Vikan - 27.10.1960, Blaðsíða 26
MAFIA
Framhald af bls. 5.
manna og þeir skotnir án nokkurr-
ar viðvörunar. Yfirmaðurinn í Kali-
forníufylki hafði lengi haft auga-
stað á kvikmyndafélögunum og vissi
þar saman kominn geysimikinn
auð. Honum datt í hug að reyna
fjárkúgunaraðferðir við nokkur
stærstu félögin. Kvikmyndafélögin
eru hins vegar þau fyrirtæki, sem
mjög eru undir smásjá almennings,
og MAFIA taldi mjög óráðlegt að
beita þvingunaraðferðum gagnvart
þeim. Kaliforníuforstjórinn hafði
ekki ráðfært sig við „toppmennina“
i málinu, og það var sendur maður
heim til hans í lúxusíbúðina í
Beverley Hills. Forstjórinn sat í
stofu sinni, og sendimaðurinn skaut
hann gegnum gluggann.
Einu sinni hefur þó verið gerð
undantekning: Forstjóri MAFIA í
sjálfri New York var einn af æðstu
mönnum hreyfingarinnar, eins og
að likum lætur. Honum datt í hug
að drýgja tekjur sínar með einka-
bisnis í eituriyfjum. Hafði hann
fengið sendingar frá ítaliu og sjálf-
ur annazt sölu. Hann fékk eina við-
vörun, en þegar hann sinnti lienni
ekki, kom að því, að dagar hans
væru taldir. Hann sat inni á dýrustu
rakarastofu borgarinnar, og rakar-
inn ætlaði að fara að snyrta hann,
þegar tveir grímuklæddir mcnn
þustu inn og röðuðu nokkrum kúl-
um í belginn á forstjóranum.
MAFIA vill umfram allt vinna í
leyni og forðast að verða umtals-
efni. Ef eitthvað gerist, sem vek-
ur athygli, eru seglin dregin sam-
an í bili. Hreyfingin hefur tekjur
með tvenns konar móti: löglegar
og ólöglegar. Þegar upp kemst og
forráðamennirnir telja skynsamlegt
að kippa að sér hendinni, þá hefur
MAFIA engu að síður miklar tekj-
ur og það með heiðarlegu móti. Þeir
hafa komið upp margvíslegum
rekstri, sem tryggir það, að starfs-
menn hreyfingarinnar geti haft góð-
ar tekjur þólt megintekjustofnarnir
bregðist. Löglegi bísnisinn gefur
lítið af sér á móti neðanjarðarstarf-
seminni. Hún er þríþætt: útvegun,
dreifing og sala á eiturlyfjum, fjár-
kúgun og rekstur hóruhúsa.
Eiturlyfjabísnisinn er óliemju-
umfangsmikill og ekkert sináræðis-
fyrirtæki út af fyrir sig. MAFIA út-
vegar megnið af þeim frá Austur-
löndum, en ítalia er eins konar
miðlunarstaður, og þaðan er þessum
eftirsóttu vörum dreift. Megnið fer
til Bandaríkjanna, og dreifingar-
kerfið þar spannar allt landið. Það
hefur verið sagt, að MAFIA væri
ríki i rikinu i Bandaríkjunum. Eng-
inn veitt með vissu um fjárkúgun
hreyfingarinnar á stórfyrirtækjum,
en talið er, að hún eigi sér stað
i talsverðum mæli, og vitað er með
vissu, að MAFIA hefur mikil áhrif
á gang stjórnmáia i landinu. -— Það
gerðist spaugilegur atburður i
Texas um arið, þegar MAFIA réyndi
að koma manni i stöðu íylkisstjóra.
Það merkiiega var, að þetta tókst,
en þá gerðist það, að maunfjandinn
gerðist heiðariegur og sneri alger-
lega baki við giæpahreyíingunni og
neitaði að gegna erindum hennar.
Gekk hann jafnvel svo langt að ráð-
ast til atiogu gegn henni. Siika
móðgun gat MAFIA auðvitað ekki
þoiað, og þið getið nærri um það,
hvaða endalok maðurinn fékk.
Chicago hel'ur lengi verið mikið
glæpabæú, og yfirmaður MAFIA
þar, hinn illræmdi A1 Capone, var
einn æðsti maður hreyíingarinnar.
Hann var i eina tið kailaður „ijand-
maður þjóðféiagsins nr. 1“. Hann
hélt ekki nógu vel á spilunum og
var nappaður fyrir skattsvik og dó
1940.
Italinn Lucky Luciano hefur rið-
ið sjáift netið og á ölium meiri þátt
í skipulagningu MAF'IA sem fyrir-
tækis. Hann er taiinn vera æðsti
maður hreyfingarinnar. Luciano er
fæddur á Sikiiey en upp alinn í fá-
tækrahveríi í New York, svo að
segja má, að bakgrunnurinn sé góð-
ur. Hann náði ser vel á strik i
Bandarikjunum, og allir vissu það,
að hann var liöfuðpaurinn i giæpa-
hreyfingunni. Samt var ekki hægt
að skeröa hár á höfði hans, þvi að
bandarisk lög heimta, að maður sé
staðinn að verki, tii þess að hægt
sé að taka liann fastan og koma
yfir hann lögum. Luciano og hinir
æðstu menn MAFIA láta yfirleitt
ekki standa sig að verki. Til þess
eru þeir of sleipir. Þeir láta fram-
kvæma verkin fyrir sig og koma
hvergi nærri, að því er virðist.
Bandariska lögregian gerði allt,
sem í hennar valdi stóð, til þess
að hafa liendur i hári Lucianos, —
og að lokum tókst það. Það mun
hafa verið fyrir meint skattsvik, að
„gangsterinn“ var tekinn l'astur, og
þóttust menn þó nokkru bættari að
láta hann ekki ganga lausan.
Þegar stríðið skall á, gerðist sá
ótrúlegi hlutur, að MAFIA tók að
sér að útrýma neðanjarðarhreyf-
ingu Þjóðverja i Bandarikjunum,
sem vitaskuld var hernaðarlega mik-
ilvægur hlutur. Þessu verki stjórn-
aði Lucky Luciano úr fangelsinu
og geklc svo vel fram í því, að Þjóð-
verjunum var útrýmt eins og rottu-
plágu. 1 striðslokin gengu liðsmenn
Lucianos á lagið og kröfðust þess,
að foringinn yrði látinn laus, ann-
að væri ekki rféttlætanlegt fyrir
slikt starf í þágu þjóðarinnar. Þar
kom, að bófanum var sleiipt, en þó
með því skilyrði, að hann hyrfi úr
landi. Það gerði Luciano. Hann
fluttist til Napólí á ítaliu, en allir
sannir MAFIA-menn héldu við hann
tryggð, og hann stjórnar hreyfing-
unni jafnörugglega og áður. Þó er
sagt, að hann kunni eklti sem bezt
við sig á Italíu, þótt þar séu
bernskuslóðir hans. í Napólí rekur
Luciano verzlun og hefur á boð-
stólum uppskurðartæki og annað
til lækninga, sem sagt sitt af hverju
til áð bjarga mannsfífum. Þegar
hann fór frá Bandaríkjunum, gerð-
ist athyglisverður atburður: Blaða-
menn þyrptust niður að höfninni
og ætluðu að hafa tal af kappanum
í tilefni brottrelcstrarins úr landi.
En þegar þeir nálguðust skipið, sem
flytja átti Luciano til Italíu, kom á
móti þeim veggur hafnarverka-
manna, sem varnaði þeim leiðar-
innar. MAF’IA hafði gert sinar ráð-
stafanir. Hreyfingin kærði sig ekki
um, að blaðamenn næðu tali af
Luciano. Og MAFIA átti liauk í
horni, þar sem voru hafnarverka-
menn i New York. Þeir tóku verkið
að sér. Það er líka talið, að hlýðni
hafnarverkamanna hafi mjög auð-
veldað MAFIA flutninga á eitur-
lyfjum um höfnina í New York.
Lucky Luciano hefur verið kall-
aður liættuiegasti glæpamaður vorra
tíma. Lögreglan eltir hann á rönd-
um, fylgist með ferðum hans eftir
megni. Milli hans og annarra, sem
framkvæma myrkraverkin, eru
margir milliliðir, til þess að erfið-
ara sé „hanka“ yfirboðarann. Þetta
kemur að nokkru leyti í ljós í við-
tali við Luciano, sem hér birtist.
Hann er annars ekki hrifinn af
blaðamönnum, en þessari banda-
risku konu tókst að komast inn á
heimili hans og hafa út úr honum
nokkur orð.
MAFIA er stórhættulegur félags-
skapur, sem Interpol og lögregla
margra landa reyna að útrýma eftir
megni. En það reynist erfitt, og
sjállsagt verður enn bið á því, að
MAFIA heyri sögunni einni til. ★
Höfuðpaurinn á
heimili sínu
Framhald af bls. 5.
askus. Ákæran var látin niður falla.
„Það voru alit uppiognar sakir,“
sagöi hann. „Þessir romversku snáp-
ar eru aiiiaf að leita að íiski í soóið,
og ég er eftiriætið þeirra. Ég er
svo sem enginn engili, en ég hef
aldrei gert neitt ijótt, ekki einu
sinni fyrir vestan, — svolitla sprútt-
söiu kannski eða af þvi taginu, —
en hvita þrælasölu eða þess háttar
ófögnuð? Aidrei! Ég liata þess kon-
ar fóik, hata það bara. Það er svo
sem alit í lagi með þjóf, — en einn
af þeim, — ég vil sem minnst eiga
saman við þá að sælda. Þar að auki
muudi ég aldrei koma nálægt svo-
leiðis hér með þessa snápa tilbúna
að hlamma sér á mig eins og tonn
af múrsteinum.“
Hvernig hafði hann ofan af fyrir
sér, spurði ég. „Ég rak nokkra næt-
urklúbba um tíma óg gerði það anzi
gott, en þá fundu snáparnir eit-
urlyf eða eitthvað svoleiðis og
lokuðu hjá mér. Það eina, sem ég
gat gert eftir það, var að læra þess-
ar ferðamannabækur utan að og
sýna bandariskum ferðamönnum,
hvernig þeir gætu bezt skemmt sér.
Aukið blæfegurð hársins . ..
með hinu undraverða
WJHITE RAIN fegrandi Shampoo . . . >etta
undraverða shampoo, sem gefur hárinu
silkimjúka og blæfagra áferð.
petta ilmríka WHITE RAIN shampoo . . .
gerir hár yðar hæft fyrir eftirlætis hár-
greiðslu yðar.
petta frábæra WHITE RAIN shampoo
. . . lætur æskublæ hársins njóta sín og
slær töfraljóma á það.
Hvítt fyrir venjulegt hár —
Blátt fyrir þurrt hár —
Bleikt fyrir feítt hár.
WHITE RAIN shampoo-hæfir yðar hári.
HEILDVERZLUNIN HEKLA H.F.
Hverfisgötu 103 — Sími 11275.
26 VIKAN