Vikan - 01.12.1960, Blaðsíða 7
VERÐLAUNIN:
Ferð fyrir tvo til New York og
uppihald þar í viku. Vðrðmæti
kr. 30,000,00 Ferðin verður farin
nálægt 15. apríl.
New York er háborg kapítalismans, og höfuðvígi hans er
jafnan talið viðskiptahverfið á enda Manhattan-eyjar og ekki sízt
gatan Wall Street, sem þeir á Þjóðviljanum skrifa bara Vollstrit.
Þar eru til húsa kauphallir og auðugir viðskiptahringar. Mitt í
ósköpunum stendur kirkja heilagrar þrenningar, sem þótti á
sínum tíma engin smáræðisbygging, en er nú aðþrengd mjög milli
skýjakljúfanna.
Kjarni New York-borgar stendur á eyju milli Austurár og Hudson-fljóts. Þar er
byggðin þéttust og skýjakljúfarnir hæstir. E'f til vill flýgur Loftleiðavélin yfir einhvern
hluta borgarinnar, og verður þá útsýnið svipað þessu: tröllaukinn skógur fúnkisbygginga.
Myndin er tekin beint niður á 34. stræti og á horni þess og Fimmtu breiðgötu, — Fifth
Avenue, — stendur hæsta bygging heims, Empire State Building.
1 New York-borg eru tvö yfirbyggð íþróttasvæði, risavaxin að stærð. Það eru
Polo Grounds og Madison Square Gardens, sem hér sjást á myndinni. Á þessum
stöðum fara fram fræg íþróttamót, svo sem einvígi í hnefaleikum og öðrum við-
lika göfugum sportgreinum. Sjálfsagt verður eitthvað um að vera á þessum stöð-
um i apríl næstkomandi, og þá er tilvalið fyrir vinnendurna í verðlaunakeppni
Vikunnar að leggja leið sína þangað.
VlKAN 7