Vikan - 12.11.1959, Qupperneq 2
Ondvegis
sófaseff
1
Listaverk^eða svindl
Hávaði í húsi
Lausir svamppúðar með rennilási.
Svampur í baki. Armar teak.
Ullaráklæði frá Gefjunni.
Verð kr. 9395,00.
I
1
I
I
%
%
1
1
1
I
I
1
I
Við bjóðum yður góða greiðsluskil- ð
mála eða 10°|o afslátt gegn fl
staðgreiðslu. a
ONDVEGI
t
t
Er útsýnið nokkurs virði?
Kæra Vika.
Þú hefur hjálpað mér sundum áður, og þess
vegna leita ég til þín enn. Svo er mál með vexti,
að við eigum lítið hús og höfum búið þar um
árabil. Þegar við keyptum það, var skipulagsupp-
drátturinn þannig, að gata átti að liggja með
fram húsinu. Svo var skipulagsuppdrættinum
breytt og gatan lögð lengra frá, og nú er verið
að byggja stórhýsi á spildunni, sem skilur lóð
okkar — og hús — frá götunni. Um leið er allt
útsýni frá okkur tekið, þvi að á bak við okkar
hús var einnig byggt stórhýsi fyrir nokkrum árum,
sem snýr út að hinni götunni. Og nú langar mig
til að spyrja þig, hvort við getum ekki fengið
þetta bætt á einhvern hátt. Mér finnst að minnsta
kosti, að útsýnið sé nokkurs virði.
„Konan í litla húsinu".
Ég er hræddur um, að því miður muni
þarna við ramman reip að draga, þar sem
skipulagsyfirvöldin eru annars vegar. Það
mætti segja mér, að þau teldu útsýnið ekki
sérlega mikils virði, þegar svona stendur á.
Eina ráðið væri sennilega að fara franv á
nokkrar skaðabætur á þeinv forsendunv, að
verðgildi hússins hafi lækkað fvrir atbeina
skipulagsins, og mun ekki vonlaust um, að
málið næði þá — að einhverju leyti — franv
að ganga, og ég er ekki frá því að þess kunni
nveira að segja að finnasí dænvi. Það ætti
því ekki að saka, þótt þér rædduð nválið við
liigfræðing, því að þá leið verðið þér eflaust
að fara.
Kátir voru karlar . . .
Kæra Vika.
Hverfið, sem við búum í, hefur alltaf verið
ákaflega hljótt og friðsælt. En fyrir nokkru urðu
eigendaskipti að húsi, sem stendur gegnt okkar við
götuna, og þar með var draumurinn búinn — og
það í bókstaflegri merkingu, því að síðan hefur
okkur varla komið blundur á brá. Þetta virðist
vera allra prýðilegasta fólk og maður hefur ekkert
upp á það að klaga. En þar er oft gestkvæmt, á
síðkvöldum, og upphefst þá söngur mikill og alls-
kyns gaulan og veinan og færist sífellt í aukana
eftir því, sem fjær liður miðnætti og nær morgni,
og gerir þetta okkur í nágrenninu því meiri svefn-
rof, að jafnan eru allir gluggar glenntir upp á
gátt á þessum hávaðasölum. Og nú er Því svo
farið um okkur, nágrannana, að við getum ekki
notað daginn til að bæta okkur upp þann svefn.
sem við missum á nóttuni. Við viljum helzt losna
við allar kærur til lögreglunnar; við höfum aldrei
þurft að gripa til þess leiða ráðs, siðan við flutt-
umst hingað fyrir sjö árum. En hvað skal Þá gera?
Grútsyfjaður.
Laugaveg 133
Símar 14707 og 24277