Vikan


Vikan - 01.12.1960, Blaðsíða 20

Vikan - 01.12.1960, Blaðsíða 20
Æ þessir blaðamenn . .. En það uppátæki! Elta mig uppi útl á túni og stilla mér upp á gamlan stól til að taka mynd af mér. Er það nokkur furða, þótt maður sé svolítið feiminn. Ég er líka alls óviðbúinn, ógreiddur og ekki í sparifötun- um mínum, en ég vil auðvitað vera fínn, þegar blaðaljósmyndarar koma í heimsókn. Þó ég sé ekki hár I loftinu og eigi ekki heima í þessari fínu Reykjavik, finn ég þó pínulítið til mín — pabbi minn er nú odd- viti hérna í Selvoginum, og ég ætla npér að verða að minnsta kosti hreppstjóri, þegar ég er orðinn stór. Og þá ætla ég að banna öllum blaðamönnum að koma og taka myndir af fólki og skrifa svo einhverja vit- leysu um það! Þar sem jólin byrja í nóvember Október var ekki að fullu liðinn, þegar jóla- útstillingin var komin i allri sinni dýrS i verzlunarglugga einn i miðbænum. Það var í Rammagerðinni. Þar sem okkur þótti þetta fullsnemmt, skruppum við inn og gerðum boð eftir kaupmanninum. Hann heitir Jóhannes Bjarnasoh. — Eru jólin að koma? — Já, það er ekki ýkjalangt í þau. — Þið vitið samt betur um nálægð þeirra en aðrar verzlanir. -— Þetta er nú i sambandi við „súvenír“-söluna okkar. Það eru nú komin tvö ár, siðan við byrjuðum á þessu. -— Er ekki fullsnemmt að byrja jólin í október? —- Það er nú hér um bil kominn nóvember. Svo er þetta líka sérstök þjónusta við fólkið. Það eru svo margir, sem þurfa að senda ætt- ingjum og vinum erlendis jólagjafir, og það tekur allt upp í tvo mánuði að senda þær út með skipum. Það er svo dýrt að senda þær með flugvélum, að það geta fæstir. Auk þess þarf fólkið tima til að átta sig, þegar það er búið að slcoða vörurnar. — Þið stílið sem sagt aðallega á sendingar til útlanda? — Já. Og hvað heimamarkaðnum viðvikur, þá dreifir þetta sölunni á tvo mánuði, í stað þess að allt kemur i belg og biðu. Framh. á bls. 27. Óli J. Ólason og frú öllum er nauðsynlegt að taka sér fridag við og við og lyfta sér upp frá daglegu striti og drunga hversdagsleikans. Flestir eiga fri frá vinnu á sunnudögum og er Joá ætlazt til, að þeir noti hann til hvíldar og endurnæringar eftir erfiði vikunnar. En hjá öðrum eru helgarnar mesti annatiminn og helgidagar revndar fáir. Einn þriðjudaginn fyrir skömmu rákumst við á ung hión vestur á Ránargötu, sem höfðu skroppið 1 bæinn til að létta sér upp frá stritinu í nokkra dagn. Það hafði nú nð visu ekki verið langt ferðalag, aðeins ofan úr Hveradölum, þvi hér vorn komin Óli .T. Ólason veitingamaður og frú, en þau reka veitingastað í Skiðaskálanum ásamt Sverri Þorste'nssvni. — Verðið þið lengi i bænum? •—- Við konmm í gær og verðum hér liklega i 2 eða 3 daffa. — Haldið þið til hér i nágrenninu? — Já, við búum hér á City-hótelinu. — Er ekki þægilegt að búa þar? — .Tú, alveg áffætt. — Betra en i Skiðaskálanum? — Ja, þessu er ekki gott að svara •— ef við seoium já, þá köstum við um leið rýrð á Skiðaskálann, en ef við svörum ncitandi þá erum við að upphefja okkur á annarra kostnað — sem sagt báðir staðirnir eru áffætir. — Kannski getið þið lært eitthvað hérna i „faginu“? — Já, eflaust getum við það. Við skrepp- um við og við i hæinn og förum þá á sem flesta veitingastaði, bæði til að skemmta okkur og lika til að kynnast þjónustu og fleiru i húsunum, sem við sætum svo tekið til fyrirmyndar — eða forðazt. — Hefur ekki verið mikið að gera upp frá? Framhald á bls. 39. Jólamánuöurinn er vertíö kaupmanna. Þe' hafa beöiö hans meö óþreyju, þraukaö þorr- ann og góuna, hjaraö vormánuöina, skrimt í ördeyöu sumarsins og loks er vertíöin komin: Seölaveskin þramma úttroöin inn úr dyrum og vörurnar hverfa ofan úr hillunum. Æski- legt eöa óœskilegt — þaö eru tvenn sjónarmiö og hafa bœöi nokkuö til síns máls. Menn veröa svo kauyglaöir i þessum mánuöi, aö þeir ganga ef til vill ncerri sér og baka sér talsveröa erfiö- leika á ókomnum tímum meö þvl aö lifa um efni fram þennan mánuö. En þeir um þaö, enginn neyöir þá til þess. — Hins vegar er jólavertíöin gott meöal til þess aö ýta undir atvinnulif og framleiöslu. ViÖ höfum heimsótt einn kaupmann hér i bæ og rætt málin viö hann, Þaö viötal birtist hér i opnunni. ALLT FYRIR FRÆGÐIN A Merkilegt er það, hvað fólk telur mikil- vægt og ómaksins virði að reyna eða jafn- vel leggja mikið á sig fyrir. Kona er nefnd Jane Baldasari og er kvenna fegurst, eins og meðfylgjandi myndir sýna betur en orð. Hún hefur lagt stund á sundmennt og fékk þá flugu í höfuðið að synda yfir Ermar- sund — neðan sjávar. Það átti að vera miklu auðveldara, og kannski mundi hún losna við straumana, sem hafa þjarmað að Eyjólfi og fleirum, — það er að segja, ef þeir héldu sig á blá-yfirborðinu. Frúin, — hún er harðgift, getum við upplýst, — hafði æft sig með súrefnistæki og í froskmanna- búningi, og þar kom, að sundið skyldi þreytt. Hún hafði þó ekki farið langt, þegar mistök urðu. Eiginmaðurinn var í bát, sem fylgdi, og átti hann að sjá um að rétta henni súr- efniskúta, jafnótt og frúin tæmdi þá. Það tókst hvorki betur né verr til en svo, að hann rétti henni niður tóman kút og frúin komst nauðulega upp. Lauk þar sundævin- týri hennar í bili. Hins vegar voru birtar myndir af henni, þegar hún klæddi sig í búninginn, og líka, þegar hún málaði á sér varirnar neðan sjávar og fékk sér Pepsi Cola að drekka, — þá hefur sennilega til- gangi fararinnar verið náð. En hvort eigin- maðurinn hefur ætlað sér að losna við hana í eitt skipti fyrir öll, þegar hann fékk henni tóma kútinn, — það verður sjálfsagt seint upplýst. 20 vikan MKAN 21

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.