Vikan - 04.06.1959, Blaðsíða 27
Sól og heilbrigð augu
Það vill svo heppilega til, að það
er sem stendur í tízku að nota sól-
gleraugu. Sem stendur er litið á.
þetta sem ómissandi hluta velklædds
fólks. Guði sé lof, verður að segja,
því að þannig komast menn hjá alls
kyns óáran, sem annars myndi sækja
á óvarin augun.
Fyrir fáeinum árum áleit ungt
fólk það hreint og beint veimiltítu-
legt, ef menn settu upp sólgleraugu,
þegar þeir lásu, fóru í sólbað eða
gengu í snjóbirtu.
Afleiðing of sterks sólarljóss get-
ur orðið roði og erting á augum. Það
er erfitt að halda þeim opnum, og
þegar augun hlaupa upp, getur það
orðið til þess, að maðurinn verður
nokkurs konar ljósmyndavél. Ljós-
geislarnir brotna gegnum linsu aug-
ans, og myndin birtist á nethimn-
unni. Þaðan flyzt myndin til sjón-
armiðstöðvar heilans, það er að segja
meðvitundin skynjar myndina. Ef
birtan er of sterk, getur þetta ert
og jafnvel skaddað nethimnuna.
Flestir hafa reynt að safna ljós-
geislum gegnum linsu og beina
brennipúnktinum að bréfsnepli. Eft-
ir örstutta stund kviknar í bréf-
sneplinum. Það er á vissan hátt
næstum hið sama sem gerist, þegar
nethimnan er oflýst.
Þegar við skynjum skyndilega
mikla birtu, sjáum við ekkert eitt
andartak, einkum ef komið er út
næstum algerlega óvinnuhæfur. Auk
þessarrar bólgu, getur of sterk
birta haft skaðleg áhrif á sjónina.
Stundum heyrum við börn gorta
sig á því, að þau geti horft beint í
sólina. Þetta skyldi enginn leika eft-
ir. Þetta þolir enginn, án þess að
skerða sjónina.
Við vitum öll, að t. d. þegar sól-
myrkvi er, verðum við að setja upp
dökk gleraugu •— helzt svört — ef
við ætlum að horfa í sólina. Einmitt
þegar þannig stendur á, hættir
mönnum til þess að horfa of lengi í
sólina með berum augum, en þetta
getur orsakað sjónskerðingu ef ekki
blindu.
Við hafið endurvarpast sólin af
haffletinum. Ef horft er lengi á haf-
flötinn í mikilli birtu, getur þetta
haft í för með sér augnabólgu, sem
getur leitt til sjónskerðingar.
Til þess að skilja hættuna, verða
menn að gera sér ljóst, að augað er
SPAUG
Wessel hafði orkt nokkrar vísur
og hafði borgarstjóri einn tekið þær
til sín. Sagði hann því einu sinni svo
að Wessel heyrði:
„Wessel þekktist á því, hvað hann
hefur löngu eyru.“
„Það getur nú verið,“ svaraði
Wessel, „að eyrun á mér séu heldur
löng, eftir þvi sem mannseyru ger-
ast; en yðar eyru eru aftur á móti
nokkuð stutt, þar sem um asnaeyru
er að ræða.“
úr niðamyrkri. Allir þekkja það,
þegar ljósin frá bíl um hánótt birt-
ast skyndilega, en það veldur algerri
stundarblindu.
Einnig að vetri til er hættulegt
að skýla ekki augunum í snjó og mik-
illi sól. Hinir óteljandi ískrystalar
endurvarpa ljósinu — krystallarnir
eru eins og fjöldi spegla. Þess vegna
er bráðnauðsynlegt að ganga með
dökk gleraugu, þegar ferðazt er í
snjóbirtu. Heimskautafarar hafa
þrásinnis orðið snjóblindir, ef þeir
hafa týnt gleraugum sínum. Nú á
dögum, þegar vetrarferðir eru næsta
algengar og margir stunda vetrar-
íþróttir, ber öllum að ganga með
dökk gleraugu. Þau eru ómissandi
hluti ferðabúnaðarins.
Við erum næstum öll fædd með
tvö heilbrigð augu. Það er algerlega
undir okkur sjálfum komið, hvort
við varðveitum þau eða ekki.
Einu sinni þegar kona Wessels var
að skamma hann fyrir það, að hann
kæmi fullur heim á kvöldin, sagði
hann: „Kæra kona, það er af ein-
tómri ást til þín að ég drekk, því að
þegar ég er fullur sé ég þig tvöfalda."
Wessel hafði sagt um kona eina,
að hún væri ekki þess verð að hrækt
væri á hana. Honum var stefnt fyrir
rétt og var þess krafizt, að hann
tæki orð sín aftur. Þetta gerði Wessel
með þessum orðum: „Ég tek hér með
ummæli mín aftur; ég sagði að kona
þessi væri ekki þess verð, að hrækt
væri á hana; en nú er hún einmitt
verðug þess."
RÆSTIÐ MEÐ
AFHA
RAFHA ryksugan er smíðuð með vinnusparn-
að fyrir yður í huga. Hún hefur fótstýrðan
rofa, svo þér þurfið ekki að beygja yður við
að setja hana af stað eða stöðva hana. Slang-
an er fest og losuð með einu handtaki. Sér-
staklega smíðuð áhöld fyrir ailar hugsanlegar
aðstæður fylgja henni.
r" - í
i/erá kr. 2,520.00
H.f. Raftækjaverksmiðjan
HAFNARFIRÐI - SÍMAR: 5DD22 DS 5DQ23
VIKAN