Vikan


Vikan - 08.09.1960, Qupperneq 24

Vikan - 08.09.1960, Qupperneq 24
bkunn wír utqlínqáty DÆGURLOG Junior-kvartettinn er nafn á hljómsveit, sem sést hefur af og til í auglýsingum dag- blaðanna í sumar. Eins og nafnið bend- ir til eru ekki neinir öldungar þarna á ferðinni, en þeir juni- orarnir eru aðeins 15 og 16 ára gamlir. Við lögðum leið okkar í Ingólfscafé einn sunnudaginn fyrir skömmu, er Junior- kvartettinn var að hefja þar leik, og tók- _ um ^f þeim félögum meðfylgjandi myndir. 'Foringinn reyndist vera trommuleikarinn, Pétur Gunnarsson að nafni, og við snúum okkur til hans og spyrjum hvort þeir strákarnir hafi spilað lengi saman. — Við byrjuðum að leika saman síðastliðinn vetur á dansæfingum í Hagaskólanum, en þar voru tveir af okkur nemendur. Síðan höfum við aðallega spilað i Skátaheimilinu á skemmtunum, sem ■Æskulýðsráðið hefur haldið þar. — Þið eruð kannski skátar? — E’inn af okkur er skáti, píanóleikarinn. — Þið eruð auðvitað allir í skóla? — Já, og þess vegna getum við ekki átt mikið við hljóðfæraleik á veturna. fer í landsprófs- deild í haust og hef hugsað mér að leggja músík- ina alveg á hilluna í vetur. — En ætlar að stunda hljóðfæraleik í fram- tíðinni? — Ég hugsa ekki, áreiðanlega ekki sem aðal- atvinnu. Ég ætla mér að reyna að komast í Menntaskólann, og þá getur maður ekkert átt við að spila nema á sumrin. — Taka félagar þínir sér lika frí í vetur? — Ja, ég veit það ekki. — Hafið þið ferðast mikið í sumar? — Nei, ekkert ennþá, en okkur langar til að komast eitthvað úr bænum fyrir haustið, þó ekki væri néma 4 eða 5 daga. — Gerir þú útsetningar fyrir hljómsveitina? — Við gerum þær allir eftir beztu getu. Annars lærum við flest þessi lög eftir útvarpinu og af plötum. Svolítið kaupum við líka af nótum. — Finnst þér ekki bagalegt að hafa ekki kontrabassa með? — Jú, það má segja að hann sé ómissandi. En það er líka þægilegt að vera aðeins fjórir, vinnu- möguleikarnir verða meiri. — Hvað ertu gamall, Pétur? — Ég er fimmtán ára. — Þú ert þá sennilega yngsti hljómsveitarstjór- inn á landinu? i — Það er ekki gott að segja, en ég hugsa að þeir séu ekki margir yngri. Auk Péturs leika í Junior-kvartettinum þeir Jón Öttar Ragnarsson, pianó, Þorkell Árnason, gitar (efst t. v. hér að neðan) og Fretz Hendrek Berndsen einnig á gítar. Söngvari er Þór Nielsen. HLJÓMPLÖTUR Á MARKAÐNUM Ekki alls fyrir löngu kom á markaðinn ný hljómplata leikin og sungin af hljómsveit Svavars Gests og Sigurdóri og reyndar sú fyrsta, sem þessir ágætu skemmtikraftar gera. Lögin á plöt- unni heita Mustafa, tyrkneskt þjóðlag með is- lenzkum texta eftir Jón Sigurðsson og Þórs- merkurljóö, þýzkt alþýðulag með texta eftir Sigurð Þórarinsson Bæði þessi lög hafa verið óhemju vinsæl hér undanfarna mánuði og fræðir Svavar okkur um það í skýringartexta á plötu- umslaginu að „... af þeim hundruðum laga, sem hljómsveitin hafi tekið til flutnings á starfsferli sinum, hafi engin önnur lög vakið jafnmikla hrifningu". Islenzkir tónar gefa plötuna út. hmmm •a'r.:*.. . W'";

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.