Vikan


Vikan - 04.08.1960, Blaðsíða 9

Vikan - 04.08.1960, Blaðsíða 9
HUGUR Tilfinningar manns eru fjölþættar og jafnvel andstæðar innbyrðis. Þess vegna verða geðbrigðin oft snögg, skammt milli gleði og hryggðar, ástar og liaturs, stolts og blygðunar, ástriðu og áhugaleys- is. Sú tilfinning, sem ræður í svip, verður skjót- lega að þoka fyrir annarri, sem um stundarsakir ræður svipmóti sálarlifsins. Óþægileg minning, sem raknar upp i buga mér, getur spillt hugblæ glað- værrar stundar, eins og „bros getur dimmu i dags- ljós breytt“. Ef geðsveiflan á upptök sín í vitundarlifinu, getur hver maður fylgzt með henni, ef hann að- eins beinir athyglinni að viðbrögðum sálarlífs- ins. Ungur maður bíður á götuhorni eftir vin- stúlku sinni, sem hann á von á á stefnumót. Hún er óstundvís og hefur raunar verið það stundum áður. Þvi lengur sem liann bíður, þvi ákveðnara sálrænt ástand kemst hann í. En það markast ekki aðeins af óstundvísi stúlkunnar, heldur jafn- framt af dulvitraðri tilfinningaafstöðu piltsins til hennar. Ef ást hans er í dýpstu rót sjálfselsk og hégómagjörn, þá finnur hann til gremju yfir seinlæti stúlkunnar, en ef ást hans er fórnfús og einlæg, þá vaknar honum brátt ótti um, að sjúk- dómur eða slys kunni að tefja hana. Ástæður, sem ráða miklu um hegðun okkar, ákvarðast að verulegu leyti í dulvitundinni. Þar ólgar margbrotið iif, þar byltast andstæð öfl og ieita framrásar. Sum eru útlagar úr vitundar- lífi okkar, talin óhæf i hinni meðvituðu hugs- un. En um leið og við gerum þau útlæg, missum við valdið yfir þeim og þekkjum þau jafnvel ekki, þegar þau birtast á ný, búin dulargervi. Þess vegna ráða þau svo miklu um geðfar okkar og ákvarðanir, að okkar eigin viðbrögð geta orðið okkur undrunarefni og liegðun okkar kom- ið okkur ókunnuglega fyrir sjónir. GEÐRÓ OG TRYGGÐ. Skapfesta og tryggð eru liáðar innra sálrænu jafnvægi. Því reynist æskuástin oft hverful, að sálarlif ungmenna er enn i þróun og hraðri breyt- ingu. Sú hrifni, sein leiðir til ástar, er auðvakin með ungmennum, en oft þokar liún fljótlega fyrir nýjum og sterkari kenndum. Það er í senn veik- leiki og styrkur æskunnar, að hún er fús — undir valdi nýrra áhrifa — til að endurskoða líf sitt frá rótum og breyta miskunnarlaust því, sem ekki fellur við hinn nýja geðblæ. Hverful- leiki æskuástarinnar er því eðlilegt þróunar- fyrirbæri. í daglegu tali gerum við ráð fyrir þvi, að full- tíða menn hafi allir öðlazt venjulegan fullorðins- Framhald á bls. 34. Æskuástirnar eru hverflyndar vegna þess að unglingar eru óþroskaðir. Við rétt skilyrði öðlast maðurinn það sálræna jafnvægi, sem veitir skapgerð- inni festu til staðfastrar vin- áttu og trygglyndis í ásta- málum. f ( ( f f } i f f I f i í } § I i f i i i r } i ( Hér er sýnishorn af minjagrip, sem meira er til skemmtunar en hægt sé að segja, að hann hafi listrænt gildi. Þó er þetta góður og út- gengilegur minjagripur, vegna þess að vandað hefur verið til hans. Þetta á að sýna norsk bændahjón, — komin á efri ár, og þau eru að sjálfsögðu iklædd norsk- um búningum. Mætti ekki búa til hliðstæða minjagripir hér frá gamla tímanum við sveit og sjó á íslandi- MINJAGRIPIR Minjagripir hafa ekki aðeins gildi fyrir ferðalanga, sem eyða síðustu skilding- unum til kaupa á einum slikum, áður en stigið er á skipsfjöl eða um borð i flugvélina. Góðir minjagripir geta liaft listrænt gildi, og ef vel er á haldið, má selja þá innan lands engu síður en til útlendinga. Mikill hluti af minjagripa- gerð okkar hefur verið ákaflega fátæklegur — og það, sem verra er: ósmekk- legur. Þó finnast ýmsar heiðarlegar undantekningar, eins og sjá má til dæmis í JBaðstofu Ferðaskrifstofu ríkisins. Ef minjagripagerð á að vera okkur til sóma, þurfa gripirnir að hafa listrænt gildi. Þá falla þeir ekki við kynningu eins og hvert annað einskis nýtt drasl, sem lendir i öskutunnunni eftir einn mánuð, lieldur hafa menn þeim mun meiri unað af því að hafa hlutinn fyrir augunum sem þeir kynnast honum betur. Hér eru sýnisliorn af norskri minjagripagerð. Þar i landi er mikill ferða- mannastraumur, og Norðmenn hafa góðar tekjur af sölu minjagripa. Það er eftirtektarvert, að þeir nota hráefni, sem er sérkennandi fyrir Noreg: furuna. Þessi dýr eru mjög stilfærð, en engu að siður listræn og formfalleg, og æðarnar í furunni njóta sín einstaklega vel.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.