Vikan - 08.09.1960, Page 25
TEXTINN
Siguröur Þórarinsson:
Þórsmerkurljóð
Ennþá geymist það mér í minni
María, Maria,
hvernig við fundumst í fyrsta sinni
María, María.
Upphaf þess fundar var i þeim dúr
við ætluðum bæði í Merkurtúr.
María, Maria, María, Maria,
María, María.
Margt skeður stundum í Merkurferðum
María, María,
mest þö ef Bakkus er með í gerðum,
María, María.
Brátt sátu flestir kinn við kinn
og kominn var galsi í mannskapinn.
María o. s. frv.
í>ví er nú eitt sinn þannig varið
María, María,
að árátta kvensamra er kvennafarið.
María, María.
Einhvern veginn svo æxlaðist
að ég fékk þig í bilnum kysst.
María o. s. frv.
Ofarlega mér er i sinni
María, María,
að það er fagurt í Þórsmörkinni.
María, María.
Birkið ilmaði, allt var hljótt,
yfir oss hvelfdist stjörnunótt.
María o. s. frv.
Ei við eina fjöl er ég felldur
María, María,
og þú ert víst enginn engill heldur
María, María.
Okkur mun sambúðin endast vel
úr því að hæfir kjafti skel.
María o. s. frv.
Troddu þér inn í tjaldið hjá mér,
María, María,
síðan ég ætla að sofa hjá þér.
Maria, María.
Svo örkum við saman vorn æviveg
er ekki tilveran dásamleg?
Maria, María, María, María,
María, Maria.
SKAK
Okkar beztu meisturum getur stundum fatast
illilega, en það er s.em betur fer mjög sjaldgæft.
1 eftirfarandi sjáum við einn okkar bezta skák-
mann, Inga R. Jóhannsson, tapa i örfáum leikjum.
Hvítt: Guðmundur Pálmason
Svart: Ingi R. Jóhannsson
Benóný-byrjun.
1. Rf3 Rf6 2. dJf c5 3. c!f cxdlf If. RxdJf e6 5. Rc3
BbJf 6. Rdb5 0—0 7. a3 Bel ? Þetta er afleikur-
inn, sem gerir út um skákina. Hann virðist á
yfirborðinu ekki vera svo slæmur, oft er gott að
halda biskupaparinu, en nú kemst svartur i hinar
mestu ógöngur. Nauðsynlegt var 7. — Bxc3 og
síðan d5. 8. Bflf Rc6 ? Skárri leikur var 8. —
Ra6 þó svartur sé ekki öfundsverður af stöðunni.
9. Bc7 De8 10. Rd6 Bxd6 11. Bxd6 gefiÖ. Svartur
sér fram á skiptamunstap eða eitthvað ennþá
verra. Ef t. d. 11. — Re7 þá 12. Rb5 Dd8 13. Bc7
De8 14. Rd6 og D er af. Lærdómsrík skák.
8
7
6
5
4
3
2
1
Svartur leikur og vinnur.
'Ö'JSO 'p iisoxa
gea '£ iiSBxa fs 'Z iii9«a — T :usnu'i
Colbourne — Blackburne
Hastings
— Hvernig missti Stebbi fingurna af Vicegri
hendinni?
■— Hann stakk þeim upp í hest til aö vita hve
margar tennur hann heföi.
— Og hvaö skeöi svo?
— Hesturinn lokaöi munninum til aö vita hve
margar fingur Stebbi heföi.
— Þú ættir að hafa auga með þessum náungum.
KVIKMYNDIR
VILTU DANSA VIÐ MIG?
Aöalhlutverk: Brigitte Bardot, Henri Vidal, Dawn
Addams, Noel Roquevert og Daniel
Moreno.
Aumingja Albert gamli. Einmitt þegar hann er
úti að skemmta sér eitt kvöld með dóttur sinni,
Virginie, fær hann heiftarlega tannpínu. Árang-
urslaust reynir hann að ná sambandi við einka-
tannlækni sinn, en lætua að síðustu tilleiðast og
leitar til ókunnugs læknis, sem býr þarna nálægt.
En það verður örlagarík heimsókn ... Albert fell-
ur ekki við þenna unga lækni, en það sama er
ekki hægt að segja um dóttur hans. Virginie og
læknirinn, Hervé, verða alvarlega ástfangin í
hvort öðru og innan tiðar eru þau gengin i heilagt
hjónaband. Faðir hennar, sem hafði augastað á
öðrum tengdasyni, verður ævareiður og vill hvorki
sjá þau né heyra. En ungu hjónin eru samt ham-
ingjusöm og ákveðin í því, að láta allt ganga vel
... En þrátt fyrir alla ástina, geta þau ekki látið
vera að rífast við og við og einn daginn gengur
það svo langt, að Virgine tekur saman föggur
sínar og fer heim til pabba sins. Til þess að
gleyma sorgum sínum ranglar Hervé út, drekkur
sig fullan, og á næturklúbb einum hittir hann
stúlku, Anitu, sem reynir að hugga hann. Hann
fer með henni heim til hennar og það skeður
ýmislegt. En Hervé grunar ekki að Anita er fjár-
kúgari og hún hefur ljósmyndara í felum í her-
bergi sínu ... E'n Anita getur auðvitað ekki fengið
Hervé til að gleyma Virgine. Og hvers vegna
skyldi hann gleyma henni? Því auðvitað kemur
hún til hans aftur og allt fellur í ljúfa löð. Hervé
getur ekki skilið hvernig hann gat fengið af sér
að vera með annarri stúlku. Virgine er sú eina,
sem hann elskar og mun nokkurn tíma elska ..,
En einn daginn fær Hervé heimsókn í lækninga-
stofuna. Virginie, sem vinnur þar sem aðstoðar-
stúlka grunar ekki hvað er á seyði, en þarna
er komin Anita, sem býður til sölu filmurnar,
sem, teknar voru af henni og Hervé í hneykslan-
legu ástandi. Hervé neitar að borga, en fær eftir-
þanka og fer til skólans, sem Anita veitir forstöðu,
en finnur hana myrta. Virgine, sem veitt hefur
honum eftirför, gerir sömu uppgötvun. En ein-
hver hefur séð Hervé halda til herbergis Anitu,
og hann er strax grunaður um morðið. En
Virgine er fullviss um, að hann er saklaus .. .
Morðinginn hefur komizt undan, og Virgine þyk-
ist sjá, að hann hafi skriðið út um þakglugga,
Til þess að fá tækifæri til að rannsaka málið nán-
ar, ræður hún sig sem danskennara við skólann,
sem nú er stjórnað af eiginmanni Anitu, Monsoeur
Flores. Hún setur sig einnig í samband við lög-
regluna, sem vinnur að þvi af miklum krafti að
upplýsa málið . .. Virgine og Hervé verða að hitt-
ast á laun. Lögreglan veit ekki enn að snotra
danskennslukonan, sem daðrar við þá er gift hin-
um grunaða tannlækni. Og Hervé gr ekki sá eini,
sem liggur undir grun. Anita var kunnug fjqlda
manna, sem höfðu ástæðu til að koma henni
fyrir kattarnef. ... Dag einn er Hervé handtek-
inn, og Virgine biður pabba sinn að hjálpa sér
við rannsókn málsins, Þð að faðir hennar þafi á
móti tengdasyni sínum vill hann ógjarna sjá hann
dæmdan saklausan. Þau feðginin rekja ný spor,
en gæta þess að hafa jafnframt stöðugt samband
við lögregluna. Og að lokum er morðinginn af-
hjúpaður og Hervé er látinn laus ...