Vikan


Vikan - 04.08.1960, Blaðsíða 23

Vikan - 04.08.1960, Blaðsíða 23
 VIKAI ■ Ííf. ■ 1 Ctg efandi: VIKAN H.F. Ritstjóri: Gísli Sigorðsfion (ábm.) .Auglýsingastjóri: Áfibjörn Magnásson ; Framkvæmdastjóri: EBlmar A. Kristjánsson Hitsljórn og auglýsingar- Skipholti 33. Simar: 35320, 35321, 35322. Pósthólf 149. Afgreiðsia og dreifing: Blaðadreifing, Mikiubraut 15, sími 15017 Verð i lausasölu 200 kr, ársþriðjun kr. 15. Á gslega, gr skriftarverð er Prentun: Hilmir h.f. eiðist fyrirfram Myadamót: Myndamót h.f. Þið fáið Vikuna í hverri viku / næsta blaði verður m. a.: $ Alfried Krupp. — Byrjun á greinaflokki um ríkustu menn heimsins. ♦ Endurfundir í Kislowodsk — rússnesk saga. ♦ Kleyfhugar — eftir Matthías Jónasson. ♦ Mannæturnar í Dauðafljótinu. — Grein um grimmu fiskana, sem rífa í sig allt kvikt. ♦ Tindala-lmi — eftir Ævar R. Kvaran. ♦ Verðlaunakeppnin heldur áfram. ♦ Gömlu góðu hversdagsfötin — smellin smásaga. Það var verið að taka kvik- myndina Sjö þjófar með Eli Wallash, Edward G. Robin- son, Joan Collins og Rod Steiger í aðalhlutverkum. í einu atriðinu átti Eli Wallash að liggja dauður á gólfinu, en einmitt þetta atriði vafðist mjög fyrir þeim leikendum, sem „á lífi“ voru, svo að myndatakan tók margar klukkustundir. Loks var allt komið í lag, og allt virtist ætla að ganga vel, en þá upp- götvaði hljómupptökustjór- inn eitthvert einkennilegt og óviðeigandi hljóð í tækjum sínum. Hann gaf merki um, að stöðva yrði myndatökuna, sem var gert. Síðan var farið að rannsaka, hvaðan þetta hljóð kom, og skyndilega mændu allra augu á Eli Wall- ash, sem hafði legið „dauður“ á gólfinu í tvo klukkutíma. Hann var fallinn í djúpan og væran svefn og hraut hátt og hraustlega. llvað á það að þýða að liengja spegilinn öfugan á vegginn? Fátt lýsir lifnaðarháttum í Hollywood betur en þessi litla skrýtla: Tveir litlir snáðar sitja á þrepum einnar vill- unnar í kviðmyndaborginni, og annar segir: Ég átti fjóra pabba heima hjá fyrstu mömmunni minni og þrjár mömmur hjá fjórða pabbanum mínum! .v.v.v.v ijJ'fjcrfUiu\tUi*L ^OÍ iX v.v.v.v ♦v.v.v ♦vv.v. v.v.v.v. ♦••v.v.v. HrútsmerkiO (21. marz—20. apríl): Tækifærin; sem Þér bjóðast í vikunni, eru miklu betri en þig órar fyrir Stjörnurnar lofa þeim miklum framförum, sem beita viljastyrk sínum til hins ítrasta. Eitthvað, sem breytir talsvert aðstæðum heima hjá þér, gerist í vikunni, líklega eftir helgi. Þú verður fyrir áhrifum annaðhvort af kunningja þínum eða einhverju, sem þú lest, og er það vel. Nautsmerkiö (21. apríl—21. maí): Vikan verður afar skemmtileg, og allt ætlar að leika í lyndi. Þú verður að vísu að leggja talsvert hart að þér, en þú sérð ekki eftir því. Vertu ekki hræddur við að sýna, að þú getur líka myndað þér sjálfstæðar skoðanir, þótt þær brjóti í bága við hugsunarhátt eins félaga þíns. Kona nokkur kemur til þín í vikunni og færir þér einkenniiega frétt. TvíburamerkiO (22. maí—21. júní): Það verður eitt- hvað til þess að koma þér í uppnám í vikunni, og þér finnst gert á hlut þinn. Þó er ekki raunin sú, ef þú hugsar málið. Stutt ferðalag eða samkvæmi verður það sem allt snýst um í vikunni, og þegar loks verður að þvi, muntu skemmta þér konunglega. Þú virðist vera allt of hræddur við að sýna vináttu þína í orði og verki. Þetta er farið að valda einum vini þínum áhyggjum. KrabbamerkiÖ (22. júní—23. júlí): Þú skalt fara var- lega i allar bréfaskriftir í vikunni, því að ef þú held- ur óvarlega á pennanum, gæti það komið þér í óþarft klandur, og verður erfitt að má út afleiðingarnar. E’inhver breyting er i vændum — liklega hvað róm- antík snertir. Þú munt þurfa að sinna gömlu vandamáli á ný, en nú mun þér þykja það allt annað en leiðinlegt. Ljónsmerkiö (24. júli—23. ág.): Þú skalt alls ekki skipta þér að þessum deilum kunningja þinna, þvi að þótt þær komi þér talsvert við, getur þú ekkert gert til þess að bæta samkomulagið. Stjörnurnar þykjast sjá, að úr þessu rætist af sjálfu sér innan tíðar. Á sunnudag lendir þú I spennandi ævintýri. Frétt, sem þér berst, verður til þess að þú ferð að sinna gömlu áhugamáli þinu. Heillatala kvenria 5 en karla 4. MeyjarmerkiÖ (24. ág.—23. sept.): I fyrri viku kom fyrir smáatvik, sem þú taldir þá ekki skipta miklu, en nú mun koma í ljós, að einmitt þetta atvik getur orðið til þess að breyta framtíð þinni til muna. Það væri ráðlegt að geyma veskið heima í vikunni, því annars er hætt við að þú leggir peningana i fánýta hluti. Föstu- degurinn er dálítið varasamur, og skaltu ekki leggja í stór- ræði þann dag. Heillatala 7. Vogarmerkiö (24. sept.—23. okt.): Eins og á stendur, væri þér hollast að flíka ekki velgengni þinni um of, til þess að kveikja ekki öfund meðal kunningja _______ þinna Þú virðist allt of lausmáll, og ber að bæta úr því hið skjótasta, ef þú átt ekki að hafa verra af. Mánudagurinn er heilladagur vikunnar, og þá verður þér kom- ið þægilega á óvart. DrekamerkiÖ (24. okt,—22. nóv.): Þú kemur að máli við þér ókunnan mann eða konu, og gæti það orðið til þess að ^ko—la þér úr jafnvægi. En ef þú missir ekki stjórn á skapsmunum þínum, bjóðast þér án efa hin ágætustu tækifæri. Eitthvað verður til þess að breyta áformum þínum eftir helgina — liklega er Amor þar á ferðinni. Peningalega er vikan þér hagstæð. Bogmaöurinn (23. nóv.—21. des.): Þú gortar um of yfir velgengni þinni, og það gæti jafnvel orðið til þess að lánið hættir að leika við þér. Þú skalt ekki hika við að hjálpa kunningja þínum, þótt hætt sé við að hann sýni þér ekki tilhlýðilegt þakklæti, fyrr en síðar. Láttu ekki stjórnast um of af þessari konu, því að hún er talsvert varasöm. Helgin verður skemmtileg. Geitarmerkiö (22. des.—20. jan.): Þú ert allt of vandur að virðingu þinni þessa dagana og finnst all- ir gera á hlut þinn. Þetta er auðvitað mesti mis- skilningur. Þú hefur verið fremur illa til fara undan- farið og sætir það talsverðri gagnrýni kunningja þinna. og er hægur vandi að bæta úr því án teljandi peninga- útláta. Taktu ekki mark á þessari kjaftasögu, það gæti komið þér og vini þinum í klandur. Vatnsberamerkiö (21. jan.—19. feb.): Það er svo sem nógu gaman að byggja sér olftkastala, en með því er hætt við að þú missir af gullvægum tækifærum. ______ Hættu þess vegna þessum dagdraumum og reyndu að hefjast handa. Þetta, sem þið vinur þinn háfið á prjónunum er mjög erfitt úrlausnar, og þess vegna megið þið ekki kasta til Þess höndunum, eins og ykkur hefur hætt til þessa. Fimmtudagurinn er til heilla. Fiskamerkiö (20. feb.—20. marz): Þú þarft á allri þolinmæði þinni að halda í vikunni, og ef þú setur á þér, muntu líka uppskera ríkulega. Vinur þinn þarfnast smávægilegrar fjárhagsaðstoðar, og væri það vel þegið af honum, ef þú bættir úr því, en það getur þú hæglega. Gamalt vandamál skýtur upp kollinum í nýrri mynd. Heillatala 3. r/r, ? y : o- -r m

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.