Vikan


Vikan - 04.08.1960, Blaðsíða 18

Vikan - 04.08.1960, Blaðsíða 18
Mitzi Gaynor. Hætt er við þvi, að einhver gleymdi að taka sundtökin, ef svona „kroppur“ birtist allt í einil hérna inrti í Sundlaugum. Reynd- ár er hún þessi ekki þekkt fyrir sund, — þetta er leikkonan og dansmærin Mitzi Gaynor, nýkomin úr morgunbaðinu. Mitzi hóf ballettnám aðeins f.jögra ára gömul og hefur verið sídansandi siðan. í kvikmynd- irnar kom hún árið 1950 og hefur leikið í fjöldamörgum dans- og músíkmyndum. — Hér sáum við hana m. a. í myndunum Theres no business like showbusiness, Any- thiny goes, The birds and the bees og nú síðast í South Pacific. Kröggur í vetrarferðum Sagt er, að við íslendingar drekkum meiri mjólk en nokkur önnur þjóð í heimi — á þennan eina mælikvarða, sem alltaf er notaður, það er: „miðað við fólksfjölda“. Fæstir mjólkurneytendur hugleiða nokkurn tíma þá fyrirhöfn, sem margir aðilar leggja á sig til þess að koma mjólkinni á markað, og enn færri vita, að mjólk er ódýr- ari hér en viðast annars staðar í veröldinni. Guðjón Jósefsson er einn hlekkur í þeirri keðju, sem samtök bænda hafa gert til þess að koma mjólkinni á markað í fjölmenninu á Seltjarnarnesi og þar í nánd. Við hittum Guðjón á förnum vegi, og það var ekkert smá- verkfæri, sem hann hafði í höndunum: sex eða átta tþnna mjólkurbíll af Albion-gerð. Hann var að losa mjólk af bílnum austur við Mjólkurbú Flóamanna A Selfossi. Nú þarf ekki lengur að nota handaflið eins inikið og áður var gert. Brúsarnir eru látnir af bílpallinum á færiband, og síðan jiokast jieir hátíðlega i einni lialarófu gegnum gat á veggnum, unz tröllaukin krumla grípur þá og hvolfir úr þeim mjólkinni. — Það er þó gott að losna við þessi átök, Guðjón, — þið þurfið að lyfta brúsunum upp á pailinn, og það ætti ið vera nægilegt erfiði. — Það eru nú yfirleitt alls staðar brúsapallar nú orðið, og þá er það ekki svo erfitt. — Hefurðu lengi verið mjólkurbílsstjóri? —- Það eru víst full fimm ár. •— Hverjir eru helztu kostir við þetta starf? — Ég hef nú ekki gert mér grein fyrir jiví enn. — Þetta hlýtur að liafa einhverja kosti. Eru gallarnir kannski yfirgnæfandi? — Öll störf hafa kosti og galla. — Það er talsverður titringur af þessum stóru dísil- vélum. Fer hann ekki i taugarnar á þér? — Ekki finn ég það, þetta eru traustir og góðir hílar. — Dálítið erfiðir í gang á veturna. — Þeir voru það. Nú. eru þeir hitaðir upp með raf- magni, rétt áður en við setjum þá i gang, og þá her ekki á erfiðleikum. — Það er mikill munur á þessu starfi að sumri og vetri. — Óneitanlega er það. Stundum kemst maður í hann krappan í vetrarferðunum. — Þú ert þó laus við Hellislieiðina. — Að vísu, en ég ek efst upp i Biskupstungur, og þar er oft snjóþungt. Svo er leiðin talsvert löng. Ég býst við því, að Biskupstungurnar séu með erfiðari „rút- unum“. —• Er sú leið ekki ögn skárri, síðan nýja brúin kom hjá Iðu? — Það er mikill munur að losna við Grímsncsið, þegar Framhald á bls. 33. Utsala? Sumar verzlanir hér í bæ hafa ver- ið nefndar næsta afkáralegum nöfn- um, sem mörg eru kátbrosleg. Kjóla- búðin selur kjóla, og eftir því mætti ætla, að Kápu- og dömubúðin seldi bæði kápur og dömur. Okkur flaug þetta í hug, er við góðviðrisdag einn í sumar sáum unga stúlku sitja mak- indalega í búðarglugga við Laugaveg. En ekki svo að skilja, að við höfum tekið aumingja stúlkuna sem útstillt- an söluvarning, heldur mun hún hafa verið að fægja gluggarúðuna, svo að betur sæi til sólar. Konur eru bráðhættulegar Þar sém okkur langaði til að að skyggnast dálitið inn i lif táninga hér í bæ, gengum við á fund eins þeirra, sem við vonum, að megi teljast verðugur fulltrúi þeirrar kynslóðar, Guðlaugs Tryggva Karlssonar. Hann er við nám í Menntaskólanum í Reykjavík og lék eins og mörgum mun kunnugt, í revíunni „Eitt lauf“ í Sjálfstæðishúsinu. Hvernig lílcar j)ér lífið, Tryggvi? spyrjum við heimskulega, því að lifsánægjan ljómar utan á honum. í stuttu máli sagt: Ég lief ekkert út á það að setja og kann vel við það eins og það er. Það geta allir lifað lifinu á hamingjuríkan hátt. Hvernig ferðu að því að gera lífið svona skemmtilegt? Ja, mín skoðun er sú, að lífsánægja sé fólg- in í áreynslu eða réttara sagt útrás. Þegar iíla gengur, er um að gera að vínna — eða syngja. Ég syng t. d. alltaf, ef illa liggur á mér. Þeir munu aldrei verða hamingjusamír, sem hanga og hugsa um sjálfa sig eða jafnvel ekki neitt. Það a að einheita sér að því, sem verið er að gera. finna ánægju i nútiðinni, en lifa ekki retið í fortíð og framtíð. Vel á minnzt, •— þegar þú talar um söng. Þú ert að læra að syngja, er það ekki? Jú og hcf mikla ánregju af. Þú ert kannski að hugsa um að verðg söngv- ari ? Það er ómögulegt að vita, -— engínn veit sína ævina fyrr en öll er. Þú ert i Menntaskólanum, hvernig kanntu við ])ig þar? Vel, skemmtilegur skóli og skemmtilegt fólk. Þar er ég á réttri hillu, en jiað er auð- vitað frumskilyrði fvrir ])ví, að fólk kunni vel við sig einhvers staðar. Hvað viltu segja okkur um félagslif j)ar eða skcinmtanalíf i bænum yfirleitt? f Menntaskólanum- er það of einhliða, þ. e. a. s. of tilbreytingarlaust, en fólk skemmtir sér til að fá tilbreytingu. Annars tel ég vín skemma alla skemmtun, og höll eru of algeng. Á eftir hvaða skemmtun sem er, er dansað. Þetta er orðið eins og að fá alltaf kartöflur með fiski. En þetta er líklega tízkufyrirbrigði, sem dalar líkt og önnur tizka. Telur þú, að innbyrðis samskipti unglinga séu eins og þau eigi að vera, — þ. e. á réttri leið? Ég tel þau í fullkomnu lagi. Unglingarnir l)roskast og siðirnir með, og ég held, að það sé hlutur, sem ekki þarf að brjóta heilann um. Þetta kemur allt af sjálfu sér. En finnst þér ekki, — nú j)egar unglingarnir eru svo bráðþroska, — að breyta þyrfti t. d. skólafyrirkomulagi eða lækka giftingaraldur? Mér finnst alls ekki, að þurfi að lækka gift- Guðlaugur Tryggvi ingaraldur, þar sein nútímaþjóðfélag miðar ekki að því, að fólk giftist yngra, enda held ég, að sérhvcrt mótlæti sé þroskandi og krakk- ar liafi bara golt af því að halda aftur af sér. En þetta með skólafyrirkomulagið er nóg efni í aðra grein. Það er stórgallað. Hvað lestu aðallega í tómstundum þínum? Þegar fólk er í skóla, hefur ])að ekki tima til að lesa, og yfirleitt les ég litið. Annars er ég að lesa Egils sögu núna og finnst hún skemmtileg. Hvaða afstöðu hefur þú gagnvart kvenfólki? íslenzkar slúlkur eru fram úr hófi fallegar og vel þroskaðar, en þar af leiðandi hráð- hættulegar. Konan er karlmanninum allt, og er ég þar engin undantekning. Þú ert ekkert að Inigsa um að hinda þig í bráð eða gifta þig? Nei, alls ekki, hara skemmta mér og kynn- ast sem flestum þessara gullfallegu kvenna. Yfirleitt vilja strákar alls ekki binda sig, og er það mikið vegna þess, að þeir þurfa að hera ábyrgð á þessu öllu saman. En öðru máli gegnir um stúlkurnar, þær eru æstar í hjóna- band eða að minnsta kosti hring. Framhald á bls. 33. > Lífsbjargarviðleitni okkcr íslendinga hef- ur löngum verið rómuð mjög, en misjafnt er, á livað hátt menn afla sér viðurværis. Sumir vinna á daginn, sumir á nóttunni og aðrir bæði dag og nótt. En menn hafa ekki allir jafnmikið fyrir lífinu. Einn erfiðar mestan hluta sólarhringsins, annar sleppur með venjulegan vinnudag, og sá þriðji tekur daginn rólega, en fer kannski á stjá, þegar liða fer á nóttu, og tekur sér j)að bessaleyfi að hreinsa ofurlítið til hjá öðrum, sem hann telur vel aflögufæra. Lög kndsins fordæma að vis.u þennan oft svo arðbæra atvinnuveg, en þeir athafnasömu menn, sem leggja hann fyrir sig, taka slíkt ekki allt- af of alvarlega, og ný- ir starfsráenn bætast í hópinn, þó að lok ævintýrisins megi ætið sjá fyrir. Allt kemst upp, og menn eru gerð- ir óvirkir um langan tíma eða skamman. En með þvi er skaðinn ekki aldeilis bættur, því að þessir kappar eiga i'firleitt ekki eyrisvirði, e» að skuldadögum kemur, — hafa forðazt að leggja þetta skjót- fengna fé fyrir. Og fórnarfambio situr eft- ir meö sárt ennið, brotnar rúður og tóma peningakassa. — Hinn góði féhirðir á mynd- inni hér til hægri virð- ist lika vera heldur súr á svipinn, er hann skoðar hirzlur sínar eftir vel hepi)iiaða, en óvelkonina næturheim- sókn. Hann var gjald- keri hjá Vikunni, cr innbrotsþjófar lögðu leið sína þangað og höfðu á brott með sér nokkra tugi þúsunda. Og liér er hann með hið eina, sem fékkst til baka, — tvo peninga- kassa, sem rannsóknar- lögreglan veiddi upp úr Elliðaárvogi. Ekki er samt ástæða til að ætla, að ferðir gainla mannsins á neðri myndinni eða innihald pokaskjattans standi i nokkru sambandi við sorg heiðursmannsins á myndinni að ofan. Sá aldraði er eflaust á heimleið með vörur, sem liann hefur á heið- arlegan hátt unnið fyrir með daglegu striti sinu. Og liann telur ekki eftir sér að fara fótgangandi langa leið með byrði á baki, þótt nýtizkulegir sendiferðabílar séu á næsta leiti. 19 18 VIKAN VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.