta texta. Eitt af skemmtiatriðum mótsins var leikritið „Víxlar með afföllum“ eftir Agnar Þórðarson. Mun þetta vera í fyrsta skipti sem það hefur verið sviðsett og tókst það vel með þeim Guðrúnu Agnarsdóttur ritstjóra Verzlunarskólablaðsins í hlutverki Jónu Jódísar, TJlfari Guðmundssyni í 4. bekk í hlutverki Bergþórs Björns- sonar, Magnúsi Jónssyni i 3. bekk i hlutverki Denna og síðast en ekki sízt Gunnari Ólafssyni í 3. bekk í hlutverki Nikulásar. Ýmislegt fleira var þarna til skemmtunar t. d. bókmenntakynn- ing, svokölluð 6. bekkjar vaka, en sá bekkur sá um þesa kynningu með aðstoð íslenzku kennarans. Einnig var þarna danssýning er vakti mikinn fögnuð en það var Charleston frá 1925 sem sýndur var. Einleik á píanó lék tílfar Guðmundsson með ágætum þrátt fyr- ir þær erfiðu aðstæður að alltof stutt- ur tími. gafst á milli þess þáttar og ieiksýningarinnar, þar sem hann lék eitt hlutverkið. Hinn vinsæli og virðulegi skóla- stjóri Verzlunarskóla Islands dr. Jón Gislason sótti mótið, en það mun hann hafa gjört hverju sinni síðan Marsera. hann varð skólastjóri, nemendum til óblandinnar ánægju. „Dagurinn í dag er dagurinn okk- ar,“ sagði Guðmundur Þ. Agnarsson fyrrv. ritstjóri Viljans í ræðu þeirri er hann flutti við afhendingu verð- launa. Við, sem vorum þarna við- stödd, fundum að þetta var rétt. Verzlunarskólanemendur áttu þennan dag og þeir fóru vel með eignar- rétt sinn. Stundin i Sjálfstæðishús- inu var öllum viðstöddum til óbland- innar ánægju og þeim sjálfum til sóma. Þetta voru glæsileg ungmenni, sem þarna voru samankomin, fallega bú- in, frjálsmannleg og prúð í allri fram- komu. Þetta er íslenzka æskan sem syng- ur: „Ó, lát þú mig herra í hæðum, hafna í verzlunarstétt." D Y N G J A N Framhald af bls. 21,. prjóni en lykkjur teknar af fyrir þumlung. Þannig: prjónið 4 lykkjur látið næstu lykkjur á bandspotta og fitjið upp 7 lykkjur í staðinn. Prjón- ið út prjóninn. Prjónið síðan áfram sléttprjón þar til allt sléttprjónið mælist 7 cm. Þá er fellt af, 2 lykkj- ur í byrjun hvers prjóns þar til ekk- ert er eftir. Nú er handarbakið prjón- að með hvítu mohair-garni á prjóna nr. 3 y2 og prjónað sléttprjón þar til allt sléttprjónið mælist 7 cm. Þá er fellt af, 2 lykkjur í byrjun hvers prjóns þar til ekkert er eftir. Nú er handarbakið prjónað með hvítu mo- hair-garni á prjóna nr. 3% og prjón- að sléttprjón með þessar 24 lykkjur sem bíða. Á fyrsta prjóni er jafnt fellt af þar til 16 lykkjur eru eftir og 1 lykkju aukið út i hvora hlið (saumið saman) (18 lykkjur á prjón) Prjónið því næst áfram, þar til prjón- ið mælist ca. 7 cm. Þá er fellt af 2 lykkjur i byrjun hvers prjóns, þar til ekki er meira eftir. Þumalfingur: Skiptið hinum 7 lykkjum sem teknar voru upp á bandspottann og einnig hinum 7 sem teknar voru á prjóninn nr. 3 og prjón- ið sléttprjón með bláu garni, áfram þessar 14 lykkjur þangað til þumal- fingur mælist 3% cm. Þá er fellt af þannig: * 1 slétt og 2 sléttar sam- an * endurtekið frá * til * umferð- ina út. Prjónið eina umferð án úrtöku. Næsta umferð: prójnið 2 lykkjur sléttar saman alla umferðina út. Slít- ið garnið frá, dragið endann gegnum þær lykkjur sem eftir eru með stoppunál og gangið síðan frá end- anum. Pressíð á röngunni og saumið sam- an. Vinstri vettlingurinn prjónist á sama hátt, en að vísu með þumal- fingurinn hinu megin í lófanum. HVER ÁRLA RÍS . . . Framhald af bls. 27. yðar fréttir," sagði hann, „því þæi' hafa stíl.“ Mér þótti þetta lof gott — af því að það kom frá þessum manni. En I frekar erilsömu stai'fi, þegar oft verður að hafa hraðann á, geta mönnum orðið mistök á, fréttamönn- um og þulum sem öðrum, og við fá- um þá sendar hnútur. Mér verður þá stundum hugsað til erlendra frétta- þula, t. d. hjá BBC þegar þeir verða að endurtaka hálfar, jafnvel heilar setningar, eins og fyrir getur komið, með viðeigandi athugsemd eins og t. d.: ég verð vist að lesa þetta aftur,“ „það vantar í þetta botninn" o. s. frv. Hér yrðu slík mistök kærkomið efni til sparðatínslu og hnútukasts. — Telurðu, að lengja beri frétta- tímann á morgnana? — Nei, menn vilja hafa sína morg- unandakt, aðrir sína morgunleik- fimi, enn aðrir, kannske flestir, sína musík. Til lesturs eru ætlaðar tíu mínútur. Þess vegna verð ég að velja og hafna, þjappa saman fréttum, forðast endurtekningar frá kvöldinu áður, eftir þvi sem unnt er og ganga frá þeim eftir beztu getu og éftir því sem frekar naumur tími leyfir. Seinast en ekki síst — ég segi það ekki mín vegna, því að ég er kominn á þann aldur, að aðrir munu taka við áður en mjög langur tími liður: Þetta starf er unnið utan venjulegs vinnutima. Sá, sem það gerir, hefur engan staðgengil að morgni, ef hann er illa fyrirkallaður eða lasinn og verður að „standa sina pligt“ hvað sem tautar, hvernig sem viðrar að vetrarlagi. En þetta tilheyrir starf- inu og er varla umtalsvert. Þetta mega menn þó gjarnan vita, þeir, sem ekki hafa hugsað út í það. En nú er þetta rabb víst orðið fulllangt, Vikan flytur svo kannske kveðju mína hverjum sem les. Og það gerir hún. Nemendamótsnefnd. PEZ Ljúffengar hálstöflur! Hressa og hreinsa hálsinn! Tilvaldar fyrir: SÖNGMENN, RÆÐUMENN og alla, sem umgangast eða starfa í fjölmenni. Hentug vasahylki! Handsnerting óþörf! PEZ er framleitt í 40 löndum! Bragðtegundir við allra hæfi! Súkkulaðiverksmiðjan LINDA h.f. Ahureyri LINDU-umboðið h.f. Reykjavík

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.