Vikan - 27.10.1960, Blaðsíða 13
ÞEKKTU
SJÁLFAN
ÞIG
<2)i\ Ylíjattliíaá
onaááon
Seiður valdsins
Köllun foringjans.
Manngerð ástarinnar einkennist af
fórnarlundinni, þránni aS fórna sér fyr-
ir þroska og hamingju annarra. Mann-
gcrð valdsins þráir einkum að sveigja
aðra til þjónkunar undir vilja sjálfrar
sín, fórna manndómi þeirra og lifsham-
ingju á altari eigin frama.
Köllun foringjans vex upp úr sterkri
sjálfsánægju. Eiginn breyzkleiki er mann-
gerð valdsins ekki hugstæður. Hún leit-
ast miklu fremur við að varpa yfir sig
guðdómlegri dýrð: setja sig jafna guði
eða að minnsta kosti telja vald sitt frá
honum runnið. „Með þvi að lúta mér
og vegsama mig þjónið þér guði yðar
hezt.“ Af sömu ástæðu er sá, sem berst
gegn mér, guði og öllu hinu góða and-
vigur.
Hinn skarpskyggni stjórnfræðingur
endurreisnarskeiðsins, Macchiavelli, sem
hezt heíur lýst manngerð valdsins, legg-
ur fast að stjórnarleiðtogum að tryggja
vald sitt á allan hátt, en fyrst og fremst
með þvi að sýna lýðnum, að hann sé
nákominn og liandgenginn guði. Hins
vegar megi hið guðlega siðalögmál hvergi
standa i vegi fyrir þeim niðingsbrögðum,
sem valdhafanum þyki nauðsynlegt að
beita andstæðinga sina i valdabaráttunni.
Dyggð valdsins er að dómi Macchiavellis
fólgin i þvi að láta glæpi sina hirtast
lýðnum sem dyggðir.
Þessi viðleitni er nátengd þeirri sjálfs-
upphafningu, sem einkennir manngerð
valdsins. Um það eru fjölmörg dæmi
úr samtíð okkar. Hin alræmda nazista-
kveðja: Heil Hitler — átti beinlinis að
setja nafn foringjans i stað guðs i al-
gengustu kveðju Þjóðverja: Gruss Gott.
Hins vegar þoldi Hitler engum öðrum
manni að jafna sér við guð á þennan hátt.
Stormsveitaforinginn Röhm, sem lét
grafa Heil Röhm á ritinga manna sinna,
varð fljótlega að gjalda slika ofdirfsku
með lili sinu.
Lögmál valdabaráttunnar.
Þvi er svo farið með valdið, að maður
hefur það aldrei sem örugga eign, held-
ur þarf ávallt að vinna það og tryggja
sér það að nýju. Þetta sprettur að nokkru
leyti af sjálfræðisþrá fjöldans, sem vald-
hafinn vill sveigja til hlýðni og þjónk-
unar við sig, og svo af valdafikn keppi-
nautarins, sem æsir múginn til andstöðu
við kúgarann i þeiin tilgangi að ná þeim
mun öruggara valdi yfir honum sjálfur.
Þannig stendur manngerð valdsins í
stöðugri baráttu um það, sem henni
þykir eftirsóknarverðast allra mæta:
að ná völdum, að lialda völdum sínum
og að auka þau. Hvenær sem valda-
streitumaðurinn þreytist og staðnar i
þessari baráttu, glatar hann forystuhlut-
verki sinu og liverfur i hinn undirokaða
múg. Hvergi koma þeir eiginleikar, sem
einkenna manngerð valdsins, skýrar
fram en i þessari sleitulausu valda-
baráttu.
Á dögum Macchiavellis og raunar
lengi síðan þótti manngerð valdsins
„öxin og jörðin“ vera öruggust geymsla
fyrir andstæðinginn. Vopn áróðurs og
persónulegs rógs, sem nú á timum ræður
oft úrslitum stjórnmálabaráttunnar, var
ekki jafnbiturt þá og nú. Hins vegar
getur andstæðingur nú á timum haldið
áfram að vera hættulegur, þó að hann
hvili i gröf sinni. Að visu er timi blóð-
ugra „hreinsana“, eins og Macchiavelli
lýsir þeim, ekki liðinn. Fortið ýmissa
lireinræktaðra valdastreitumanna er
drifin blóði og ötuð ódæðisverkum. Samt
er einkennandi fyrir valdamanngerð nú-
tímans sá geigur, sem huslaður nárinn
getur vakið, og það úrræði, — sem
Macchiavelli þekkti ekki, — að liinn
liprasti skósveinn og handlangari við
myrkraverkin þrýsti frammi íyrir al-
þjóð ódæðisstimplinum á enni hins
fölva nás.
En jafnvel i þjóðskipulagi, þar sem
blóðugar hreinsanir eru taldar til myrkra-
verka fortiðarinnar, beitir manngerð
valdsins bitrum vopnum i baráttunni
um yfirráðin yfir fjöldanum. Þetta þýð-
ir auðvitað ekki, að hún seilist eftir
yfirráðum eingöngu i kúgunarskyni.
Auðvitað kemur margur hreinræktaður
valdastreitumaður ýmsu góðu tií leiðar.
En ástriða hans stefnir ekki að þvi að
fórna sér fyrir velferð annarra, heldur
að verða voldugur, helst óviðjafnanlegur.
Framhald á. bls. 29.
Marmgerð valdsins jpráir a sveigja
aðra til hlýðni við eigin boðorð og
fórnar lífshamingju annarra á altari
eigin frama. En valdið reynist þeim
ekki sú hamingja, sem þeir hugðu
og þeir eiga fáa vini.
VIKÁN 13