Vikan - 04.06.1959, Blaðsíða 6
„Mér finnst ég stundum ekki hafa
gáfur til neins,“ segir Anthony
Perkins. Eln hann hefur sýnt, að
hvað leikgáfur snertir, stendur hann
James Dean heitnum ails ekki að
baki. Og hann nýtur ámóta hylli.
Hann er grannur, ungur maður með
óvissuglampa í augum. Og hann leik-
ur ekki beinlinis — það er engu
Ukara en hann semji orðin um leið
og hann kemur fram fyrir mynda-
vélina.
1 myndinni Fear Strihes Out, sem
veitti honum frama, var hann mis-
skilinn, vesæll og geðveill, og þurfti
sannarlega hjálpar með — sem hann
og fékk. Og þótt undarlegt megi virð-
ast, kynnti hann sér og bjóst til að
leika aðalhlutverkið í East Of Eden,
en James Dean fékk loks hlutverkið,
þegar á hólminn kom.
Það er hætt við því, að allir þeir,
sem eru að reyna að líkja eftir James
Dean, geti gefið allt upp á bátinn.
Því að Anthony Perkins hefur tekið
við af James Dean. I fyrsta lagi er
hann fjölhæfari. Lítum bara á síð-
ustu myndir hans. 1 The Tin Star
komst hann klakklaust í gegnum kú-
rekahlutverk á móti Henry Fonda,
og stóð honum alls ekki að baki.
1 myndinni The Sea Wall lék hann
ástriðufullt ungmenni á móti italska
„skassinu“ Silvana Mangano. Og í
myndinni Desire Under The Elms
reyndi hann við nútímahlutverk eft-
ir leikritaskáldið Eugene O'Neill og
sannaði enn f jölhæfni sína.
„Eg vil að fólk segi mér, að eitt-
hvað sé í mig spunnið," segir hann,
„vegna þess að ég get gefið svo marg-
ar ástæður fyrir því, að ekkert sé i
mig spunnið." En Perkins vegnar
vel og kann að haga sér, sjálfum sér
í hag. Hann lék í leikritinu Look
Homeward ..Angel.“ á Brodaway,
þegar hann var búinn að leika í mynd
O’Neill. Ástæðan: „Að læra að leika
af lífi og sál.“
Þetta er nokkuð sem James Dean
— eða aðdáendahópur hans — hefði
aldrei lagt út í. Og manni er nær að
halda, að Perkins beri höfuð og herð-
ar yfir þá alla.
Hinn síungi BING GROSBY
er fjölhæfur listamaður
Hann fékk Oscars-verðlaunin
fyrir leik sinn í „Going My
Way.“
Hann fæddist SO. maí 1904 1
Tacama í Washingtonfylld í Banda-
ríkjunum og var skírður Harry Liilis
Crosby. Það var upphaflega ætlunin,
að hann yrði lögfræðingur, en þegar
á skólaárunum fór hann að hafa
áhuga á tónlist.
Ferill hans hófst í rauninni, þegar
hann tók að leika í hljómsveit —
The Juicy Seven — sem trommu-
leikari. Siðan kynntist hann A1 Rink-
er og Harry Barris, en þeir stofnuðu
The Rythm Boys og fengu vinnu hjá
einum frægasta danshljómsveitar-
arstjóra þeirra tíma — Paul White-
man.
Þeir ferðuðust um landið með
Whiteman og komu fram í kvik-
mynd hans The King Of Jazz — i
fyrsta sinn sem Bing kom fram fyr-
ir myndavélina. Þegar Whiteman fór
frá Hollywood urðu þeir eftir, og
brátt var Bing ráðinn til þess að
koma fram í nokkrum smámyndum.
Síðan kom fyrsta verulega hlutverk
hans — í The Big Broadcast of 1933.
Hin rólega rödd Crosbys varð fræg
um öll Bandaríkin og reyndar um
allan heim. Plötur hans seldust i
milljónatali. Og að lokum tók hann
að syngja í kvikmyndum.
Hann kom fram í nokkrum söng-
leikjum — Bing, You Sinners, fyrstu
útgáfunni af Anything Goes, Pennies
From Heaven, Rythm On The Range,
Blue Skies, Birth of The Blues..
Þeir Bob Hope urðu afar vinsælir
félagar; Bing ásamt Bob Hope og
Dorothy Lamour urðu víðfræg fyrir
„leiða“ myndír sínar — leiðin til —
Singapore, Zanzibar, Morocco,
Utopia, Rio og Bali. Og árið 1944
fékk hann Oscar-verðlaunin fyrir
leik sinn í Going My Way.
Án nokkurs vafa er Crosby einn
mesti sviðs- og tjaldsmaður síns
tima. Hann hefur „slegið í gegn“ í
nánast öllum greinum skemmtana
nema sem hreinn sviðsleikari.
Eins og margir, sem hófu feril
sinn með því að syngja inn á plötu,
sem náði vinsældum, er Bing nú orð-
tnn leikari á við beztu leikar — til
dæmis er ein nýjasta mynd hans, Man
On Fire, og bent var á hann sem
viðtak’anda Oscar-verðlaunanna fyrir
leik sinn í The Country Girl. En
hann getur einnig sýnt hæfni sína
í söngvamyndum eins og White
Christmas og High Society, sem varð
arðbærasta myndin í fyrra. Bing
giftist Kathy Grant í fyrra.
í»að er sagt að líf
hans sé eitt mesta
æf intýrið í Hollywood.
6
VIKAN