Vikan


Vikan - 07.07.1960, Qupperneq 31

Vikan - 07.07.1960, Qupperneq 31
Skelfing hafa karlmennirnir verið akrítnir í gamla daga, þá báðu þeir aðeins um hönd stúlknanna. — Ég fæddist 7. apríl 1901 — síðan man ég ekki neitt. Bessi er nú talinn með eftirsóttari skemmtikröft- um í Reykjavik. Konurnar hans tvær í leiknum eru leiknar af Herdísi Þorvaldsdóttur og Bryndísi Pétursdóttur. Herdís og Bryndís eru báðar mjög vinsælar leikkonur. Þær hafa í mörg undanfarin ár farið með veigamikil hlutverk í Þjóðleikhúsinu og er þvi óhætt að fullyrða að leikhúsgestir eiga von á ánægjulegri kvöldskemmtan að sjá Bessa og konurnar hans. Leiksjóri er Klemenz Jónsson og leikur hann auk þess smáhlutverk í leiknum. Klemenz hefur að undanförnu sett mörg leikrit á svið en þekktast af þeim mun vera „Kardemommubærinn'* í Þjóð- leikhúsinu á sl. vetri. ir Bessi Herdís Bryndís Klemenz í leikför um landið Um þessar mundir standa yfir sumarfrí leikara og nota margir sumarmánuðina til að fara út á landsbyggðina og sýna þar. Fjórir af þekktustu leikurum Þjóðleikhússins, þau Bessi Bjarnason, Herdís Þorvaldsdóttir, Bryn- dís Pétursdóttir og Klemenz Jónsson hafa að und- anförnu æft léttan og skemmtilegan gamanleik og ætla að sýna hann í öllum helztu samkomuhúsum á landinu og ef til vill sýna þau í höfuðstaðnum þegar leikförinni lýkur. Leikurinn heitir „Lilly verGur léttari“ og er eftir enska leikritahöfundinn Roger Mac Dougal. Þetta leikrit hefur alls staðar hlotið miklar vinsældir, þar sem það hefur verið sýnt, t. d. má geta þess að leikurinn gekk í sam- fleitt 3 ár í London og fyrir nokkru var kvik- myndin sýnd hér í Tjarnarbíói og var hún mjög skemmtileg. Þýðingin er gerð a£ Einari Pálssyni leikara. Aðalhlutverkið er leikið af hinum unga og vin- sæla gamanleikara Bessa Bjarnasyni. Hann hefur að undanförnu leikið mörg gamanhlutverk í Þjóð- leikhúsinu bæði i leikritum og óperettum. Einnig er hann mjög þekktur fyrir skemmtiþætti sina, sem hann hefur sýnt i mörgum samkomuhúsum ásamt. Gunnari Eyjólfssyni. VIKAN 91

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.