Vikan


Vikan - 26.03.1959, Side 7

Vikan - 26.03.1959, Side 7
H ERRA TÍZKA N \ : \ 1 9 5 9 Hið fastmótaða snið á kjólföt- nm og smóking hefur alla tíé verið mjög litlum breytingum undirorpið. Því fremur reyna tízkuhöfundarnir að mýkjii hinar sterku línur með fínlegri viðbót. Til dæmis hefur eina þeirra (Van Laack) gert skyrtu fyrir smóking með 110 saum- uðum smáfellingum yfir brjóst- ið, sem gefa honum glæsilegan svip. Á tízkusýningu í Köln fyrir skömmu vakti fjólublár kjóll (kjólföt) mikla hrifningu. Einnig eru menn farnir að nota smóking úr ryðrauðum, dimm- bláum og gráum efnrnn, svo og silkiuppbrot í skærum litum á sumrin. Tillaga fyrir næsta sumar: Einhnepptur jakki úr flannel með röndum í beis, brúnum og hvítum lit. Hann er með ská- halla vasa og einn hnapp, sem beinir athyglinni að kaffibrúnu vesti. Einhnepptur jakki úr flannel, blágrár að lit, með sport- sniði. Þrír hnappar eru að framan, lítið eitt skásettir vasar og smúpeningavasi. Buxur eru uppbrotslausar. Sportfrakki með belti, sem er bundið. Efnið er velour í nougat-lit. Við einhnepptan sportjakka úr gráu ullarefni með gulum rúðum eru notaðar gráar einlitar hnébuxur (sportbuxur). Jakkinn hefur þrjá hnappa, tvo ásaumaða vasa og hliðar klaufar. VIKAN 7

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.