Vikan


Vikan - 27.10.1960, Blaðsíða 25

Vikan - 27.10.1960, Blaðsíða 25
Oft berast okkur bréf, þar sem ungar stúlkur biðja okkur að gefa sér ráð um það hvaða litir klæði þær bezt og hafa þá nefnt hára- og augna- lit o. s. frv. Nú ætlum við að reyna að slá margar flugur í einu höggi og birta hér fimm mismunandi lita- ger:ðir og ráðleggingar samkvæmt þeim, og höfum við nefnt kaflana eftir fimm vel þekktum „týpum“. Ef til vill geturðu flokkað litarhátt þinn undir einhvern kaflann, en ef ekki, vertu þá ekki smeyk við að prófa þig áfram upp á eigin spýtur. Grace Kelly-týpan: Fremur ljóst hár, blá eða grá augu, frískleg húð, sem verður fallega gullbrún á sumrin. Þessari stúlku fer vel klæðnaður í alls konar bláum lit, og sennilega er hún nú þegar búin að fá sér pastel- bláan kjól í klæðaskápinn. En ef þú reyndir nú sterkan, kóngabláan lit eða páfuglsbláan svona til tilbreyt- ingar? Það fer t. d. ákaflega vel á baðfötum. Annars geturðu reynt flesta hreina liti við sólbrennda húð á sumrin. Heyndu smaragðsgrænt, það er að öllum líkindum nýr litur fyrir þig, en ekki verri fyrir það. Reyndu skæran, hindberjarauðan lit eða kóralrauðan, eða ef til vill turkisgrænan, ef þú ert frekar gráeyg en bláeyg. Þú getur líka reynt sítrónugult, þegar þú ert orðin fallega brún. En þú skalt forðast margbrotna blendingsliti, sem oft verða dálítið tætingslegir á fágaðri stúlku, eins og þú ert. Moria Shearer-týpan: Rautt hár, blá eða græn augu, mjólkurhvít húð, freknótt á sumrin. Þar sem þú verður ekki sólbrennd hvort eð er, skaltu einbeita þér að því að verða fíngerð hafmeyja með ljósa húð á baðströndinni Fáðu þér daufsvört baðföt, ekki mikið fleginn sumarkjól úr svörtu eða sekkofinni bómull, ásarht stórum baðhatti í venjulegum lit, og notuðu kórallitað- ar eða gylltar skreytingar. Gættu þín á hvíta litnum. Hann fer kannski vel við hárið, en sjaldan við húðina. Reyndu heldur dimma, blágræna liti í hafmeyjustíl, ef augun eru blá eða grá. Ef þú hefur græn augu, skaltu reyna alla hugsanlega gulgræna eða strágræna liti, sem þú nærð i, Því að þeir fara sérstaklega vel við augu þín og hár. E'i þú bæ.tir svo við fallegri sumarskreytingu eða silkiklút i svip- uðum lit og hárið, fer varla hjá því að það verður slegizt um þig! Aftur á móti skaltu forðast alltof ákveðna græna liti, Þó að þér finnist þeir fara vel við litarhátt þinn. Maísgult eða ljós-banangult kemur einnig mjög til greina og fer vel við lindigræna, appelsínugula eða múrsteinsrauða liti. Og reyndu að gamni ljósan, lilla- bláan lit. En þú verður að vera fljót að ákveða þig með hann, ef þér skyldi lítast á hann. Marilyn Monroe-týpan: Ljóst, gullið hár, blá eða grá augu, Ijós húð á veturna, en dauft súkku- laðibrún á sumrin. Þú getur notað svo að segja alla hreina, ákveðna liti, en gættu þín á pastellitunum. Þeir geta gert þig of barnalega og sykursæta í útliti. Þú ert seinnilega hrifin af hvítum sumar- kjólum. Fáðu þér þá slæðu eða ný- stárlegar skreytingar í kornbláum, turkis-grænum eða kóralrauðum lit. En gættu þín á gula litnum. Hann gerir gula litinn í hárjnu of áberandi, svo áð silfraði blærinn hverfur í skuggann. Fjólublátt reynist mörgum hættulegur litur, en þú hefur svo marga aðra möguleika. Hefurðu gert þér ljóst, hve brúni liturinn, sem get- ur Varla talizt venjulegur sumarlitur, fer þér ljómandi vel, bæði við húð- ina og hárið? Ef þér tekst að ná i súkkulaðibrún baðföt, ertu viss með að slá í gegn! Ava Gardner-týpan: Svart hár, djúp augu, húð sem dökknar meir og meir í sólskini. Sparaðu ekki skreytingarnar, að minnsta kosti ekki i ‘ sumarleyfinu. Notaðu alla þá gimsteinaliti, sem þú hefur að öllum likindum haft ágirnd á, en ekki þorað að nota hingað til. Sameinaðu kornblátt og smaragðs- grænt, grænt og fjólublátt, rauðgult og hvítt eða svart. Vertu ekki smeyk við rúbinrautt, kirsuberjarautt, kan- arigult og páfuglsblátt, en notaðu það ekki allt í einu! Farðu eftir augnalitnum hverju sinni. Það eru til svarthærðar konur með dökka húð og blá augu. Fyrir þær er kónga- blátt, kornblátt eða ljósfjólublátt til- valinn sumarlitur, en hinar brúneygu eða svarteygu kynsystur þeirra geta valiö úr litum, sem ekki er blátt í. Hvítt og svart eru litir, sem vekja athygli á stúlkum með mikinn kyn- þokka, og eru þá gylltar skreytingar mjög skemmtilegar. Það verða áreið- anlega margir, sem hneykslast á lit- skrúðugum klæðnaði þinum. En þeir verða áreiðanlega miklu fleiri, sem verði hrifnir af honum. Audrey Hepburn-týpan: Brúnt hár, dökk augu, suðræn húð, sem verður enn dekkri í sumarsól- inni. Allir gulinir litir fara þér vel. öll sólskins litbrigðin, allt frá íyrstu bleikgulu morgungeislunum og langt inn í hinn hlýlega, appelsínuguia lit aftanskinsins. Blandaðu þeim saman á ýmsa vegu. Það eru ekki margir, sem hætta sér út á þá braut, og þá allra sízt rauðgula litinn, sem klæðir þig hvað bezt af því öllu — einkum með hvítu eða rjómagulu, páfugls- bláu eða dökkblágrænu, svo ekki sé minnst á lindigrænt. Það er einmitt tilvalinn litur fyrir þig, ef þú hefur ögn grænleit augu. Ef augun eru mó- brún eða grá, ættirðu heldur að nota turkisgrænt. Kóralrautt er klæðileg- ur og skemmtilegur litur og fer vel í báðum þessum tilfellum, en dökk- bl.tt, dökkrautt, dökkgrænt og brúnt gefur hvorki húð þinni né hári áber- andi svip og hefur leiðigjörn áhrif. textinn I síðasta blaði birtum við íslenzkan texta við lagið Itsy uitsy teenie weenie yellow poka dot bikini, sem Ragnar Bjarnason söng fyrir s’.cörp ..u inn á hljómplötu, sem er að koma út hjá íslenzkum tónum. Hér sjáið I þið svo nýjan texta, sem Ragnar syngur á sömu plötu. Textann gerði Ölafur Gaukur, sem einnig samdi lagið. FARÐU FRÁ Já, farðu frá ég forðast að keyra á og fer hérna áfram ef ég má. Já, farðu frá, mér finnst ætti að taka þá sem flækjast um strætin en ekkert sjá. Þeir setja þig í steininn karlinn já, já, já, og ylja þér um beinin karlinn, kenna þér að rápa' ekki' yfir rauðu ljósi á. Já, farðu frá og forðastu að hitta þá. E'n flýttu þér nú, i..ér liggur á. ,skák E'.nn er si flokkur skák.v.anna, sem frekar kýs róleg kaffihús heldur en op.nbera skákstaði til þess að tef.a skák: hinir svokölluðu „kaffihúsa- skákmenn". Ilér á Islandi hefur þessi háttur tiðlcast talsvert, en þó senni- lega mun minna an áður. f þeim hópl geta oft leynst góðir skákmenn, sev.i vx ikað gcatu þeim, ser.i tefla á opin- berum skákmótum. Hjá slikum náttúrubörnum skákar- innar íæðast oft, frumlegar hug ..ynd- ir, eins og eftirfarandi skák sýnir. Hvítt: Lohmann. Svart: Lohsse. Drottningarbyrjun. 1. dJf Rf6 2. Bgl> (Frumlegur og ó- venjulegur leikur. Þessum leik væri bezt svarað með 2. — Re4)..g. — d5 3. Rd2 e6 k- e3 Be7 5. Rgf3 Rbd7 6. Bd3 c5 7. c3 b6 8. Dalf?! (Hérna kem-- ur kaffihúsaleikurinn. Hvað skyldi nú þessi skr'* ni drottningarleikur eiga að þýða Kannski stefnir hún á pnnktana c6 og a6, hugsai andstæð- ngurinn.) S. — 0—o .0. Re5U (Þetta er iykilleikurinn i „kaffihúsaafbrigð- inu“). 9... RxReSJ? (Freistandi leik- ur, en örlagaríkur) 10. dxe5 Rd7 <Cq nú kemur skýringin á 8. leik hv.tv Getlð þið fundið næsta leiks h útsVi 11 Dak — hJf!! Hótar máti, Dxh7 nít og BxBe7 og hvor tveggja verður e<ki varið og þessvegna gafst svartur upp. Lokastaðan. áttu þetta? Nú er það veggurinn, sem við ætl- um að gera að umtalsefni, eða rétt- ara sagt skemmtilegt veggfóður úr basti, sem ekki er límt, heldur hengt upp á vegginn. Bast þetta fæst hér i verzlunum í tveimur litum, ljósum og dökkum og það má nota það til margs fleira en se.n veggfóður. Hægt er að búa til úr því alls konar mottur, dúka á borð, og einnig má hengja ræmur fyrir ofan borð eða rúm og. festa í myndir eða smádót eftir vild. Þið gætuð jafnvel búið til lampa- skerma úr bastinu, en til þess þarf svolitla handlægni. Sem sagt mögu- leikarnir eru óþrjótandi. Meterinn af: bastinu kostar 110 krónur. (Sslcamyndin Teusday Weld VIKAN 25

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.