Vikan


Vikan - 01.12.1960, Qupperneq 3

Vikan - 01.12.1960, Qupperneq 3
BOFAMYNDIR HANDA BÖRNUM Margir eru óánægðir með þær kvikmyndir sem forráða- menn kvikmyndahúsanna ætla börnum alveg hreint, og þarf ekki annað en einn byrji að öskra eða l'lauta, hin apa það óðara eftir, og svo œtlar allt um koll að keyra. Það er ófært, að ekki skuli vera hetra eftir- tit, þar sem 000—800 krakkar á versta aldri eru saman komnir. 6 giftar. Seint verður svo gert, að öllum líki. Satt er l>að, að oft eru myndirnar ekki eins góðar og æskilegt væri, en oft eru líka reglulega góðar barnamyndir sýndar, og á ég þar einkum við teiknimyndir á borð við hið bezta í framleiðslu Walts Disneys. Bófamyndir, þar sem morð og dráp eru til skiptis við rán og pyndingar eiga ekki að sjást, og vissulega er þörf á að lierða það eftirlit. Einnig væri æskilegt, að for- ráðamenn kvikmyndahúsanna sæju sér fœrt að auka eftirlitið með hegðun barn- anna í kvikmyndahúsunum. Mér skilst, að þar sé ekki vanþörf á. Hænsnin á villigötum Heimilisblaðið Vikan, Reykjavík. Getur þú ekki gefið okkur gott ráð. Svo er mál með vexti, að við húum í kauptúni úti á landi og eigum hænsni en nágrannarnir eru ailtaf að kífa út af þvi, að hænsnin okkar fara stundum inn i garðinn til þeirra. Okkur finnst, að þá geti fólkið bara girt betur. Svo átti sonur þeirra barn með dóttur okkar og stökk suður frá henni og vill hvorki sjá hana né barnið. Nágrannarnir segja, að við eigum sjálf að passa okkar liænsni en það getur nú verið anzi erfitt, eins og j)ú veizt. Við hlökkum alltaf til þegar Vikan kemur. Með fyrirfram þakklæti, Austfirðingur. Eina góða ráðið sem ég get gefið, er að gcra stíu fyrir hænsnin handa þeim að vera i, þegar þau fura út. Þvi miður hefur bréfið. verið heldur siðbúið til okkar, svo þið eruð sennilega hætt að hleypa hænsnunum út, þegar svarið kemur, en áður cn vorið kem- ur á ný ætti stían að vera til. Það sparar ykkur rifrildið við nágrannann, og hins ber lika að gæta, að þá fær nágranninn ekki þau egg, sem ykkar hænur kunna að verpa í þeirra landareign. Betri þjónustu í verzlunum Kæra Vika. Nú er svo komið, að það er varla hægt að kaupa sér eina einustu flik á kroppinn, i friði fyrir búðarstúlkunum. Maður fær kannski eina flík til að máta i mátunarklefanum en maður er varla fyrr kominn þar inn, en stúlkukindin rckur inn hausinn og segir: hvernig fer þetta? Hvernig líkar yður þetta? Mér finnst þetta lireint óþolandi, þvi henni kemur ekkert við, hvernig maður mátar, maður segir henni á eftir, hvort manni likaði tuskan eða ekki. Ein, sem vill máta í friði. Við skulum vona, að afgreiðslustúlkurnar láti „kúnnann“ máta í friði og lesi heldur þetta bréf, meðan hann er að máta. Kæra Vika. Viltu koma því á framfæri við snyrtivöru- verzlanir, að þær hafi sýnishorn af ilmvötnum handa viðskiptavinunum. Það er ekkert að marka, þó að nfaður fái að nasa úr glösunum í búðinni, þvi lyktin kemur svo misjafnlega fram, þegar maður er búinn að setja það í sig. Ilmvatn, sem á vel við' vinkonu mina, getur verið ólykt af mér. Sumar verzlánir hafa pínulítil prufuglös sem þær gefa manni. Þá má finna, hvernig lyktin kemur út á manni. Channel 5. Rétt segir þú, Channel mín. Það er aldrei of mikið dekrað við nefin á okkur. A ég að lána bílinn minn Kæra Vika. Fyrir nokkru kom maðurinn á haéðinni í’yr- ir neðan til min, og bað mig að lána sér b'íiinn minn, sem er nýlegur Fiat. Ég sagði nei, en bauðst til að skutla honum bæjarleið, er honum lægi mikið á. Hann sagði nei, og síðan liefur hann ekki tekið undir, þótt ég hafi boðið lionum góðan dag. Var það ókurteisi af mér að neita bílláninu? __ Þú hcfiir væntanlega fengið tryggingar- skirteini fyrir bilinn þinn, og þar er tekið fram, ef ég man rétt, að tryggingin gildi ekki ef billinn er í láni, og þá hefðir þú setið laglega í súpnnni, ef eitthvað hefði komið fyrir bflinn meðan liann var i láni. Einu sinni á minum yngri árum bað ég roskinn frænda minn að lána mér bilinn sinn. Svarið sem hann gaf, ætti að vera mottó fyrir alla bíleigendur: — Það er þrennt, scm ég lána aldrei. Það er kerlingin mín, pipan mín og bíllinn. Framh. á bls. 32. Bæheimskur krvstall dýrmætasta gjöfin Nýtísku form og glæsilegur stíll er einkenni alls krystals, sem framleidd- ur er í Tékkóslóvakíu. Spyrjið um hann í sérverzlunum. Höfum á boðstólum fagra listunna öskubakka og kertastjaka í gjafaumbúðum. GLASSEXPORT PRAHA CZECHOSLOVAKIA VIKANf 3

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.