Vikan - 27.10.1960, Blaðsíða 8
— Ég hef kompónerað massa af
lögum, sagði greifinn með hógværð.
— Svo spila ég líka á fiðlu og trumbu,
og söng hef ég lært í tvær klukku-
stundir hjá Ara Jónssyni óperusöngv-
ara. Hann fór ungur út og gerðist
keisaralegur óperusöngvari í Þýzka-
landi og átti dýrindis-„villu“ 1 Weim-
ar. Svo missti hann allt á einni nóttu,
þegar markið. féll, og síðan fluttist
hann hingað til Hafnar. Þá var hann
allslaus, og ég tók hjá honum tvo
tima til þess að styrkja hann. Caruso
hafði líka tekið hjá honum tíma, og
Ari átti bréf frá honum. Ég held, að
Ari hafi dáið í kompu uppi á fimmtu
hæð á Islandsbryggjunni.
— Hefurðu kvænzt, Karl?
— Já, og þó hef ég trúlofazt enn
þá fleiri eiginkonum, sem hafa átt
eiginmenn sína I siglingum austur í
Kína. Stundum fékk ég bréf frá eig-
inmönnunum, þar sem þeir þökkuðu
mér fyrir. Einu sinni giftist ég líka
stelpu af Gyðingaættum til þess að
hjálpa henni úr landi. Ég sagði henni,
að ég vildi ekki fara að eiga með henni
krakka, því ég yrði að tala við stjörn-
urnar. Svo var önnur ítölsk, sem vildi
giftast mér, og hún sagðist bara
mundu láta börnin í klaustur, jafnótt
og þau fæddust, og síðan vinna fyrir
mér á markaði.
— Það hefði verið þægilegt að láta
hana vinna fyrir sér ...
— Nei, það hefði verið sjmd. Þá
á maður að fá sér skessu til þess.
— Jæja, er það gott?
— Já, en þær hugsa bara um
galdra, skessur eru mitt leyndarmál,
get ég sagt þér. Ég ætla að koma
upp samfélagi með skessum á Sankti
Kildu. Þær eru til, — bara of fáar.
Það er helzt að finna þær í Irlandi
og 1 Norður-Frakklandi. Vandræðin
1 Evrópu stafa mestmegnis af því, að
skessunum hefur verið útrýmt.
— Þú sagðir áðan, að þú máttir
ekki vera að því að eiga krakka, af
þvi þú þurftir að tala við stjðrn-
urnar.
— Já, ég sagði það. Minar athug-
anir á himingeimnum eru meira
skáldlegar en astrólógiskar. Ég hef
lika gert efnafræðilegar tilraunir hjá
dr. Otto Hahn hinum þýzka, sem
klauf atómið, og þá varð doktorinn
hræddur. Það er tóm vitleysa, að
Niels Bohr eigi nokkuð í því, — tómt
svindl eins og svo margt hér i Dan-
mörku. Danskir karlmenn hafa kerl-
inga- og kynvillingablóð, — það lekur
úr kjaftinum á þeim, ef þeim er hrós-
að. Heyrðu annars, — hérna finn ég
apadansinn á ensku. Viltu fá eitt er-
indi? Þú færð ekki meira, þvi að
Kiljan er vís með að stela því. Ég
lánaði honum einu sinni Ijóð, og hann
prentaði það undir sínu nafni. Þú
mátt gjarnan minnast á það. Jæja,
hérna er eitt vers:
Stepping my little croon-song,
learned in a Bangala school,
asked I: are sun and moon
wrong,
or am I self-same a fool? —
„Sappy maramba, baobab beans,
favourite meal of the monkeys".
Hann leit á mig, og við þögðum,
meðan áhrif kvæðisins fjöruðu út. Svo
spurði ég:
— Finnst þér ekki Kiljan snill-
ingur?
— Mér finnst ekki asskoti mikið
til hans koma. Hann hefur stolið
flestu frá mér af því, sem ég hef
lesið eftir hann. Ég gaf honum efnið
í. Völuspá á hebresku, og hann mis-
brúkaði það og gerði að engu; alls
konar grófar dellur eins og það, að
ég hafi beðið um brennivín. Ég hef
aldrei beðið neinn um brennivín. Ég
bragða ekki annað en rauðvín og
kampavín eða létt Bordeaux.
— Ég er viss um, að Kiljan verð-
ur dapur að heyra þetta. Heldurðu
annars, að það sé nokkurt líf eftir
dauðann ?
— Mér er sama, hvort ég verð
könguló eða gorkúla eftir dauðann,
ef þá er hægt að tala um dauða. Mér
finnst ekki vera svo mikill munur á
lífi og dauða. En eins og ég sagði:
Mér er sama um allt himneskt, og
kannski geng ég aftur.
Ég hef orðað þetta á frönsku í
Ijóði, sem heitir Lífsþrá og byrjar
svona:
Je suis fils de la terre
et de la voute étoilée,
mais ma voix est mortelle,
pourtant je sais tordre
la corde triple, vitale, —
V audace, la douceur
et V espoir.
Viltu heyra það á íslenzku, það er
svona:
Aldrei gat líf mig lamiO;
en löngum feigðar ég samt
átti, — minn skugga 'skammt
í skelfingum sá ég framið.
— Svo þú talar um að ganga aftur,
ætlarðu þá að setjast að á Sankti
Kildu?
— Nei, mér finnst of mikil þoka
þar fyrir afturgöngur. Ég segi ekki,
hvar ég verð, en ég lofa því, að þá
skal ég taka í lurginn á ýmsum.
— Heldurðu, að það verði dálítið
spennandi að vera afturganga?
— Ég vona það.
— Hefurðu ánafnað einhverjum
verk þín, ef þau verða óseld?
— Nei og ætla ekki að gera. Ég
er að hugsa um að taka þau með mér
yfir um. Heyrðu annars, — kannski
einhverjum þætti gaman að sjá krítik
um verk mín, sem birzt hefur I út-
lendum blöðum. Ég hef hér þýdda
klausu úr amerísku blaði. Það er
prófessor Percy Grainger í New York,
sem hefur skrifað.
Karl réttir mér vélritað blað, og
yfirskriftin er: Um skáldskap og mál-
aralist Karls Einarssonar Dunganons.
„Mér hefur verið hið mesta gleði-
efni að sjá nokkur dæmi af hinni
sérstæðu og merkilegu list herra Karls
Einarssonar Dunganons, — skáldskap,
málaralist og heimspeki. Verk hans
eru sönn sýnishcrn hins ramm-is-
lenzka anda, — efnl, sem hefur full-
komnazt af eigin rammleik frá forn-
öld til vorra daga. — Listir hans
bergmála hin freyðandi frumöfl nátt-
úrunnar og ráða með frumskyggni
forlög ókominna kynslóða. Undravert
er, að tilfinningar hans hafa getað
endurskapazt í svo mörgum heims-
tungum, þar sem hann er inngróinn
i margra ættarstofna, menningu frá
norðurskauti að suðurhveli jarðar.
Myndlist hans er árangur af stór-
fenglegu hugmyndaflugi. Hér er ekki
um náttúrustælingu að ræða. Sann-
arlega er öll list hans eitt grettistak
inn I dulheima mannsandans."
— Það er dáindi, hvað þessi krítik
er falleg, Karl. Ég trúi varla öðru
en Helgi Sæm. rumski og þú fáir lista-
mannslaun, þegar þeir lesa þetta.
Viltu nokkru skila til þeirra heima
á Fróni að lokum?
— Ég gæti svo margt við þá spjall-
að, en sleppi þvi hér. Þó mun vel
fara á því, að þú flytjir þeim
Dunganonsdrápu, þá er ég orti um
árið:
Hlœjandi eftir hlíöarvánga
ihlakka lœkir aö jafnast
í ósum.
Eins í mér mun lifna löngun
aö lygna hjá drósum.
Húla og gúla í heimi þessum
hef eg rataö —
og fjöllin há.
1 svaka messu, skessum hjá,
sess eg átti,
þegar og þá.
Veraldar margar vandáleiöir
víöa hef eg rataö;
haföi gát í innra garö
geösins, — engvu var glataö.
En glyggni margt aö engvu varö,
G.8.
DANSMÆ
Ég er mesti þorskhaus, þegar konur efu annafs vegar, Ég veit
það vel. Það voru kvennamál, sem urðu til þeSs, að ég Hafnaði í
Beni Mússa, þótt sá staður sé siður en Svo neitt. hressingaríiséii.
Meðalhiti árið um kring er fuli 35 stig í forsæiu, móti sóiu er iiægt
að sjóða egg. Ég tiéf séð svó þéttari flugnahóþ þar úti fýrir dyrum,
að það lá við ég yrði að, skerá mig gegnum hanri. Auk þess er nóg
þar af ýrnsum smámuhúm eins og möskítófiuguni, flóm, veggjatití-
Umt lúsum Og éitruðum sporðdrekum.
Landsiág að öðrú leýti? Hjá, ef þú ért gefinn fýrir sand og kiaþþ-
ir, tnUndirðu ekkert hafa við það að athugá. Svo.ér þvi nú þánriig
háttað, að einkennisbúningur útiendingahérdeildarinnar er ékki
beiniinis gerður með tiiliti til þæginda. 1 öllum herklæðum býst ég
við, að hver liðsmaður hafi verið með um það bil fjörutiu kíló
á bakinu.
Þégár ails vár gætt, var þetta samt ekki svo afleitt líf. Þegar frá
éru taldar fiugur, hiti og allt það, hafði maður í rauninni engar
áhyggjur. Fæðið var gott, og ég gat oft náð í Marokkóvín fyrir
fáeina aura flöskuna. Liðsforingjadeildin hafði aðsetur á háum
hjalla, og liðþjálfi okkar, sem var spænskur og hét Ortega, var ekki
sem verstur, meðan við létum að vilja hans, — athugasemdalaust.
Ortega var einkennilegur náungi, — ánægður með sjálfan sig,
kannski. — Sá orðrómur lék á, að hann væri hertogasonur eða eitt-
hvað í þá áttina. Hann var dæmigerður Suðurlandabúi, toginleitur,
dökk augu, þunnar varir, hæglátur I fasi, spaugaði aldrei á her-
æfingum, en þó fjarri því að vera nokkur hrotti.
Og þvílikt skap! Ég man eftir stórum og sverum Pólverja í okkar
flokki, sem nefndist Kallinskí. Einu sinni kom hann með athuga-
semd að gefnu tilefni, það var rétt áður en við áttum að gegna varð-
þjónustu. Ortega sagði ekki orð í það skipti. E'n degi seinna, er við
gengum af verði, skipaði hann Kallinski að koma að eyðikofa nokkr-
um, og þar tók Ortega svoleiðis ofan í hann, að eftir það þekktist
ekki, að komið væri með mótbárur. Við gerðum eins og ósjálfrátt
allt, sem okkur var sagt, og lífið var yndislega einfalt og vandræða^
laust, — þangað til Júanita kom.
Ég verð að skjóta því hér inn, að Beni Mússa er lítið Arabaþorp
með rúmlega fimmtíu kofum og nokkrum tylftum af pálmatrjám.
Það stendur strjált meðfram veginum til E1 Súk, sem er enn minna
þorp, fimmtán mílum innar I eyðimörkinni. Mllli þorpsins og her-
búða deildarinnar er stór, en hrörlegur herskáli, sem gengur undir
nafninu: Kaffihús, gildaskáli og hótel Sahara. — Veitingamaður-
inn á þessum stað heitir Jimmy og var áður liðþjálfi i herdeildinni,
Hann er af blönduðu kyni úr Mið-Evrópu.
Jimmy seldi bæði gott og ódýrt vín og var heiðarlegur á sinn hátt,
Hann reyndi að minnsta kosti aldrei að blanda vín sitt vatni. Svo
má segja, að hver einasti eyrir, sem við unnum okkur inn, rynni
I vasa Jimmys. Aftur á móti sá hann okkur fyrir nýju víni og eins
konar kabarettskemmtunum á kvöldin. Að vísu má með sanni segja,
að ekki væri það nein fyrsta flokks sýning. Venjulega var það mið-
aldra Arabakona, feit og bústin, sem dansaði þenna óhjákvæmiiega
magadans. En undirspilið var að jafnaði heldur óhefluð innskot
frá áhorfendum, — þangað til Júanítu skaut upp.
Jimmy kom okkur á óvart með henni eitt laugardagskvöld, þegar
við vorum nýbúnir að taka út kaupið okkar. Það var drungi yfir
öllum mannskapnum, og einhverjir piltanna klöppuðu hástöfum
eftir magadansmeynni. Þá gekk Jimmy fram á gólfið og bað okkur
að gera svo vel að halda kjafti, ef við vildum ekki, að hann lokaði
salnum á minútunni. Kvað hann sér ekki hafa orðið það með öllu
kostnaðarlaust að fá talið listakonu á heimsmælikvarða á að takast
þessa ferð á hendur alla leið til Sahara. Yrðum við þvi að gera
svo vel að haga okkur skikkanlega, spara athugasemdir og finna
ekki upp á prakkarastrikum á borð við það að klípa stúlkuna í bak-
hlutann, þó að hún kæmi of nærri borðunum.
Og nú kvaddi gamla slagharpan sér hljóðs, en hún hafði verið
tekin sundur svo oft, að það var ekki meir en svo, að hún héngi
saman lengur. Og Júaníta kom dansandi inn.
Það hefði ekki burft svo
fagra og töfrandi konu sem
Júanitu, til að koma blóðinu
á hreyfingu i hermönnum
útlendingasveitarinnar, - er
ekki höfðu séð annað en
sand um langan tima
B VUCAN