Vikan


Vikan - 30.06.1960, Síða 35

Vikan - 30.06.1960, Síða 35
Þórskaffi Framhald af bls. 7. — Já það er nú ekki beint fyrir mig, ég hef verið meira í klassískri músík. — En þig hefur langað til að reyna þetta? — Já, já. Næst náum við i Tage Möller pianóleikara, elzta mann hljóm- sveitarinnar. — Hvar byrjaðir þú að spila? — 1933 í Gútto með Bernburg og Jóhannesi, og svo var ég á stríðs- árunum í Iðnó. — Hvar hefur þér þótt skemmti- legast að spila? — Hér i Þórskaffi, — mjög gott samstarfsfólk og gott hljóðfæri, — stór flygill. — Húsin hafa ekki átt flygla í gamla daga? — Nei, það voru oft slæm hljóð- færi. -—■ Þú ert auðvitað búinn að spila i mörgum liúsum á svona löngum tíma? — Já, já, — öllum nema Fram- sóknarhúsinu og Lidó. — Finnst þér svipað að spila nú og áður? — Nei, það er allt frjálsara nú, ekki eins þvingað og það var i gamla daga. Hljómsveitin er byrjuð að leika og fólkið farið að dansa af miklu fjöri, — skottis, ræl, polka og fleira, — ég kann ekki nöfn á þessu öllu. Við náum í Eðvald Malmquist, — en hann sér um allt, sem að aug- lýsingum lýtur fyrir lnisið, — og spyrjum hann nokkurra spurninga. — Hvað er þetta hús gamalt? — Það er tveggja ára. — Hvað tekur það marga gesti? — 320. — Þarf ekki mikið að auglýsa svona staði? — Ojú, — það er allt erfiðara en þegar ekki voru nema 30.000 íbúar og þetta fréttist mann frá manni. Nú gellur við í mikrófóninn: — Allir af stað i Vinarkrus, — herr- arnir bjóða upp. — Hver er þetta? — Þetta er dansstjórinn, Baldur Gunnarsson. Það hefur orðið reynd- in, að fólk er fljótara að hafa sig af stað, ef liafður er dansstjóri. — Hringdans! Herrarnir innan í! Fleiri á gólfið! Fljót nú. Við förum upp á fjórðu hæð og höfum tal af forstjóranum, Ragnari Jónssyni. — Hvernig hefur reksturinn gengið? — Hann hefur gengið ágætlega. — Finnst |)ér ekki vera neitt erf- iðara með svona mörg hús í ná- grenninu? — Nei, það virðist vera betra. — Hafa þau ekki flest styttri danstíma? — Jú, hann er yfirleitt til hálf- tólf í húsunum, sem hafa vínveit- ingaleyfi. — Hefur þú ekki verið að hugsa um að fá þér vínveitingaleyfi? — Nei, ekki enn þá. Það getur verið, að málið breytist eitthvað, en eins og er, þá er þetta ágætt. — Ilefur borið mikið á því, að menn kæmu með vín með sér inn? — Það er mikið að minnka. Það eru mest brögð að þvf, að menn fari á staði, sem hafa vínveitinga- leyfi, og komi svo á eftir og þá þétt- ir. Það er dálítið erfitt að fást við vínlöggjöfina. Annars á víst að end- urskoða hana bráðlega. Þegar við komum niður í dans- salinn aftur, er þar mikið fjör, og hafði það sitt að segja, að komnar voru um 70 stúlkur á islenzkum búningi. Risu þær allar úr sætum sínum og sungu Táp og fjör og frískir menn. Gátu þá karlmennirnir ekki verið þekktir fyrir annað en gjalda í söniu mynt, stóðu allir upp og sungu Fósturlandsins freyja, fagra vanadís. — Var óvenjulegt að heyra þetta á almennum dansleik, en þetta sýnir svolítið, hve mikil stemmning var með fólkinu. Við lentum i kaffi með hljóm- sveitinni í svokallaðri „pásu“. Þeg- ar við komum inn í kaffistofuna, heyrum við á samræður manna. — Það er ekki með hangikjötinu, sem hún var að sjóða í dag- — Það var þetta fina ofan á brauð. — Það er ekki orðið kalt. — Nei, auðvitað ekki. Það er líka miklu betra kalt. En við fáum það þá á laugardaginn. Það voru Jó- hannes og Ole Östergaard, sem ræddu saman. — Heyrðu, Ole, ertu búinn að spila lengi? — Já, í svona 15 ár. — Og alltaf á gítar? — Já og lika á Havaígítar. — Er það sama hljóðfærið? — Nei. — Er Havaigitar nokkuð notaður í gömlu dönsunum? — Já, já, hann er notaður í tangóa og liæga valsa. Hann gefur skemmtilega tilbreytingu. Menn komast í rómantískt skap og láta sig dreyma, að þeir séu komnir til Suðurhafseyja. Svo er hann líka stundum notaður í „móderne“ djass. — Jóhannes, ert þú ekki húinn að spila, frá því að þú manst eftir þér? — N'ei, en nokkuð lengi. — Alltaf í dansmúsík? — Já. — Gömlu dönsunum, — aklrei þeim nýju eða rokki? — Nei, nei, — ég er nú líka nokk- uð gamall til að byrja á ])ví núna. — Hvað hefurðu lengi fengizt við að semja? — Já, það er nú orðið Iangt sið- an, en það hcfur ekki komið mikið út, því að ég hef ekki fest á pappír nema sumt. Ég hélt, að það væri ekki neins virði, og hugsaði ekkert um það. Þegar svo danslagakeppni fór að verða hér, sendi ég að gamni mínu nokkur lög og fékk verðlaun. Svo kemur dansstjórinn i kaffi bullsveittur. — Ertu búinn að atast lengi i þessu? — 12 ár og 0 daga. — Finnst þessu? þér ekki gaman að — Gaman! Nei, þetta er eins og hver önnur atvinna. — Nei, er það? Finnst þér ekki gaman að stjórna svona fjörugu fólki, þegar svona litið er um vín? — Lítið um vin! Ekkert, alls ekk- ert, — ég hef ekkert fengið. Nú er dansað og sungið af miklu Ijöri i eina klukkustund f viðbót, og er þá ballið búið. Finnst víst flest- um það of stutt og eru sammála húsmæðraskólastúlkunum, þegar þær hrópa ferfalt húrra fyrir hljóm- sveitinni og fara heim í bólin — einsamlar. ★ Nýtt útlit Ný tækni Málmgluggar fyrir verzlanir og skrifstofu- byggingar í ýmsum litum og formum. Málmgluggar fyrir verksmiðjubyggingar, gróðurhús, bílskúra o. fl. Lækjargötu, Hafnarfirði. — Sími 50022.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.