Vikan - 26.03.1959, Síða 19
HERRAVEIZLA
Vegurinn að hjarta
mannsins liggur í gegnum
magann —■ segja Danir —
og þótt við vitum, að þetta
eigi ekki við Islendinga, þá
vitum við samt, að hinu
veika kyni fyrirgefst margt
með þvi að hafa góðan mat
á boðstólum, og ekki mun
það vera verra að bjóða
upp á eitt glas á undan
matnum.
Þar sem við höfum hætt
okkur út á jafn hálan ís
og að ræða um herratízku
og meir en það í blaðinu í
dag, og vitum alveg fyrir
fram, að herrar kunna alls
ekki að meta það, — eins
og við höfum þó haft fyrir
þessu — viljum við reyna
að gleðja hjörtu þeirra með
uppskriftum, sem við vit-
um að falla þeim vel í geð.
Herra veizla.
Kalt borð.
Kalt hangikjöt með græn-
um baunum og kartöflu-
stöppu.
Svinasteik með rauðkáli,
kartöflum og grænmeti,
Heit sósan er borin með.
Steikt hænsni i hvítri sósu.
Lax í mayonnaise.
Síldarréttir.
Skyrhákarl.
Harðfiskur m/smjöri.
Ýmis konar ostar.
Brauð og smjör.
Pilsner og bjór til drykkjar.
Eftirmatur
Pineapple Pecan Sundee
ís-réttur.
Hænsni í hvítri sósu.
1—2 hænur,
sjóðandi vatn, salt
1 stór gulrófusneið,
1 gulróí,
55 g smjörlíki,
55 g hveiti,
9 di hænusoð,
2 eggjarauður,
salt,
y4 dl þykkur rjómi,
1 tsk. sitrónusafi,
i/i dl slierry eða mad-
eira.
Sjóðið hænuna i salt-
vatni, þar til kjötið er
meyrt, 2—4 klst. Búið til
ljósa sósu. Jafnið hana
með eggjarauðunum, hrærð-
um með salti og rjóma.
Bætið sitrónusafa og víni i.
Hellið sósunni yfir kjötið.
Raðið smjördeigstiglum og
skornum tómötum utan
með.
Síld i tómat og oliu.
2 saltsildar,
4 msk. tómatsósa,
4 msk. vínedik,
4 msk. söxuð steinselja.
Htvatnið síldina, flakið
og roðflettið. Skerið flökin
á ská í ræmur, leggið þau
síðan á fat sem heil væru,
blandið tómatsósu, olíu og
ediki og hellið blöndunna
yfir flökin. Skreytið með
saxaðri steinselju.
Síldareggjakaka.
3 saltsildar,
800 g kartöflur,
225 g grulrætur,
150 g smjörliki,
30 g saxaður laukur,
/i tsk. pipar,
25 g hveiti,
3 dl rjómamjólk,
1 egg,
söxuð steinselja.
Útvatnið, flakið og roð-
flettið sildina. Skerið flökin
í ræmur þvert yfir, sjóðið
kartöflur og gulrætur og
sneiðið laukinn. Leggið síld,
kartöflur, gulrætur og lauk
i lögum í eldfast mót, strá-
ið pipar inn á milli, og legg-
ið smjörlíkið í bitum hér
og þar, hrærið saman
hveiti, mjólk, eggjum og
steinselju og hellið í mótið.
Bakið í ofni í 40—50 mín.
Reyksíldarbakstur.
3 reyktar síldar,
pipar,
1 /2 msk. saxað dill,
30 g smjörlíki,
4 msk. þykkur rjómi.
Takiö roðið af síldinni og
beinin úr henni, bitið hana
niður og leggið hana í
smurt, eldfast mót. Stráið
dilli og pipar yfir og hellið
rjómanum út á. Skiptið
smjörlíkinu í bita og setjið
þá yfir hér og þar og bakið.
Síldarsalat.
1 saltsíld, eða krydd-
síld,
100 g soðið kjöt,
100 g soðnar, kaldar
kartöflur,
100 g soðnar, kaldar
gulrætur,
3 sneiðar rauðrófur,
1 nýtt epli,
V4 laukur,
4 msk. þykkur rjómi,
1 /i tsk. edik,
/2 tsk. sykur,
hvítur pipar.
Ltvatnið, verkið og flák-
ið sildina. Leggið flökin
í bleyti í mjólk 1—2 klst.
Takið síldina upp og látið
renna af henni. Skerið alli
i smábita og blandið saman.
Hrærið saman rjóma, ediki,
sykri og pipar og blandið
saman við. Leggið í skál og
skreytið með söxuðum
rauðrófum, saxaðri soðinni
eggjahvítu og steinselju.
Sildarvefjur.
3— 4 saltsíldar,
laukur,
pipar.
Vefjið síldarflökin saman.
frá sporði að hnakka, og
festið með negulnagla. Strá-
ið gjarnan flökin með söx-
uðum lauk og pipar, áður
en þau eru vafin upp. Rað-
ið vef junum á fát og skreyt-
ið með steinseljubrúskum.
Ostfrauð.
60 g smjörlíki,
60 g hveiti,
41/2 dl mjólk eða rjómi,
4— 6 egg,
salí,
pipar, .
6 ma. riíinn, sterkur .
ostur.
Búið til jafning úr smjör-
líki, hveiti og rjóma og
sjóðið hann í 5 min. Kælið
lítið eitt. Hrærið þá eggja-
rauðunum saman við og
og kryddið. Stifþeytið hvít-
urnar og blandið þeim og
ostinum saman við. Hellið
jafninginum i vel smurt
mót og bakið við hægan
hita í vatnsbaði i 40—50
min. Berið fram með
hrærðu smjöri.
Pineapple Pecan Sundee.
Látið 5 únsur af ís á disk.
Setjið eina únsu af ananat
sýrópi yfir ísinn og setjið
siðan eina skeið af þeyttum
rjóma ofan á. Skreytið með
hálfri únsu af heilum eða
söxuðum hnetum.
Laugavegi 17 — Framnesvegi 2.
með spennu:
stærðir 40—46
ltr. 114.50
stærðir 35—38
kr. 97.50
KARLMANNABOMSUR
með rennilás:
stærðir 40—46
kr. 147.85
Erum vel birgir af sérstaklega vönduðum og sterkum, en
Iéttum og liprum, gúmmístígvélum fyrir karlmenn.
SKÖVEIIZLVN
vetun* AttcOi&S'S&uvi
DRENGJABOMSUR
með spennu:
stærðir 40—46
kr. 147.50
Sendum l póstkröfu um allt land.
VIKAN
19