Vikan


Vikan - 30.06.1960, Page 29

Vikan - 30.06.1960, Page 29
gefizt upp né misst trúna á sjálfan sig. „Og þér eruð frábær kona,“ sagði Suzy. — Af hverju kom ástin fólki til að lifa i heimi ímyndunar og draumóra og fær það lil að gleyma, að til sé annað fólk og önnur vanda- mál? Og hvað er ástin í raun og veru? Nærvera Pauls, — snerting hans, hrifningin, sem jókst með degi hverjum? — eða kjarkurinn, að gefast ekki upp, þegar hamingjan var ekki á næstu grösum og sum- ar gleðinnar hafði orðið að víkja fyrir hinum óumflýjanlega vetri? „Nei, ég er hrædd um, að það sé ekki rétt,“ sagði frú Lewis, en það gladdi hana, að Suzy skyldi segja þetta. Stúlkan við hliðina á henni og maðurinn, sem sat andspænis henni, höfðu augsýnilega bitið á agnið, sem hún hafði lagt fyrir þau. „Það er nefnilega þannig,“ sagði Tyman og liellti því, sem eftir var í flöskunni, i glasið, án þess að dropi færi til spillis, af því að nú var hann ekkert að hugsa um, hvort hönd hans titraði. „Ég er feginn að vera ekki einsamall á þessu ferða- lagi, ef ferðalag skyldi kalla ...“ Og með sjálfuin sér bætti hann við: Og í æðri skilningi ferðast ég ekki heldur einsamall. Það hafði verið ósanngjarnt af honum að halda jiessu leyndu fyrir Margaret. Hann hafði reynt að telja sjálfum sér trú um, að hann hefði gert það til að hlífa henni, en í rauninni var hann hræddur um að missa hana. Það gat annars komið fyrir enn þá, en ekki án baráttu. Hann yrði sjálfsagt að hætta við andaveiðarnar og ýmis- legt fleira með tímanum. En ef hann hætti að liugsa um, hvað fólk segði um hann og hvort það vorkenndi honum, gæti hann orðið að mann- eskju aftur, en ekki eins og eitthvert rekald ... Suzy gáði í veskið sitt. Guði sé lof, hún hafði geymt símanúmerið, sem Paul hafði fengið henni. Rödd hans mundi verða í órafjarlægð og kannski meira að segja gremjuleg, hvað sem hún kynni að segja. En hún gæti sagt honum, að hún treysti sér til að bíða. Paul vantaði eigin- konu, ekki nýtt vandamál ... Ellinor tók rögg á sig og lokaði töskunni, sem hún hafði látið prjónadótið í. Hugsunin um dauða manns hennar vakti stöðugt með henni skelfingu. En í fyrsta skipti i langan tíma gladdist hún yfir lif- inu ... Nú fór gólfið i vagninum að titra örlítið. Eitthvert hljóð, sem var eins og mal í ketti, heyrðist um alla lest- ina. Vagnvörðurinn opnaði klefa- dyrnar. „Heyrið þið þetta, herrar mínir og frúr? Það merkir, að lest- in er að komast af stað aftur.“ Þau þrjú, sem sátu I ganginum, brostu hvert til annars. Þetta bros var hvorki fjarrænt né kuldalegt. Þau höfðu gert með sér samning án orða um að kynna sig ekki hvert fyrir öðru, og þau mundu ekki segja neitt, sem máli skipti. Tyman hafði tekið skjalamöppu upp úr bréfa- tösku sinni. Suzy hallaði sér aftur a bak til að fá sér svolítinn blund. Frú Lewis fór i huganum að semja bréf til nefndarmannanna I Was- hington til þess að þakka fyrir heið- ursmerkið og bjóða þeim sams kon- ar þjónustu og maðurinn hennar hafði innt af hendi. Lestin hreyfðist örugglega. Það var alls ekki vist, að liún kæmist áfram hindrunar- laust. En hinn langi biðtími var á enda. A HfSBV(,GJE\DlR HtSEIGENDlIR upplýsingar og sýnishorn af byggingarvörum frá 47 AF HELZTU FYRIRTMJUM LANDSIMS @ opið alla virka daga kl. 1— 6 e.h. nema laugardaga kl. 10—12 f.h. einnig piiðvikud.kvöld kl. 8—10 e.h. öllum heimill ókeypis aðgangur. BYGGIMGARÞJÓMUSTA A. í. Laugaveg 18a — Sími 24344. barnagaman ( 2 Brosandi asninn sparkaði réttara sagt, fótunum stöð- ugt i nára hans og lamdi hann áfram með keyri. Enginn skyldi trúa þvi, að þetta væri sami maðurinn sem 'strauk um hálsinn á Angelo, er hann fæddist. Bóndanum fannst hann vera svikinn hvað Angelo snerti. Angelo átti að vera eins og aðrir asnar, þungur og þrjózkufullur á svip. Þetta bros lians hlaut að stafa af göldrum og fjölkynngi. Það braut í bága við öll lögmál náttúrunnar. Og svo barði hann Angelo áfram! En Angelo hafði fæðzt brosandi, og því var ómögulegt að breyta, því að það kom frá hjartanu. Þolinmóður brokkaði Angelo hina löngu leið til kaupstaðarins. Það kom örsjaldan fyrir, að hann fengi að hvíla sig á leiðinni. Þó gat það skeð, að þeir mættu öðrum bónda og þá var stanzað til að hlusta á slúðursögur og aðrar fréttir. Á með- an naut Angelo þess, að standa und- ir skugga einhvers trés i nágrenn- inu, hugsaði um eitthvað, sem var fallegt og gott, og svipaðist i allar áttir. Hann hafði svo gaman af að virða fyrir sér kindurnar. Honum fannst þær að vísu dálítið heimsku- legar, þar sem þær kollsteyptust niður brekkurnar, jarmandi og dauðhræddar við smalann og gelt- andi hundinn, sem gættu þeirra. Þær voru nú samt ekki lengi að jafna sig, þegar þær fengu grænt gras að bíta. Tilvera þeirra snerist eín- göngu um að seðja maga sinn. Angelo fannst að lifið snerist nefni- lega um margt fleira en fæðuna. Vesalings Angelo, sem fékk litið annað en stympingar, spörk og háðsglósur. En þarna flaug svo ósköp indæll fugl. Hann var næstum eins fallegur og sparisjal bóndafrú- arinnar og jafn litskrúðugur. Hvern- ig var hægt annað en brosa og dáðst að fluginu, þar sem hann sveif svo léttilega yfir trjánum og var svo dásamlega áhyggjulaus. Hátt fyrir ofan i bláma himinsins flaug örn- inn og Angelo fannst eitthvað há- tignarlegt við hann. Hann óskaði þess, að hann hefði einnig vængi og gæti flogið út um víðan geim. En Angelo var það viti borinn, að hann vissi, að óhollt var að girnast það, sem ómögulegt var að eignast, svo að hann beindi huga sínum að öðru. Hann leyfði sér að brágða aðeins á hinum nýútsprungnu blómum, sem voru svo mjúk i munni og gómsæt. En um leið fékk hann sektartil- finningu, og fannst hann hafa hagað sér litlu betur en hver önnur ó- merkileg lcind ... jafnvel þótt kindur séu allra beztu skepnur. Samvizka hans sagði honum, að það væri rangt að telja einn kynflokk betri en hinn. Það var þess vegna seigju allt kvalræðið, er bóndinn lagði honum á herðar. Þannig var nú einu sinni mannskepnan, hugs- aði hann, þetta var einkenni henn- ar kynstofns. Angelo skemmti sér við að horfa á fijúgandi skýjabólstr- ana, sem líktust kvikfénaði á hlaup- um. Hann virti fyrir sér froskpöddu við vegarbrúnina, sem gleypti flugu honum til heiðurs. Jæja, þá mundi sú fluga ekki angra hann. En ihi kom bóndinn og stuggaði allóþyrmi- lega við Angelo. Hann var laminn áfram á nýjan leik í hinu steikjandi sólskini, og draumarnir hurfu allir á svipstundu. Angelo fékk skyndi- lega löngun til að vera horfinn heim til gamla, hrörlega hesthússins, þar sem móðir hans beið, hlý og ástúð- leg. Kvöldin og næturnar i hesthúsinu voru dásamlegar. Þar lá asnamamma vinstra megin við hann og asna- pabbi hægra megin. Ilurinn frá líkömum þeirra var svo notalegur. Angelo brosti til þeirra. En þau svöruðu ekki brosi hans, því þau voru þung á brá eins og asna er háttur. Þau litu hrygg niður til Angelos, þar sem hann lá og hvíld- ist og voru áhyggjufull. — Það er illa farið með drenginn okkar, sagði asnapabbi. — Það er satt, Gráni pabbi, svar- aði asnamamma. — Bak hans ber glögglega merki högga bóndans. En Angelo heyrði ekki til þeirra. Framhald í næsta blaði. VIK A N 29

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.