Vikan


Vikan - 07.07.1960, Blaðsíða 22

Vikan - 07.07.1960, Blaðsíða 22
Fyrir hverju er draumurinn? Draumspakur maður ræður drauma íyrir lesendur Viknnnar Ef yður dreymir þá drauma, að yður leiki forvitni á um þýðingu þeirra, þá skrifið Vikunni, pósthólf 149 og bréfinu verður komið til draumráðningamannsins. Ráðning á draum kostar 20 krónur, nema menn vilji fá skriflegt svar beint frá draumráðingarmanninum þá kostar ráðn- ingin 50 krónur. mér ég halda á mjólkurflöskumri neti, eins of> ég hafi verið aS koma úr mjólkurbúð. Ein- hverri stúlku mætti ég i stiganum, sem éí> þekkti mjög vel í draumnum, og var mér eitt- hvað i nöp við hana. Ekki man ég, út af hverju það var. Þegar ég kem upp, fer ég að tala vi?, mömmu. Ilún virðist vera eitthvað svo aum o« leið á svipinn. É« spyr hana þá, i hvort hún sé þunguð, og ségir hún það vera. Förum við báðar að hágráta og föllumst í gaðma. Og þar með lauk draumnum. Didda. SVAR til Diddu. Draumurinn er i höfuðatriðum fyrir þvi, að sá, sem þér er beztur, lendir í einhverri smáandstöðu við þig. Þetta riieti átt við móð- nr þina eða einhvern pilt, sem þii erl í nánu sambandi við. Hr. draumráðningamaður. Mig dreymdi, að ég átti að fara upp háan húsvegg og komast þannig inn i húsið. Ég var með mjög stórt rúgbrauð, sem ég og systir min áttum, og varð að komast með það, en fannst það ógerlegt. Þarna var líka kona, sem ekkert brauð átti, og braut ég brauðið í sundur og gaf henni allt að fimmta hluta. Fannst mér svo, að ég mundi komast. Fyrir hverju er þetta? Kaja. SVAR til Köju. Augljost er af draumnum, að þii verður fyrir einhverri óverulegri hindrnn á nsest- unni, en þti kemst gfir hana með þvi að fórna smávegis vinnn. Fórnin er hlutur, sem við verðum öli að leggja á okkur til að hljóta brot af gæðum heimsins. Til mun vera arðtmki sern segir: Til að e.ignast allt verðum við einnig að gefa allt. Draumur: Mig dreymdi þennan daum fyrir tsepum tveimur árum. Þá var ég trúlofuð, og nú kem- ur draumurinn: Mér þótti kærastinn minn koma til mín og biðja mig að koma með sér heim til hans. Hann ætlaði að sýna mér svolitið. Jú, ég er til í það og fer með honum heim til hans (en þar ætluðum við að stofna heim- ili okkar og gerðum). Hann er þá búinn að stilla upp stólunum, þannig að þeir standa alls staðar tveir saman, — annar með háu baki, en hinn með lágu baki eins og vana- legir stólar. Ég verð dálítið hissa og spyr, af hverju hann raði þeim svona. „Jú, segir hann, „til þess að, — ef maður er þreyttur að sitja í öðrum, — maður geti hvílt sig í hinum.“ — Þeir voru 24 alls. Ég er dálitið hissa, en andmæli þó ekki. Svo segir hann: „Ég held ég sé búinn að kaupa allt það nauð- synlegasta Bema Matborðið.“ — Ég varð svo- lítið hljóð við, að það skyldi vanta, en segi ekki neitt. Siðan gengur hann að litlu borði, er stóð þar, og segir: „Nú skalt þú skoða hér myndir af ættingjum okkar i Bandaríkjunum, því að ég þarf að skreppa frá.“ — Síðan fer hann niður stiga, en ég fer að skoða myndirn- ar. Ég man ekki neitt um þær, og finnst mér ég orðin leið að biða og legg af stað niður stigann, og voru tuttugu og þrjú þrep niður. Þegar ég kem út, sé ég hól rétt hjá húsveggn- um, sem ég hafði ekki tekið eftir áður. Ég sé opnast dyr á honum, og út koma tvær frænk- ur unnusta mins. Mér verður hverft við, að þær skyldu nú sjá mig koma út úr húsinu, og við það vaknaði ég. Elin Þ. SVA R lil Elínar Þ. Þti munt eignast marga vini, sem þti get- ur vel reitt þig á i sambandi við tengsli þin við kærastann. Þótt undarlegt megi virðast, hggg ég, að gkkur verði mjög fárra barna auðið. ÞA hlýtur stgrk frá fjarskgldum settingjum. Draumráðandi Vikunnar. Mig dreymdi, að ég lægi veik. Mér finnst mamma hafa farið eitthvað út og ég þurfa endilega að nota tækifærið, meðan hún er i burtu, og fara út. Þegar ég kem út, er konan, sem býr niðri í húsinu, að lagfæra blómin i garðinum. Það er hellirigning, og ég finn, hvernig rigningin bylur á bakinu á mér, þegar ég lit yfir blómin. Allt i einu finnst mér mamma vera komin, og ég flýti mér inn í þvottahús, fer úr svartri regnkápu og hengi hana á snúru. Mér finnst einnig ég vera í gráum kjól af mömmu, og er hann rennblautur að neðan. Þegar ég geng upp stigann í íbúðina, finnst Kæri draumráðningamaður. Mig dreymdi, að ég væri í veizlu, og það var spilað á segulband, og var leikið þar eftirlætis- lag stráks, sem ég elska, en hann er hættur að tala við mig. Þá fannst mér ég fara að háskæla og lagðist fram á borðið og fannst líka vera að líða yfir mig. Þá kemur einhver eldri maður, tekur mig og er alltaf að reyna að kyssa mig, en ég^barði hann eins og ég gat. Þá henti hann mér upp á borðið yfir matarilátin, og jiar lá ég, tautandi nafnið á stráknum og laginu. Hvað merkir þessi draumur? Fabian. Svar til Fabian. Þú munt hitta aftur þinn forna vin. en hætt er við, að eldri maður verði til að spilla sam- búð ykkar, þannig að hann verði þinn lífs- förunautur. Þó að það líti ef til vill cin- kennilega út. Þú munt ekki verða ánægð með þann ráðahag fyrst í stað. SnmarsÉtilkii Framhald af bls. 11. okkur ekkl mega á milli sjá, hver sé fegurst. Þa8 er nú annars meira Sigrúna- flóöið i þessari keppni. Hvorki meira né minna en þrjár af fimm heita þessu fallega nafni. Þa8 hefur líklega veriÖ mikiB I tizku fyrir 17—18 árum. Viö vonum annars, a8 lesendur rugl- ist ekkert í Sigrúnunum; þær hafa ólík föSurnöfn. Hún heitir Sigrún Gissurardóttir og er eiginlega fulltrúi dreifbýlisins í keppninni. Hún er frá Akurey í Vestur Landeyjum og foreldrar henn- ar, Gissur Þorsteinsson og kona hans Guörún Brynjólfsdóttir, búa þar. Sigrún á þar líka lögheimili, enda þótt hún vinni hér syöra. — E?r þetta kannski í fyrsta sinn, sem þú dvelur að heiman? — Ég er búin aÖ vera fjóra vetuv í bænum, — ég var í gagnfræðaskóla Austurbæjar og tók gagnfræðapróf í vor. — Svo ertu heima á sumrin. — Já, oftast hef ég verið heima yfir sláttinn. — Hvað ætlarðu aö gera f sumar? — Ég er nýbyrjuð aö sauma hjá Andrési. en verð kannski eitthvað heima i sumar. — Þeir sakna þín auðvitað pilt- arnir í Landeyjunum, ei’ þú kemur ekki austur? — Já, ábyggilega, ég vona það að minnsta kosti, að þeir sjái eftir mér. — Já, maöur vill alltaf láta sjá eftir sér. En meöai annarra oröa, viö sáum þig reyndar í leikhúsinu viö afgreiðslu um daginn. — Ég hef unnið þar við sælgætis- afgreiðslu fyrir sýningar og í híéinu. Það rakst ekkert á við skólann né vinnuna núna. — Er borgaö sæmilega fyrir það? — Nei, alveg voðalega iftið — ég vona nú samt, að Þjóðieikhússtjóri iesi þetta ekki. — Heldur þú, að honum þætti það ekki lágt kaup líka? — Ég býst viö því. — Þig langar af til vili til aö færa þig spölkorn í leikhúsinu og komast á sviöiö? — Nei, ekki hef ég áhuga fyrir þvi. — En hvaö viltu segja okkur um áhugamál og markmið. — Ég er ekki farin að setja mér nein markmið ennþá. Og áhugamálin, ja, hvað skal segja um þau. Ég hef mikinn áhuga fyrir ferðalögum og svo auövitað skemmtunum eins og flestir á þessum aldri. — Eru ekki góöar skemmtanir I Gunnarshólma? — Mér finnst alltaf gaman á sveitaböllum. — Þeir eiga nú svo mikið af hross- um i Landeyjunum; — Þið hafið auð- vitað stundað útreiðartúra á sunnu- dögum? — Nei, ekki það ég man. Það var allt farið á bílum. — Heidur þú ekki að það sé mikill munur á því að vera húsmóðir í sveit og kaupstað? — Það eru nú komin flest þægindi i sveitunum, en samt er munurinn mikill. Ekki vildi ég búa í sveit, það eitt veit ég. — En ef einhver kæmi nú austan úr Landeyjum með tvo til reiðar og bæri fram bónorð við þig. Þá mundu nú renna á þig tvær grímur? — Ég held, að þessi möguleiki sé útilokaður. — Viltu segja okkur, hvað þú ætl- ar að verða, þegar þú ert orðin stór? — Ég ætla ekki að verða stærri. — Jæja, hvað ertu stór. — Ég er 1,65 á hæð, ef það er það, sem þú átt við. — Er það ekki nokkuð góð hæo? — Sæmileg, í meðallagi held ég. — Langar þig til þess að taka þátt í fegurðarsamkeppni, þar sem þú stæðir í eigin persónu fyrir framan áhorfendur? —' Nei, þá er nú einhver munur að vera aðeins til umræðu á mynd. Ég mundi ekki vinna mér hitt til lifs. — Jú, þú mundir nú gera það, þeg- ar til alvörunnar kæmi. Ertu nokkuð pólitisk? — Ég get ekki sagt að ég viti, hvað stjórnmálaflokkarnir heita. - Við trúum því mátulega, en þú hefur þá ekki áhuga fyrir frama á stjórnmálasviðinu ? — Ónei. Það hangir gítar á veggnum í her- berginu hennar i húsinu númer 86 við Langholtsveg og um alla veggi eru myndir af Elvis Presley, Birgitte Bardot, Frankie Avalon og Paul Anka. Þar ríkir þessi ósvikna heima- sætustemning, sem hefur yfir sér hugblæ áranna fyrir tvítugsaldurinn. Meðan sá aldur og andi ríkir, munu Ingólfur á Hellu og Friðrik í Mið- koti ásamt, öðrum köppum Rangæinga eiga erfitt uppdráttar í keppni við Presley og Co. E’n hjörtu heimasæt- anna breytast með aldri og þroska og líka Sigrún frá Akurey. Kannski verður hún hreppsnefndaroddviti eftir allt saman og þá verður gaman að heimsækja hana þangað sem niður Þverár og Markarfljóts rennur sam- an við brimgnýinn við Landeyja- sand. 22 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.