Vikan


Vikan - 26.03.1959, Blaðsíða 21

Vikan - 26.03.1959, Blaðsíða 21
„Viljið þér gefa mér sítrónuvatn, þjónn. Nei, augnablik. Hafið það heldur bjórglas." Hann yrði fljótari með það. Það myndi líklega taka aldir að kreista safann úr einni sítrónu. Bob var þegar farinn að horfa á hann. Hinir sneru sér líka við og horfðu á hann. Þeir voru bersýnilega að tala um hann. „Fjóra Pernod, Eugéne!" kallaði Bob. Það mátti heyra, að þarna átti hann einmitt heima. Og það var engin furða, þar sem mest- an hluta dagsins hékk hann á knæpum, og eftir þvi sem tíminn leið, varð andlit hans rjóðara, augun skærari og röddin hærri. Hafði hann drukkið mikið þennan morgun? Ef dæma mátti af undirskálunum á borðinu, höfðu þeir staðið sig vel. Gilles vildi komast þaðan, eins fljótt og hann gat, en bjórinn kom ekki. Þeir töluðu enn um hann, og Bob hækkaði röddina smátt og smátt. Gilles heyrði ekki til þeirra, fyrr en Bob kall- aði upp: „Og ég ætla svei mér að gera það!" Hinir reyndu að róa hann, jafnvel þótt þeir óskuðu að þeim myndi ekki lánast það. „Ef einhver heldur, að hann geti fengið mig til þess að halda kjafti . . .“ Og þessu til sönnunar, stóð hann upp og ýtti á undan sér borðinu. Þjónninn kom í þessu með vínið handa þeim, svo að hann saup úr glasi sínu í einum teyg. Síðan þurrkaði hann sér um munninn með hendinni, svo að GiUes datt í hug pósturinn í Nieul, og gekk til frænda síns. „Svo að það er verið að njósna núna, eða hvað?" hreytti hann út úr sér, svo að allir heyrðu til hans. Gilles hreyfði sig ekki. Hann svaraði ekki. Hann sat aðeins og starði fram fyrir sig og skeytti ekki frænda sínum. „Nú, svo að þú hefur ekkert svar á taktein- um? Skrýtið, og þú sem sefur með konunni, sem gaf frænda þínum inn eitur." Gilles komst ekki undan, vegna þess að Bob stóð í vegi fyrir honum. Bob var ekki aðeins sterkbyggðari, heldur einnig ofsafengnari og sveifst sennilega einskis. Skyndilega greip hann í axlir honum, lyfti honum upp sleppti síðan ann- arri hendinni og sló Gilles utan undir, einu sinni, tvisvar, síðan í þriðja sinn. og handan við byggingunar var Lorrain-barinn, þar sem Raoul Babin sat og gægðist út milli gluggatjaldanna. Honum var orðið mjög órótt innanbrjósts, þeg- ar hann kom til Quai des Ursulines. Hann hljóp upp og ruddist inn í setustofuna. Alice stóð á miðju gólfi með útrétta handleggi. Hún var í hálfsaumuðu pilsi og jakka, og klæðskeri, með munninn fullan af titurprjónum, sveif I kringum hana. „Er Colette uppi?" „Eg hef ekki heyrt hana koma niður. Gilles! Hvað hefur komið fyrir þig?" Skaddað andlit hans fékk ekki einungis á hana, heldur ákafinn. Gilles mátti ekki vera að því að svara. Hann þaut upp á loft, þar sem hann rakst næstum á frú Rinquet. „Hvar er hún?" spurði hann. „Inni á herbergi sínu." Hann hugsaði ekki út í, að ef til vill væri hún að klæða sig, og hann ruddist inn, eins og hann hafði ruðzt inn í setustofuna niðri. Hann kom að henni, þar sem hún var að hneppa að sér blússunni, og hann sá móta fyrir barmi hennar. „Fyrirgefðu. En þú verður að koma strax. Ég held að ég hafi ..." „Hvað hefur komið fyrir þig? Datztu?" „Þetta er ekki neitt. Ég held . . . Ég held að ég hafi fundið það.“ „Hvað þá ?“ „Lykilorðið . . . að peningaskápnum . . .“ Hann þóttist viss um, að hann hefði rétt fyrir sér, en samt óttaðist hann. Hann iðaði í skinn- inu eftir að komast að hinu sanna. Hann þráði að sjá peningaskápinn opnast og ljóstra upp leyndarmálinu. Þau höfðu í þrjá daga búizt við handtöku Colette. Og nú virtist hún einkennilega róleg. Hún var við handtökunni búin. Hún var jafnvel búin að pakka niður i litla tösku smáhluti, sem hún bjóst við að þarfnast í fangelsinu. Þau höfðu forðast að minnast á það. Gilles var jafnvel, ósjálfrátt, farinn að tala við hana eins og læknir talar við dauðvona sjúkling. „Er lykillinn ennþá i skúffunni, Colette? Komdu . . . ég vil að þú sért viðstödd." Hún flýtti sér að klæða sig. Gullin rykkorn Kvenhúfur Kvenhattar I . í ] og ýmiskonar tízkuvarn- í ■ : : : : ingur í f jölbreyttu úrvali S : ........................... Framhaldssaga eftir G. Simenon Félagar hans flýttu sér til hans, og reyndu að draga hann burt. „Helvitis rokkurinn. Kemur með lögreglumenn til þess að angra aumingja mömmu." Þegar Gilles hafði náð sér og var farinn að búa sig undir að endurgjalda kurteisina, var búið að draga Bob burt. Vegfarendur stönzuðu á g-ötunni, til þess að horfa á þá, þar sem allir gluggar voru opnir, til þess að hleypa inn vor- loftinu. „Gjörið svo vel að fylgja mér," sagði þjónn- inn og tók í handlegg Gilles. Gilles skildi ekki í fyrstu, en þá sá hann, að hönd hans var löðrandi i blóði. Hann fór á eftir þjóniríum inn á salernið, þar sem hann leit í spegil. Nefið á honum var bólgið og það blæddi úr, og það var ljótt mar á annarri kinninni. „Bob er alltaf til í slagsmál. Ég vona, að þér gerið ekki veður út af þessu." Auðvitað myndi hann ekki gera það. Jafnvel núna, þegar Gilles stóð og þvoði sér í fram- an, fann hann ekki til reiði, aðeins dapurleika. Morgninum hafði verið spillt fyrir honum. Hálftíma áður, í litla kirkjugarðinum í Nieul, hafði hann haft það á tilfinningunni, að hann væri að komast að einhverjum leyndum sannleika, komast að einhverri langþráðri niðurstöðu. Þjónninn sagði afsakandi: „Þér getið farið núna. Hann er farinn. Ég skal ná í bjórglasið handa yður.“ Gilles drakk úr því standandi, til þess að taka blóðbragðið úr munninum. Síðan gckk hann út. Það var starað á hann, meðan hann gekk að bíl sínum. Hann skammaðist sín ekki, hann var jafnvel hreykinn af líkamshreysti sinni. Hann var lengi að ræsa bílinn, vegna þess að hann var með hugann við annað. Þeagr hann kom að bryggjunni, þar sem verið var að landa sar- dinum var hann enn annars hugar, þótt hann væri ekki áð hugsa um Bob. Hann leit annars hugai- á stóru bygginguna, þar sem Basse og Plántel höfðu skrifstofur sínar, flutu i sólargeislanum, sem skein þvert yfir her- bergið. Honum til mikillar undrunar, hafði hann ekki tekið eftir þessu fyrr. ,,Ég var nefnilega í Nieul í morgun." „Sagði frænka þín þér eitthvað?" „Nei. Og auðvitað getur mér skjátlazt. Komdu nú." Hann hafði ekki ætlað að snerta hana, en hon- um lá svo á, að hann tók í handlegg hennar og dró hana inn í herbergi frænda síns. Hann þoldi næstum ekki við. Hann óttaðist ekki einungis vonbrigði, öllu fremur óttaðist hann, að hann hefði rétt fyrir sér, hann óttaðist að komast að hinu ógurlega leyndarmáli. Ef til vill yrði þetta nýr þáttur í lífi þeirra — allt myndi breytast, Colette myndi fara og annað líf hefjast — og hann þoldi ekki að segja svo aflcyndi- lega skilið við fyrri tilveru. Hendur hans skulfu svo, þegar hann tók um læsinguna á peningaskápnum, að hann bað hana að gera það. „Vilt þú gera það? Ég held að það sé MARIE." Hann stóð bak við hana og barðist við að grípa ekki um hana og faðma hana að sér eins og um kvöldið á stigapallinum. Kœri Octave. Eg vona, að þú reiðist mér ekki fyrir þessa löngu þögn. Það hlýtur að vera ár síðan ég skrif- aði síðast. Ég hef œtlað að skrifa á hverjum degi. Við Elise höfum t.alað um þig á hverjum degi. En samt . . . Gilles varð skyndilega alvarlegur. Colette brá, þegar hún leit framan í hann og spurði: „Hva ðer að, Gilles . . . er eitthvað að?“ 1 þessu kom Alice inn í herbergið raulandi lagstúf. „Hvað er að, Gilles . . . er eitthvað að?“ verið að leita að ykkur. Maturinn er tilbúinn. Nei! Eruð þið búin að opna peningaskápinn!“ Framh ald á bls. 18. Tíu daga . . ■ i ■ ■ ■ verzlunarnámskeið I ■ . 0 [ verður haldið í Samvirmuskólanum » . . . Bifröst um miðjan maí í vor. Öllum heimil þátttaka. Ungling- • í . um, sem ætla að stunda verzlunar- : . J0 9 störf, er sérstaklega bent á undir- j búning þennan, sömuleiðis af- | '0 greiðslufólki, sem kynnast vill nýj- ] . ungum á sviði verzlunar. ] ' . ■ . Uppl. í Samvinnuskólanum Bifröst i '1 5 eða fræðsludeild SlS. i ■ - \itííjf’ Samvinnuskólinn Bifröst <ÍA YIKAN •

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.