Vikan


Vikan - 26.03.1959, Blaðsíða 5

Vikan - 26.03.1959, Blaðsíða 5
SÁ maður, sem mestan heiður á af stofnun öflugrustu virkja al- þýðusamtakanna í landinu, er vafalaust Ólafur FYiðriksson. Hann stofnaði fyrsta jafnaðarmannafélag landsins, ritstýrði siðan dagvsbrúnum og alþýðublöðum, stofnaða hásetafé- lag og alþýðusamband og vann manna mest að umhirðu þessara nytjajurta ;sinna fyrstu áratugina, léði þeim skjól með því að standa sjálfur í eldlínunni og veitti þeim það vaxtar- magn, sem gert hefur þau síðar að nytsömum samtökum aðstandenda sinna. Ólafur Friðriksson fæddist 16. ágúst 1886 á Eskifirði. Foreldrar hans voru hjónin Ragnheiður Jóns- ■dóttir og Friðrik Möller póstaf- greiðslumaður þar og siðar póst- meistari á Akureyri. Föðurætt Ólafs er dönsk að langfegðatali, en mun hafa flutzt hingað til lands um alda- mótin 1800 og hefur síðan blandað blóði og geði við Island og Islendinga. ■ólafnr gekk í Gagnfræðaskólann á Akureyri og útskrifaðist þaðan 1903, ekki með neitt óskaplegri einkunn. Hann sigldi utan til Kaupmannahafn- ai' 1906 og þar var hann á níunda ár við margháttuð störf og nám. Á því tímabili skrifaði hann greinar í hér- lend blöð; til dæmis þess efnis, ,,að landið ætti nógan auð handa þjóð- ir.ni, ef menn hagnýttu hann og skiptu honum réttilega.“ Hann vildi einlægt leiða menn í allan sannleika um jafnaðarstefnuna, sem hann taldi allra meina bót í þjóðfélaginu, •ef rétt væri á haldið. Heim kom hann svo vorið 1914 og hélt þá til Akureyrar. Þar stofnaði hann fyi'sta jafnaðarmannafélag landsins. Eftir nokkra veru á Akur- eyri hélt Ólafur til Reykjavíkur. Hann segir: ,,Ég kom til að sannfæra Islendinga um, að nauðsynlegt væri, að þeir tæku upp að minnsta kosti að nokkru leyti fyrirkomulag jafn- aðarstefnunnar.“ Með komu Ólafs til Reykjavíkur var að sönnu brotið blað í sögu verkalýðshreyfingarinnar á íslandi. Hann hafði ekkert minna verkefni í huga en leiða Islendinga í allan sann- leika um jafnaðarstefnuna — og leizt fæstum það sældarbrauð eða smá- ræði, enda var hugsunarháttur al- mennings þá mjög fjarhuga slíkum stefnum, slæmur orðrómur hafði borizt erlendis frá, og svo voru al- þýðumenn næsta skeytingarlausir um öll hagsmunasamtök. Hins vegar vofðu yfir þær breytingar á atvinnu- lífi landsmanna, að þær gerðu jafn- aðarstefnuna hugsanlegri. Or LAFUR Friðriksson hóf útgáfu blaðsins Dagsbrún stuttu eft- ir komu sína til Reykjavíkur og hélt því úti, unz Alþýðublaðið hóf göngu sína árið 1919, en þá varð hann ritstjóri þess og hélt þeim sess til 1922, er honum var vikið frá ritstjórn. Ólafur lét nefnilega aldrei kúska sig eftir þægð og hagsmunum forystunnar, heldur fór sínu algjör- lega fram og skeytti litt um eigin hag. Samtals hefur hann þrem sinn- um verið ritstjóri Alþýðublaðsins og sömuleiðis þrisvar sviptur þeirri tign. Þá átti hann ennfremur stóran hlut að stofnun Alþýðuflokksins og Alþýðusambandsins og var formaður þess um skeið og lengþ í stjórn og á- vallt setið á þingum og hefur hann þótt þar ómissandi fastur liður á dagskránni. Ekki eru enn upp tald- ar allar félagastofnanir Ólafs eða brautryðjendastörf, þvi hann gekkst fyrir stofnun Hásetafélags Reykja- víkur, sem nú heitir ámóta þjóðlegu nafni og Sjómannafélag Reykjavíkur og átti sæti þar í stjórn og setið sí- fellt á þingum þess! Þá bjó Ólafur í Fjalakettinum að Aðalstræti 8 og var æði gestkvæmt hjá honum þær vikurnar. Afrekin eru samt ekki öll enn, þvi 1915 kom hann því svo fyrir, að bor- inn var fram í fyrsta sinn sjálf- stæður Verkamannalisti, sem auk þessi sigraði í bæjarstjórnarkosning- um það ár. Fáum yngri mönnum eru sennilega ljósir erfiðleikar þeir, sem staðið hafa i vegi fyrir hugsjónaeldi Ólafs á þessum árum. Verkalýðsfélög áttu mikilli andstöðu að mæta og skiln- ingsleysi verkamanna sjálfra dró úr áhrifamætti samtaka þeirra. En orð Ólafs fundu hljómgrunn meðal verka- manna; kjörin voru heldur ekkert sældarbrauð í þá daga, kola- og salt- burður sligaði margan manninn langt fyi'ir aldur fram og húsnæði margra verkamanna þætti nú vart sæmandi búpeningi. Ýmsir höfðu því horn i síðu hans og ýmissa bragða var neytt til að koma Ólafi á kné, en hann harðnaði við hverja raun. „Hákarlinn44 99við andlát íhaldsins!“ □ LAFUR FRIÐRIKSSDN SKAPHAFNIR Ólafs eru fleiri en hér hefur verið upp talið og raunar langtum víðtækari, en rúmast á einu blaði. Hann hefur lagt gjörva hönd á skáldsagnaritun og látið frá sér fara „Allt í lagi í Reykjavík" og „Upphaf Aradætra" og tók sér hálfgert skáldanafn að hætti stórskálda, sem gefa út frum- verk og kallaðist Ólafur við Faxa- fen. „Allt í lagi í Reykjavik“ er eink- ar spennandi saga um bífræfið bankarán, sem undirbúið var af snilli og kænsku, þannig að grafin voru gögn undir fjárhirzlu Landsbankans og hlaupizt á brott með allt heila dótið. Ógnþrungnar stemningar ríkja í bókinni, dulúðgar bréfaskrift- ir ríða þar húsum og skemmtileg spegilmynd hins ýkta smáborgaxalífs, sem hrærist hér S Reykjavík. Þá gaf hann einnig út „Gamanblaðið." EN eitt allia helgasta hugðarmál Ólafs eru alls kyns náttúru- fræðiathuganir; hann hrærist i jarðlögum og gróðurtilraunum, í milli þess sem hann áður fyrr rækt- aði refi og tók sér fyrir hendur að ala iiþP Svartbaka og máva. Hann hefur ritað all mikið um þau efni. Nefna má „Um för Fr. Nansens og félaga yfir meginjökul Grænlands,“ kunnuglegt rit „Um hákarlinn“ og háprósa á borð við „Við tjörnina". Eitt sinn hitti kunningi Ólafs hann á leið sunnan úr Fossvogi. Þar hafði liann nýlokið merkri tilraunastarf- semi í þágu Flóru Islands: Hann hafði um haustið safnað allmiklu af fræjum af ■ jurtum og blómum, úr holtunum og móunum i kring. Síðan sáði hann öllum fræjunum, en lán- aðist ekki að koma einni einustu upp. Kunninginn spurði, hverju hlutverki slíkar tilraunir þjónuðu. Þá hélt Ól- afur yfir honum stuttan ræðustúf, þar sem margt kemur fram í skap- gerð mannsins: „Þú veizt, að það er iðulega verið að gera tilraunir með útlendar nytjajurtir eða skrautblóm og trjátegundir. Og þær. misheppnast oft. Þá segja menn, að þetta sé þýðingar- laust, þessar jurta- tegundir geti ekki þrifizt á Islandi. Nú hef ég gert samskon- ar tilraunir með fræ af íslenzkum jurtum. Hún hefur mis- tekizt, þótt ég hafi reynt að gæta allr- En það er ekki hægt JORIÐ 1918 fór Ólafur til Kaup- mannahafnar og hugðist fá því framgengt við danska jafnað- ttrmenn, að fullnægt yrði kröfuna meirihluta Islendinga um sjálfstæði. Vissir sagnfræðingar telja, að það hafi orðið til þess, að nefndir voru skipaðar' til að gera tillögur um lausn sambandsmálsins, og má mikið rétt Itá ar varúðar að segja að þær jurtir geti ekki þrif- izt hér á landi, því að þær vaxa hér alls staðar I kringum okkur. Og eins er með ýmsar af hinum tilraunun- um; það sannar ekki nokkurn skap- aðan hlut, þótt þær mistakist einu sinni, tvisvar, oftar.“ Þarna er Ólafi nokkuð vel lýst með eigin orðum. Það hvarflar ekki að honum að gef- ast upp, þótt í móti blási í fyrstu; hann gerir aðra tih'aun, síðan koll af kolli, þar til árangur hefur náðst. Það er þessi eiginleiki, sem hefur orðið mörgu góðu málefni, sem mað- urinn hefur stutt, til ómetanlegs liðsauka, en hinsvegai' hefur hann sennilega sjálfur goldið þess. Á sinum tíma stóð Ólafui' i sti'iði miklu útaf rússneskum dreng, ér hér var í hans umsjá. Þá var honum stungið í „Steininn", eftir mikið hark og læti, þannig að lá nærri uppreisn- artilraun. Þegar Ólafur var laus úr dýflissunni birti hann í blaði sínu Alþýðublaðinu eftirfarandi fyrirsögn; „Kristján Friðriksson náðar Ólaf Friðriksson." Þótti þetta æði mikil dirfska að tala á þennan hátt um sjálfan konung vorn, sem þá var. Um hríð hneigðist Ólafur til fylgi- lags við svonefnda ,,bolsjevika“; fannst honum forystulið Alþýðu- flokksins nokkuð lúið' og spakt, svo það samrýmdist ekki hinum róttæku sósialdemókratísku skoðunum, sem hann hafði alið i brjósti af brennandi áhuga árafjöld. Ólafur Friðriksson er einn þeirra manna, sem sagan mun varöveita betur en kynslóð hans hefur hingað til gert. Á yngri árum leiddi hann á „í’éttar brautir" þá menn, sem síð- ar urðu leiðandi menn Alþýðuflokks- ins. Margir minnast enn þrumandi hvatninga hans í gömlu Bárubúðinni og Stefán Jóhann Stefánsson, Am- bassador minnist sjálfsagt prédikana hans á Skjaldbreið og Uppsölum. Þá gæti verið, að Haraldur Guðmunds- son Ambassador hafi ekki gleymt gönguferðum þeirra, þegar Ólafur rótfesti jafnaðarstefnuna í huga hans. Hann er enn yngri í anda en flestir ungu menninir, sem hann talar við á kaffihúsunum, þótt hann drekki ekki og sé bannmaður á vin. Hann er léttur á fæti og fús til rökræðna, ef menn sýna sanngirni. Hann er sennilega einhver mesti sjórnmála- spekúlant samtímans, athugull nátt- úrufræðingur, fyrrverandi rithöfund- ur, byltingaseggur, hugsjónamaður og stækur bindindismaður. A7IKAN 5

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.