Vikan - 30.06.1960, Page 5
Á ferð
með Vikunni
til framandi
landa
og fjarlægra
borga.
Síðan Eiríkur rauði nam land í Bröttuhlíð
skammt frá Narsarssuak hefur flest tekið
minni breytingum á Grænlandi en víða
annars staðar. Eldri menn hérlendir mundu
þar kannast við margt sem svipar til gamla
tímans á íslandi.
En ókrýndur konungur Grænlands, hinn árvakri
landfógeti Eske Bruun, var alls staðar nálægur.
Það var sama, hve Þjóðverjar földu sig vel, —
þeir fundust og voru yfirunnir.
I sambandi við flugstöðina var reist stórt ný-
tízku-sjúkrahús, sem á stríðsárunum átti að geta
tekið 15 til 20 þúsund sjúklinga. Rétt fyrir inn-
rásina í Frakkland var allt undir það búið að
geta flogið með þá, sem í henni særðust, allt
norður til Grænlands. Var það gert til þess að
veikja ekki viðnámsþróttinn heima fyrir, ef
manntjónið yrði óskaplegt. Sem betur fór, þurfti
aldrei að nota sjúkrahúsið til fulls.
E’ins og nú standa sakir, er það sparlega notað.
Er það einvörðungu ætlað starfsmönnum stöðvar-
innar, en Bendaríkjamenn eru hjálpsamir. Þegar
þörf krefur, fljúga þeir hiklaust til fjarlægustu
dala Grænlands eftir sjúklingi. Spítalar lar.ds-
manna sjálfra eiga vitaskuld engar sjúkraflug-
vélar.
Bluie West er lokað og afgirt landssvæði, en
eftirlit með þvi er þó ekki látið fara út í öfgar.
Ef hægt er að gefa upp trúlegt erindi i heimsókn
þangað, er mönnum leyft að ganga um stöðina
óáreittir. Það er ekki leitað á neinum, enginn
þarf að ættfæra sig, ekki einu sinni segja til
nafns síns.
Ljósmyndun er ekki leyfð, en þó skiptir enginn
sér af því, þótt ferðamaðurinn taki mynd af fall-
egu landslagi eða hópi hermanna í knattspyrnu.
Ljósmyndarinn ræður því sjálfur, hvað hann leyf-
ir sér að taka með á myndina, og fyrir þær sakir
hefur vísast engum hernaðarleyndarmálum verið
Framhald á bls. 31.
Sauðféð á Grænlandi er af íslenzkum stofni ein-
göngu. Það hefur verið flutt þangað þrisvar síð-
an 1933.