Veðrið - 01.04.1958, Síða 3
RITNEFND: JON EYÞORSSON
FLOSI H. SIGURÐSSON
PÁLL BERGÞÓRSSON
TÍWARIT HANDA ALÞÝÐU UM VEÐURFRÆÐI AFGREIÐSLUSTJÓRI'
KEV.UR ÚT TVISVAR Á ÁRI. - VERÐ ÁRG. KR. 30.00 GEIR ÓLAFSSON
1. HEFTI 1958 3. ÁRGANGUR DRÁPUHLÍÐ 27. SÍMI 15131
VEÐRIÐ
Ur ýmsum áttum
Kápumyndin.
Framan á kápu 1. heftis var mynd af einkennilegu, kringlóttu skýi, sem
minnti helzt á hatt eða hjálm. Sumir lesendur efuðust um, að þetta gæti verið
ský og héldu þetta „fljúgandi disk“ eða einhvers konar loftfar. Sannleikurinn
er sá, að sh’k ský eru nokkuð algeng i landátt hlémegin við fjallgarða. Hnúka-
þeyrinn skefur þá utan af þeim, svo að þau verða slétt og ávöl. Stundum eru
þau aflöng og minna á hvalbök, stundum kringlótt eins og hjálmur. Senni-
lega verða þau að snúast eins og skopparakringla til þess að fá á sig fallega og
reglulega hjálmlögun.
Að þesu sinni er einnig mynd af skýjahöttum á kápu. Myndina tók major
Sweeney á Keflavíkurflugvelli 22. maí 1957 kl. 2100 — á litfilmu. Myndamótið
er þvi gert eftir litmynd og prentað í svijmðum lit.
Þessir hattar eru ekki alveg eins reglulegir og „gamli hatturinn," en annars-
svipaðir honum.
Svarsimi 17000
Hinn 1. marz s. 1. var tekinn í notkun sjálfvirkur svarsími í veðurdeildinní
á Reykjavíkurflugvelli. Þetta er segulband í sambandi við liljóðnema, og má
festa á segulbandið tal, sem tekur allt að einni minútu. Síðan er bandið tengt
bæjarsímanum. Ef hringt er í nr. 17000 næst samband við segulbandið og heyr-
ist þá í símanum það, sem talað var síðast á bandið. Eftir nákvæmlega eina
mínútu rofnar sambandið sjálfkrafa, — en ekki heldur fyrr.
Á veðurstofunni er skipt um tal á bandinu nokkrum sinnum á sólarhring.
Er sagt frá veðurhorfum í Reykjavík og nágrenni næsta sólarhring, lýst stutt-
lega veðri á öllu landinu, veðri, liitastigi, skyggni og loftvog í Reykjavík og loks
sagt um almenn veðurskilyrði í grennd við landið og veðurhorfur fram undan,
eftir því sem ástæður leyfa hverju sinni.
Svarshni þessi hefur létt mjög ónæði af starfsliði veðurstofunnar. Fyrstu tvo
mánuðina, sem svarsíminn var í notkun, voru taldar um 10 þús. hringingar.
1