Vikan


Vikan - 23.04.1959, Page 6

Vikan - 23.04.1959, Page 6
AFBRÝÐÍ Mannlegar tilfinníngar eru margvíslega samanslungnar, og íslenzk tunga á sér mörg orð um geðblæ og geðbrigði manna. Eitt þeirra er afbrýðin. Flestum mun finnast hún meðal hinna hvimleið- ari geðshræringa, bæði þeim sem haldnir eru afbrýði og eins hinum sem verða fyrir henni. Samt er hún jafn nauðsynleg í sálarbúinu og aðrar tilfinningar. Ef hana vant- ar algjörlega er eitthvað að. Það bendir til þess að geðrænt sam- band manns við aðrar persónur sé ákaflega dauft og litlaust, að við- komandi hafi lokazt inni í sjálfum sér, að hann sé hvorki fær um að elska né hata. Og hversu litbrigða- lítið er ekki líf slíks manns. En á sama hátt og afbrýðin get- ur verið sjúklega lítil, — eins get- ur hún verið sjúklega mikil. Það er hún ef hún hlítir í engu forsjá skynseminnar, virðir staðreyndir og veruleika að vettugi, en geis- ar fram lausbeizluð og óviðráðan- leg. Þetta má sjá i vissum tegund- um geðveiki og ennfremur er það ofur algengt meðal drykkjusjúkl- inga. Afbrýði barnsins vaknar. Fyrstu tvö árin er varla hægt að tala um eiginlega afbrýði hjá börnum. Að vísu er algengt að sjá ýmis geðbrigði hjá börnum á öðru ári, sem mjög svipar til afbrýði. En þau eru fremur fyrirboði þess er koma skal en eiginleg afbrýði. Skilyrðin fyrir því að afbrýði megi þróast, er að barnið skynji og skilji þá sem mest eiga saman við það að sælda sem persónur gædd- ar likum kenndum og það er sjálft. Og það krefst talsverðs andlegs þroska. Þvi þroskastigi er náð á þriðja árinu. Þá er sem Ijúkist upp ný veröld fyrir barn- inu, veröld geðtengslanna. Það skynjar heim ástar og haturs. Og i fyrstu verður því örðugt að fóta sig, líkt og verður í bókstafleg- um skilningi, þegar barnið lærir fyrst að ganga. Nú er það ofur algengt að ýmis atvik gerist á þessum aldri, sem auka afbrýðina um allan helming, gefa henni byr undir báða vængi. Hið algengasta er að lítið systkini bætist í hópinn. Við aðstæður sem þessar á hið lítt þroskaða barn í miklum erfiðleikum. Það sveiflast milli ástar og haturs og erfiðfeik- arnir verða sárastir vegna þess að jafnaðarlega eru það sömu persón- urnar, — faðir, móðir, systkini, — sem eru elskuð og hötuð i senn. Hvernig leysir barnið þessa erfiðloika sína? Mörgum bömum verða þeir vissulega ofurefli, og af hljótast varanlegir skapgerðar- gallar eða taugaveiklunareinkenni. En flest börn vinna þó signr og má hiklaust telja það með hinum meiri furðuverkum mannssálar- innar hvemig sá sigur vinnst. Hið afbrýðissama barn telur sig svik- ið af foreldrum sínum og það býst sífellt við nýjum svikum. Það grunar, að farið sé á bak við það. Þessi nagandi grunur kveikir í forvitninni, skerpir athyglina og skilninginn. M. ö. o. bamið fer nú fyrst fyrir alvöru að velta fyr- ir sér ráðgátum lífs síns. Afbrýðin er þannig frumkvöðull hinnar frjóu, skapandi hugsimar, hugar- flugslns. I glímunni við hana vex löngunin eftir réttlæti, sem skipar svo mjög stórt rúm í hugum allra hugsandi manna. Af forvitni barnsins sprettur hinn óseðjandi rannsóknarandi og þrá eftir sannleika, sem er eitt af aðals- merkjum mannsandans. Spurningarþörf barnsins byrjar á þessum aldri og fer sívaxandi á næstu árum, og ef vel er hættir maðurinn aldrei að spyrja. Falinn eldur. Það má því auðsætt vera að af- brýðin er í hæsta máta jákvætt afl í sálarlífinu, sem foreldrum ber að rækta og hlú að. Þetta má þó ekki misskiljast. Ræktun af- brýðinnar er fólgin í tvennu. Ann- ars vegar því að foreldramir hindri hana ekki um of í framrás sinni. Þ’áð er hægt t. d. með því að gefa barninu aldrei tækifæri til afbrýði. Barn sem aldrei hefir Iært að elska verður ekki afbrýðis- samt. Og það er eitt af uppeld- ishlutverkum foreldranna að kenna barninu að elska, — bæði að þiggja ást og gefa ást. For- eldrar geta einnig af misskilinni nærgætni við barnið farið svo laumulega með ástaratlot sin, að barnið renni aldrei grun 1 hið raun- verulega samband foreldranna. Það er ennfremur hindrun á eðli- legri framrás afbrýðinnar, ef for- eldrarnir láta stjórnast af henni, verða þrælar hennar og þjónar, e. t. v. einnig af misskilinni nær- gætni við barnið. Á hinn bóginn ber foreldrum að hlúa svo að sál- arheill barna sinna, að afbrýðin flæði ekki yfir bakka sína. Það getur að vísu oft verið mjög erfitt ef börnin eru að eðlisfari geðrík og viðkvæm og aðstæðurnar and- i snúnar. Bezta reglan er sjálfsagt að sýna hinu afbrýðissama barni ávallt sömu nærgætni og öðrum ástvinum fullorðnum. Foreldrar skyldu vandlega forðast að kynda undir eldum afbrýðinnar að ó- þörfu. Það kann að virðast óþarfi að taka þetta fram. En vissulega má stundum sjá að fullorðnir henda gaman að afbrýðissjúkum börnum. Afbrýði þeirra getur orkað sem hjákátleg skopstæling á kenndum fullorðinna. Ef til vill sjá þeir endurvarp sinna eigin kennda. Það getur vakið svipaða kátínu og að sjá mannlegum hormum endurvarpað i skrmgi- búningi af leiksviði. Foreldrum og öffrum er vel- komið að skrifa þættinum og leita úrlausnar á þeim vanda- rnúlum er þeir kunna að stríða við, Höfundur þáttarins mun leitast við að leysa vandræði allra er til hans ieita. Öll bréf sem þættinum eru send skulu stiluð tii Vik- unnar, pósthóif 149. Umslagið merkt: „Foreldraþáttur“. Afbrýðin heliög orkulind. Afbrýðisöm börn geta beint af- ar sárum skotum að foreldrum sin- um, einkum ef þau eru vel gefin. Þau eru furðu lagin á að finna hina viðkvæmustu bletti. Og eng- inn er með öllu albrynjaður. Ein- mitt í þessum tilvikum reynir mjög á uppeldishæfni foreldra. Nefna mætti mörg dæmi og verður hér eitt tekið af handa hófi: Telpa ein (5 ára) sagði í reiði- kasti við móður sína: „Pabbi hefði átt að fá sér aðra konu, af því að þú ert alltaf svo vond við mig.“ Þessi orð særðu móðurina. Hún átti erfitt _ með að gleyma þeim, því að í' rauninni fannst henni stundum skorta á að hún væri góð móðir og eiginkona. Og það sem verra var: sá grunur læddist inn hjá henni, að telpan hennar myndi vera illa innrætt. Þetta voru alvarleg mistök. Og mistökin voru fyrst og fremst fólgin í því, að móðirin gleymdi því að dóttir hennar var aðeins 5 ára og að orð hennar voru á- byrgðarlaust reiðihjal þess sem alls ekki er fær um að meta að- stæður. Þau merktu að sjálfsögðu ekki það að barninu þætti ekki vænt um mömmu sína. Andartaki síðar voru þau gleymd, og þá gat barnið alls ekki skilið hvers vegna mamma var ennþá reið. Höfuðreglan er, — og hún er mikilvæg —, að foreldrarnir gleymi því aldrei, þrátt fyrir nöp- ur sáryrði, sem hitta vel í mark, að þeir eru fullorðnir og geðrænir verndarar barnanna sinna, en að börnin eru lítið þroskuð og á- byrgðarlaus. Sú skoðun er algeng, að góð bernska sé og eigi að vera rósum stráður vegur, hinn áhyggjulaus- asti og ánægjulegasti kafli ævlnn- ar. Vera má að svo sé hjá sumum, en algengara mun þó hitt, að menn gylli fyrir sér fortíð sína og hyll- ist til að muna það eitt, sem á- nægjulegt er. Sannleikurinn um bernskuna er sá, að hún er stormasamasta æviskeiðið sé allt með felldu. Þá eru margar blik- ur á lofti. Á þeim árum mótast maðurinn og hefur sig úr ríki dýr- anna til mannlegs lífs. Óralöng vegferð er farin á undraskömm- um tíma. Hvert eitt skref sem stigið er kostar fórnir. Og þær fórnir eru ekki alltaf léttar. Að framan vai’ minnzt á sársauka afbrýðinnar. Og af þeim sársauka spretta margir hinir fegurstu laukar. En hafa ber í huga, að uppskeran er undir þvi komin að aibrýðin verði að andlegri orku- lind, en búi ekki um sig sem við- kvæmt kýli, einangrað í sálarlif- inu. Margir komast til fullorðins- ára með þau sárindi og losna ekki við þau. Hið heilbrigða er, að fullorðið fólk kennl afbrýðissemi, þegar ástæða er til, og undrist hvorki þá kennd né hræðist hana, og beitl raunhæfum ráðum til að eyða henni. Hvort einstaklingur- inn kemst þannig undirbúinn til fullorðins áranna er mjög undir uppeldinu komið. Bigwrjón Bjömsson. 6 VIKAN

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.