Vikan - 15.10.1959, Qupperneq 10
Hrútsmerkiö (21.marz—20. apríl): Eí
til vill verður þér sundurorða við ein-
hvern í fjölskyldunni. En vera kann, að
þetta sé allt á misskilningi reist, og ef
svo er, munu sættir nást, fyrr en varir.
Þú skalt ekki taka mark á ráðleggingum kunningja
þíns, því að þú ert hæglega fær um að ráða fram
úr þessu smávægilega vandamáli.
Nautsmerkiö (21. apríl—21. maí): Þú
vilt kunningjum þínum vel og ert ekki
hræddur við að rétta þeim hjálparhönd,
þegar þeim vegnar illa. Hins vegar er
ekki víst, að einn félagi þinn reynist þér
eins vel og þú hafðir búizt við. Líklega er hann
ekki verður vináttu þinnar.
Tvíburamerkiö (22. maí—21. júní): Þú
verður að sætta þig við það enn um
stundarsakir, þótt þú eigir annríkt og
ekki leiki allt í lyndi. Ef þú ferð ekki
varlega, muntu baka þér óvinsældir
algeriega að ástæðulausu. Um helgina kemur dá-
lítið óvænt fyrir, sem mun án efa gleðja þig
mjög. Heillatala 5.
Krabbamerkiö (22. júní—23. júlí): Þú
verður að vera léttlyndur, ef þú ætlar
ekki að láta bugast af alls kyns mót-
byr þessa viku. En ef þú tekur öllu
andstreymi með jafnaðargeði, mun
líka bráðlega allt leika í lyndi. Á fimmtu-
daginn munt þú koma að máli við ókunnan mann
eða konu, sem veitir þér mikiivægar upplýsingar.
LjónsmerkiÖ (24. júlí—23. ágúst):
Amor verður mikið á ferðinni þessa
viku, og einkanlega mun hann eiga
annríkt meðal ungmenna. Yfirleitt lofa
stjörnurnar góðu þessa viku, en þó
ættu allir að varast allt óhóf. Mánudagurinn
verður einkum konum heilladrjúgur.
MeyjarmerkiÖ (24. ág.—23. sept.):
Undanfarið hefur þú vanrækt bæði
kunningja þína og fjölskyldu, en i
þessari viku gefst þér tækifæri til þess
að bæta úr því, og er sannarlega tími til
kominn. Þú skalt samt alls ekki ásaka sjálfan
þig fyrir þetta, þvi að þú getur lítið að þvi gert.
Vogarmerkiö (24. sept.—23. okt.): Nú
mun ósk þín loks rætast, en það verð-
ur samt á allt annan hátt en þú gerðir
ráð fyrir í fyrstu. Ef þú ert með eitt-
hvert fjármálabrask í huga, skaltu
fyrir alla muni láta það bíða betri tíma. Kvöldin
geta orðið einkar skemmtileg, en þú ættir að
forðast miklar vökur.
DrekamerkiÖ (24. okt.—22. nóv.): Það
gengur mikið á fyrir unga fólkinu
þessa viku, og hætt er á, að sumum
verði á alvarlegt glappaskot. Hins veg-
ar mun roskið fólk lifa tíðindalausu
og friðsælu lífi. Vinur þinn mun biðja þig bónar,
og þú skalt bregðast vel við,
Bogmaöurinn (23. nóv.—21. des.): Ef
til vill verður leitað til þín og þú beð-
inn að ráða fram úr örðugu verkefni,
og sakir dómgreindar þinnar og heil-
brigðrar réttlætistilfinningar munt þú
fyllilega standast kröfur þær, sem til þín verða
gerðar. Mundu að endurnýja happdrættismiðana
þína!
Oeitarmerkiö (22. des.—20. jan.): Þú
mátt fyrir alla muni ekki slá slöku við
á vinustað, því að þú ert kominn í
mikið álit, sem ekki má rýra. Þér
verður að líkindum boðið í samkvæmi,
sem ekki verður samt eins skemmtilegt og búizt
var við. Líklega mun eitthvert leiðinlegt atvik
koma fyrir í þessu samkvæmi.
Vatnsberinn (21. jan.—19. febr.):
Ókunnur maður eða kona gerir þér
óviljandi illan grikk, en ef þú ert kænn
og lætur ekki duttlunga þína ráða
gerðum þínum, mun brátt rætast úr
þessu. Líklega munt þú koma fram opinberlega
í vikulokin og sæta mikilli gagnrýni. Haltu samt
ótrauður áfram. Enginn verður óbarinn biskup.
Fiskamerkiö (20. febr,—20. marz):
Gættu tungu þinnar! Þú ert allt of
lausmáll, og lausmælgi þín kann að
koma sér illa fyrir fleiri en þig. Gerðu
þér ekki of miklar áhyggjur út af
þessu smávægilega glappaskoti þínu. Hugsaðu um
það, hversu lítilvægt þetta verður að svo sem
hálfu ári liðnu. Heiliatala 4.
Klukkan var rúmlega hálfsex. Það var tekið að
rökkva í breiða ganginum, sem lá í gegnum stóra,
nýtízkulega byggingu í miðbænum. Það voru
naumast margir eftir á skrifstofunum á þessum
átta hæðum. Kaupsýslumennirnir voru farnir úr
skrifstofum sínum, þreyttir eftir allt amstur dags-
ins...
Arne Holgersen kaupmaður gerði sér ekki grein
fyrir, að það var orðið svona framorðið. Honum
brá í brún, þegar hann sá, að klukkan var orðin
rúmlega hálfsex. Nú var hann vafalaust einn í
þessu stóra húsi. En hann hafði verið svo önnum
kafinn. Pantanir höfðu streymt inn allan daginn,
menn komu og fóru án afláts, og vafalaust hafði
einnig verið mikið að gera niðri í búðinni á fyrstu
hæð. Einn þeirra síðustu, sem komið höfðu til
hans, var maðurinn með uppgjörið frá Holme &
Co., og það voru engir smámunir, mörg þúsund
krónur. Það var bara leiðinlegt, að hann kæmist
ekki með peningana í banka.
Holgersen verzlaði með fisk og síld í heildsölu,
en auk þess hafði hann eigin smásölu. Hann hafði
hagnazt mjög á fiskviðskiptum undanfarið, og
hann hafði ærna ástæðu til þess að vera ánægður.
En hann lagði líka hart að sér. Hann vann bók-
staflega dægrin löng, sat oft einn eftir — eins og
i dag. Hann var þannig gerður, að hann varð allt-
af að vera að vinna, — ekki til þess, að verkin væru
vel unnin, en honum var illa við að biðja starfs-
fólkið að vinna eftirvinnu. Það átti að fá frí frá
störfum, um leið og klukkan sló.
En nú var hann loksins búinn, skellti bókunum
aftur, bar þær að skápnum og læsti honum. En
hann vildi ekki leggja peningana í skápinn. Hann
stakk úttroðnu veskinu í innri jakkavasa sinn,
hann ætlaði sjálfur að leggja þá í bankann klukk-
an tíu í fyrramálið. Hann setti upp hattinn, náði i
stafinn sinn og gekk niður stigann. Enn var ekki
komin lyfta í húsið. En hann hafði ekki nema
gott af því að hreyfa sig svolítið. Og bráðum gæti
hann haft það notalegt og þyrfti þá ekki að leggja
eins hart að sér.
Hann var einmitt að læsa útidyrunum, þegar
ungur, snyrtilega klæddur maður gekk til hans,
tók ofan og sagði:
— Afsakið, eruð þér Holgersen heildsali?
— Jú, sagði Holgersen og leit á manninn. Hann
var myndarlegur og kom vel fram, en honum féll
ekki við augun — ekki vegna þess, að maðurinn
var sambrýndur — það var ekki lengur talið bera
vitni um afbrotahneigð. En augun voru einhvern
veginn svo flóttaleg ..
— Ég er frá Hoff-ölgerðinni, sagði maðurinn.
Eins og þér vitið, höfum við komið fyrir mötu-
neyti fyrir starfsfólkið hjá okkur. Þar borða um
300 manns. Við höfum verið sviknir um matinn,
og nú verðum við að leita til yðar. Okkur var
hafnað svo seint, að ég komst ekki hingað fyrr en
nú. Eg er með peninga fyrir pöntun morgundags-
ins, við erum vanir að borga ávallt út í hönd..
Hann tók upp veski og tók úr því nokkra stóra
seðla. Um leið rétti hann Holgersen bréf, sem hann
las vandlega. Þetta virtist allt með felldu, skrifað
á stimplaðan pappír ölgerðarinnar, og einnig stóð,
að maðurinn væri innkaupastjóri fyrirtækisins, og
myndin, sem fylgdi, sýndi ljóslega, að þetta var
einn og sami maður. Holgersen hugsaði um þetta
stutta stund: Ef hann hringdi i forráðamenn öl-
gerðarinnar, yrði hann að hringja heim til þeirra,
og það kunni hann ekki sem bezt við. Og hann
gat átt það á hættu, að þeim fyndist hann haga
sér kjánalega og mundu ef til vill hætta að verzla
við hann.
— Ég átti ekki von á að rekast á yður, sagði
maðurinn, en ég rakst á kunningja yðar hérna
i götunni, Stölsmyr, sem er nágranni yðar á fjórðu
hæð. Hann sagði, að þér sætuð að öllum líkindum
enn yfir vinnunnl, og ef ég flýtti mér... Haldið
þér, að þér getið útvegað okkur 300 skammta af
þorskflökum auk grænmetis, þá aðallega gulróta,
í þetta sinn?
Innkaupastjórinn hegðaði sér sannarlega eins
og honum bar. Holgersen þóttist viss um, að hann
hætti ekki á neitt. .. Jú, ætli ég sjái ekki um þetta,
sagði hann Ég skal tala við sölustjórann, þegar
ég kem heim
Ágætt, sagði innkaupastjórinn, ef ég fæ
'S M*A|S A G?A
kvittun hjá yður, getum við lokið þessu strax af.
Ég geri ráð fyrir, að þetta sé fyrsta flokks fiskur
og grænmeti og verðið hafi ekki hækkað að neinu
marki undanfarið? Ég geri einnig ráð fyrir, að
við fáum sama afslátt og hjá hinu fyrirtækinu?
Sannkallaður kaupsýslumaður. Hann var ósvik-
inn þessi. — Ég geri ráð fyrir því, sagði Holgersen,
en ég verð þá að krefjast þess, að þið verzlið við