Vikan - 01.12.1960, Blaðsíða 6
;
*
Flugfélög um allan heim hafa lagt á það
sórstaka áherzlu að gera þjónustuna sem
glæsilegasta, og Loftleiðir hafa ekki látið sitt
eftir liggja í þvi kapphlaupi. Hér eru tvær
af hinum föngulegum frugfreyjum félagsins,
Rúna Brynjólfsdóttir og Anna Þrúður Þor-
kelsdóttir. Önnur býður farþega velkomna
um borð, hin gengur um beina í vélinni
sjálfri. Þær eru góðir fulltrúar fyrir starfs-
lið Loftleiða, sem þekkt er að lipurri
afgreiðslu og fágaðri framkomu. Þess munu
vinnendur í þessari verðlaunakeppni njóta,
og það verður snar þáttur í minningum þeirra
um sjálft flugið.
GETRAUNIN:
Verðlaunakeppnin mun standa
yfir í sex blöðum, og þeir, sem
vilja taka þátt í henni, eru beðn-
ir að halda saman öllum úrlausn-
um og senda þær í einu lagi til
blaðsins að keppninni lokinni.
Lausnir verða því aðeins teknar
til greina, að þær séu skrifaðar
á getraunaseðilinn, sem prentað-
ur er í hvert blað og hægt er að
klippa út.
Loftleiðir lialda uppi áætlunarflugi milli Bandríkjanna og tíu
flugstöðva í Evrópu. Vikan birtir hér mynd af annarri hinna
nýju Cloudmaster-véla Loftleiða, Snorra Sturlusyni. Ilún er stödd
á einum þeirra ellefu flugvalla, þar sem oft má sjá Loftleiða-
vélarnar koma og fara. Þessi flugvöllur er í útjaðri stórrar borgar.
Það eru 4,310 km. írá Reykjavík til
þessarar borgar. Eftir því eigið þið að
finna út hvar flugvélin er stödd.