Vikan


Vikan - 26.03.1959, Blaðsíða 22

Vikan - 26.03.1959, Blaðsíða 22
VERÐLAUN AFHENT FYRSTA fSLENDINGNUM 1959 Eins og lesendur Vikunnar rauna, Síminn hringir. Ég hrekk við og gríp heymartólið. „Halló!“ „Já. Þetta er Siggi.“ ,,Já.“ Hann var svo sem auð- þekktur málrómurinn hans Sigurðar míns Ólafssonar, af- greiðslumanns Flugfélags Is- lands á Höfn í Hornafirði. „Helvíti maður, nú er það svart, þeir eru orðnir vitlausir hjá Vikunni. Hafa sent hingað bamavagn og vilja láta af- henda hann „með pomp og pragt“ og ljósmyndatöku og ég veit ekki hverju. Nú verður þú að koma til skjalanna, maður.“ „Ja — há,“ svara ég heldur dræmt og fer í flýti að rifja upp fyrir mér blaðamennsku- feril minn og kemst snarlega að því, að hann hefir aldrei verið meiri en að hanga af forvitni, er ég var smástrákur, i prentsmiðjunni á Seyðisfirði hjá Sigurði Þ. Guðmundssyni, frænda mínum og síðar að sjá am útsendingu „Jafnaðar- mannsíns", það er að segja, mn þriggja mánaða skeið, árið sem hann Stóri Valdi hrapaði í Norðfjarðarfjalli, er hann var með kosningablað „Jafnaðar- mannsins" á heimleið og týndi öllum áróðrinum, en hvaða ár það var, vita allir, því að um þetta gat „Spegillinn“. Jæja, satt að segja þá fannst mér í fljótu bragði, að ég hefði þá reynslu sem blaðamaður, að mér bæri skylda til að taka þetta að mér og því segi ég við Sigga: „Olræt, ég kem,“ skelli heyrnatólinu á símann, gríp töskuna með skrifföngunum, myndavélina og hleyp af stað. I leiðinni tek ég Þorbjöm, son Sigurðar, með mér og við höld- um uppí „Hátún“, heimili þeirra hjóna Nönnu Láru Ölafs- dóttur og Ágústs Runólfs Run- ólfssonar, útgerðarmanns á Höfn, foreldra fyrsta íslend- ingsins, sem fæddist á þessu ári. Það er knúið dyra, frúin kemur brosandi fram og býð- ur okkur inn. „Hér erum við komnir með heilmikla sendingu frá Vik- unni,“ segir Þorbjöm og ryður öllu hafurtaskinu inn á undan sér. „Já, vagninn,“ segir frúin. „Blessaðir karlamir hjá Vik- unni voru búnir að láta okkur vita um hann.“ Nú kemur húsbóndinn sjálf- ur, heldur glettinn á svip og fer að pakka út. „En mikil feikn eru þetta,“ segir frúin, „ekki áttum við efndi blaðiff til samkeppnl um titU- inn „Fyrsti islenzki ríkisborgarinn á árinu 1959“. Akvaff blaffiff aff verð- launa þaff bam sem fyrst' fæddist hér á landi á nýja árinu. Verfflaunin til hins „fyrsta Islendings“ liafa nú veriff ofhent austur i Höfn í Horna- von á öllu þessu,“ því að í ljós kemur, auk barnavagnsins, barnagrind, kerrupoki, útigalli, náttföt, hringla og margt fleira frá verksmiðjunni Fáfni í Reykjavík, verksmiðjunni Magni í Hveragerði og Vikunni. Nú er drengurinn sóttur og honum sýndar gersemamar, en þótt hann sé broshýr og patt- aralegur, sýnist mér hann ekki meta þær eins og foreldrarnir. Þegar allt hefir verið skoðað og dásamað, finnst mér tími kominn að ég hefjist handa, sný mér því að frúnni og spyr: „Þú ert Hornfirðingur ?“ „Já og nei,“ svarar frúin, „ég er fædd í Bæ í Lóni 15. marz 1934, en fluttist um 12 ára aldur með foreldrum mín- um að Höfn og hefi átt hér heima síðan.“ ,,En þú, húsbóndi góður?“ „Ég er hreinræktaður Hafn- arbúi, fæddur hér í húsinu Laufás 1. marz 1929 og hefi ávalt átt hér heima.“ „Og börn ykkar hjóna?“ „0, þú veist það nú sjálfur að fyrir utan Islendinginn eig- um við eina dóttur, sem verður fjögurra ára 19. marz í ár.“ „Já, öll fædd í marzmánuði ?“ „Já, öll nema drengurinn, hann fæddist klukkan 25 mín- útur yfir eitt 1. janúar.“ „Og hvað var hann nú stór og þungur þá?“ firöi, en þar fæddist hjóniumn Nönnu Ldru ólafsdóttur og Ágústl Runólfs Runólfssyni, sveinbarn klukkan 25 mínútur yfir eitt, afffara- nótt 1. janúar s. 1. Vikan óskar hln- uni liamingjusömu foreldrum hjart- anlega til hamingju meff „Fyrsta Islendinginn 1959“. „Hann var 15 merkur að þyngd og 52 centimetrar að lengd,“ svarar frúin mér. „Jæja, þá hefir Vikan það og getur fært það inná spjald- skrána hjá sér. En við skulum nú hugsa okkur að þeir hjá Vikunni haldi áfram með svona happdrætti, munduð þið þá taka þátt í kapphlaupinu ?“ gloprast ósjálfrátt út úr mér og ég finn að ég roðna uppí hársrætur yfir svona nærgöng- ulli spurningu, en frúin hlær bara og svarar fljótlega: „Nei, nú látum við öðrum eftir næsta Islending, ef um það verður að ræða.“ Húsbóndinn kýmir. „Ef þeir halda þessu áfram og heppnin væri með manni, þé gæti maður farið að selja barnavagna," laumar hann út úr sér. Nú er farið að snúa sér að myndatökunni, við heldur bága aðstöðu, því alltaf geysar ill- viðri og ekki hægt að koma út með litla manninn, en gert er það sem hægt er, síðan er haf- urtaskið tekið saman og við Þorbjörn kveðjum happdrættis- barnið og foreldrana og hverf- um á dyr. „Skilið beztu kveðjum og innilegu þakklæti okkar til allra gefendanna,“ segja hjónin um leið og hurðin fellur að stöf- um á eftir okkur. Kr. 22 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.