Vikan


Vikan - 26.03.1959, Blaðsíða 4

Vikan - 26.03.1959, Blaðsíða 4
Hver hreppir reiðhjólið? VIKAN efnir til myndarlegrar sölukeppni meðai sölubarna ÖIl börn, drengir og telpur 10 ára og eldri geta tekið þátt í keppn- inni, sera hefst með 14. tölublaði og kemur út n. k. fimmtudag 2. apríl. Verðlaunin eru glæsilegt DSB reiðhjól fyrir dreng eða telpu. Bvanur Marteinn Oestsson á heima i Háagerði Jfl. Hann er 10 ára, en harðger og vasklegur. Hann hefir oft unnið sökiverðlaun Vikunnar. Hér á myndinni er hann að veita viðtöku álitlegri fúlgu sem sölulann fyrir tveggja daga vinnu. Þess ber þó að geta að Bvanur studnar skólann sinn af miklu kappi, lcerir vel heima sinnir umfangsmiklum kaninu- og dúfnabúum sem hann á, og selur Vikuna l frístundum. Eina skilyrðið er að vinn- andinn verður að vera hæstur af sölubörnum Vikunnar við sölu á a. m. k. 4 tölublöðum af 5 þeim næstu, þ. e. 14.—15.—16. —17 og 18. tölublað og sem koma út 2.-9.—16.—23. apríl og 7. maí, n. k. Þannig má barnið vegna veikinda eða ann- arra ástæðna vanta í sölxma á einhverju þessara tölublaða án þess að það falli út úr keppn- inni. VTKAN hefur um nokkurt skeið veitt efsta sölubami í hverri viku, 300 króna verð- laun auk venjulegra sölulauna sem er kr. 2,50 fyrir hvert selt eintak. Nú hefnr hinsvegar verið ákveðið að breyta til, lengja keppnistímann og auka verðmæti verðlaunanna. Þetta mun vafalítið vekja mikla ánægju, því aldrei fyrr hefur þeim gefist kostur á að keppa um svo glæsileg verðlaun. Reiðhjólið sem keppt er mn, er af gerðinni DSB eins og fyrr segir, en þau eru talin einhver vönduðustu hjól sem hér fást, og njóta geipilegra vinsælda hjá æskunni. Með keppni þessari vill VIKAN sýna sölubörnum sín- um hve mikils hún metur sam- starfið við þau, um leið og ýtt er undir heilbrigðan metnað þeirra. Afhending blaðsins til sölubarna hefst kl. 1,30 alla fimmtudaga, hjá Blaðadreifing h.f. að Miklubraut 15, inngang- ur frá Rauðarárstíg. Guðrún Erla Baldvmsdóttir, Hverfis- götu 83 er nveð állra dugmestu sölu- börnum Vikunnar. Hún hefur 3 sinn- um orðið efst og hlotið verðlaunin kr. 300,00 fyrir utan venjulega sölu- laun. 1 þau skifti hafa tekjur henn- ar, verðlaun og sölulaun, orðið um 700,00 krónur á viku, en adls í þessi 3 skifti á þriðja þúsund krónur. Karl Báldvinsson á Hverfisgötu 83, er bróðir Erlu, hann hefir tvisvar hlotið ,.sölukóngs“ verðlaun Vikunn- ar. Þau systkynin hafa því sanvar- lega verið aflascel. Bvanur er ákveðinn sölumaður og lœtur veðrið ekki hamla sér. 4 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.