Vikan - 01.12.1960, Page 39
Óli J. og frú
Framhald af bls. 21.
— Jú, það vantar ekki. Aðsóknin
hefur verið með mesta móti í
sumar, ekki sízt eftir að ráðin
var hljómsveit til að leika tvö eða
þrjú kvöld vikunnar.
— Og er þá mikið dansað?
— Það er nokkuð misjafnt, oft-
ast er anzi mikið fjör.
— Þið hafið ekki vínveitinga-
leyfi?
— Nei, Skíðaskálinn tilheyrir
Árnessýslu og þar er algjört vín-
bann. Það er alls ekkert verra,
því hætt er við að fjörið myndi
breytast i læti, ef áfengi yrði með
í leiknum.
— En „blanda“ menn þá ekki
eins og þeim sýnist?
— Nei, eins litið og mér sýnist!
— Altso ekki neitt?
— Gestirnir, sem hafa heimsótt
okkur hafa allir verið prýðisfólk
og almennt ekki í filliríshugleið-
ingum.
— Hvað á að skemmta sér í
kvöld?
-—-■ Við eruin að luigsa um að
skreppa hér á „næsta bæ“ í mat
— í Naustið.
— Og svo á eftir?
— Það er ekki gott að vita,
kannski munum við það í fyrra-
málið!
heimilistækin hafa staðist
dóm re/nslunnar
eru nýtízkuleg
létta hússtörfin
biðjið um
* \ -j \ O
:
H.F. RAFTÆKJAVERKSMIÐJAN, HAFNARFIRÐI
1 i
VIKAN 39